Elskurnar mínar allar

by Hildur

Ég get ekki verið með á Facebook – ég er í 24 tíma banni af því að Jakob Bjarnar Grétarsson óskaði eftir því að skjáskot af honum sjálfum og hans opinberu ummælum yrði fjarlægt af síðunni minni. Ég sumsé gerði ekkert rangt, honum tókst bara að fá þetta í gegn. Og það er faktískt ágætt, Facebook mun þá bara trufla mig þeim mun minna í kvöld og á morgun en ég vil samt segja ykkur að ég háskældi eins og ungabarn þegar ég reyndi að lesa upphátt fyrir Palla og Sævar það sem þið höfðuð sett á vegginn minn um viðtalið í kvöld. Takk og takk og takk. Ég get ekki sent skilaboð, ég get ekki skrifað neitt – en hérna get ég sagt takk fyrir mig.

58 Comments to “Elskurnar mínar allar”

  1. Þessi Jakob Bjarnar eru furðulegur fýr.

    Hann virðist hafa eitthvað á móti samkynhneigðum, femínistum og trúleysingum. Eða ég hef allavega ekki getað lesið annað úr skrifum hans um þessa hópa.

    Með þessu áframhaldi kemst hann pottþétt til himnaríkis.

  2. Þetta var virkilega vel gert hjá þér! Vonandi bara heldur þú utan um öll þessi skjáskot svo hægt sé að skella þeim upp á annan miðil ef þetta verður viðvarandi vandámál.
    Go Hildur!

  3. Ást, ást, ást. Þú ert algjör hetja kerlingin mín. Hringdu í mig strax og þú getur hjartagull. Ætla að láta þig í fríði í kvöld. Þú hefur víst nóg á þinni könnu. Kossar og knús rófan mín frá okkur pabba þínum. Jeminn eini.

  4. Hvernig virkar svona 24 tíma bann? Er það í alvörunni eitthvað sem Facebook getur gert og gerir? Og hvernig tókst honum að fá þetta fjarlægt? Ég hélt það væri nær ómögulegt að fá nokkurn skapaðan hlut fjarlægðan af Facebook.

  5. Það er tiltölulega auðvelt að fá einstaklinga bannaða á Facebook, en að sama skapi næstum ómögulegt að láta loka síðum hópa eða álíka efni, jafnvel þó um hatursáróður sé að ræða. Þetta hafa margir reynt.

    Ég hef einu sinni fengið bann á FB, fyrir þann “glæp” að senda of mörg skilaboð. Tugir manna sem ég veit um hafa ítrekað kvartað yfir síðunni Mótmælum mosku á Íslandi og hún hangir samt enn uppi.

    Furðuleg forgangsröðun. En þú ert hetja, Hildur.

  6. Þessi Jakob Bjarnar vill kannski leyfa dætrum sínum að skoða kommentin sín í gegnum tíðina ?

    Takk fyrir þig !

  7. Vel gert Hildur, ég sendi þér fallegan læk.

    Jakob er eflaust hið vænsta skinn, það er amk fallega gert hjá honum að hífa trollið inn í bili á fbókinni.

  8. Knúz á þig Hildur :)

    Tek undir spurningu Hauks! Nú var facebook síðu dóttur minnar “stolið” og sá sem stal henni hefur verið að setja stöðuuppfærslur (með lesblinduvillum dóttur minnar) og setja “læk” hingað og þangað.. adda vinum og skipta úr profilemyndum. Núna fyrir skemmstu fór svo viðkomandi “persónuleikaþjófur” að adda fólki sem stendur mér mjög nærri!! bestu vinum mínum, kærastanum mínum og svo framvegis!! Við höfum verið með þvílíkt átak í gangi að auglýsa á síðum okkar að síðunni hafi verið stolið og biðjum fólk að “reporta” sem það og hefur gert en samt gerist ekkert!!! ..og viðkomandi óforskammaði aðili sem stendur á bakvið þetta er enn að misnota þessa stöðu sína og síðu dóttur minnar í hennar nafni?
    Er okkur að yfirsjást eitthvað varðandi hvað sé hægt að gera í stöðunni?
    kv.

  9. Lovjú.

  10. Misjöfn eru morgunverkin hjá facebook, verð ég að segja. Rasistar komast upp með ítrekaðan hatursáróður, bæði sem einstaklingar eða í hópum (sjá t.d. “Mótmælum mosku á Íslandi”-síðuna) þrátt fyrir ítrekaðar tilkynningar. Þú birtir skjáskot af ummælum manna á facebook og lendir í sólarhringsbanni.

  11. Það verður að segjast að mér er alveg hætt að koma nokkuð á óvart sem úr þessari átt kemur. Og var búinn að einsetja mér að eiga helst sem sjaldnast orðastað við þig eða nokkurn úr þessari öfgasellu, bæði af því að það er eins og að hlaupa á vegg og svo er öllu snúið á haus sem maður segir. Þetta er mannskemmandi. En, lygavaðallinn er að verða yfirgengilegur, á kommentakerfum víðsvegar og svo hér.

    a) Þó þú viljir helst ekki tala um annað en að einhverjir hafi eitthvað út á það að setja að þú birtir eitthvað sem þegar hefur birst opinberlega þá er ég ekki einn af þeim, hef ég nákvæmlega ekkert út á það að setja. En það er lágmark að samhengið sé eitthvert. Það er ekki í þessu tilfelli og auðvitað hef ég sitthvað við það að athuga.

    b) Ég hef aldrei óskað eftir því, hvorki við þig né nokkurn annan, að eitthvað yrði fjarlægt af þessum vegg þínum. Bara aldei. Það er hrein og klár lygi.

    c) Ég hef nákvæmlega ekkert með það að gera, bara núll, að þú sért í einhverju 24 tíma banni á Facebook. Vissi ekki einu sinni að það væri til. Þannig að það er hrein og klár lygi líka.

    Ég meina, eitt eru útúrsnúningar, hártoganir, að snúa hlutum á haus, misskilja (viljandi) og tala utan efnis… allt þetta þekki ég, og róginn líka, og ætla að reyna að svekkja mig ekki lengur á því. Nóg er nú samt. En ítrekuð bláköld lygi… ég meina, stendur ekkert í vegi?

    En, ég vona bara að þú njótir þessarar vafasömu athygli sem allra lengst.

    • Jæja, Jakob minn. Ég bið þig innilega afsökunar hafi ég haft þig fyrir rangri sök. En eins og þú sérð hér: http://kaninka.net/snilldur/?p=2114 þá er ástæðan fyrir banninu vissulega sú að ég birti mynd af þér. Ég stóð í þeirri meiningu (og stend reyndar enn) að maður þurfi að sýna fram á að maður sé á tiltekinni mynd til að fá hana fjarlægða og setja eiganda eða miðlara hennar í bann.

      Athyglinnar sem þér og öðrum hefur orðið tíðrætt um og sumir vilja meina að ég þrífist á, hennar nýt ég ekki. Þú ræður auðvitað hvort þú trúir því eða ekki (ég er soddan lygari að það eru víst allar líkur á því að ég ljúgi því líka) en athyglin sem ég hef fengið, persónulega, undanfarna 2-3 daga er það sem mér finnst allra allra erfiðast og verst við þessa baráttu.

      • Sæl Hildur.

        Mér blöskrar þessi aðferð þín til þess að brjóta niður einstaklinga og bendla þá við kvenhatur.

        Ég skil þinn málstað mjög vel. En þetta er einfaldlega ekki rétta leiðin til þess að koma honum á framfæri.

        Ég er sá sem tilkynnti myndina til Facebook. Ég valdi eina mynd, handahófskennt, tilkynnti hana, og innan við 24 tímum seinna var beitt viðurlögum.

        Með þessu vildi ég sýna fram á það hversu auðvelt það væri að fá þig rekna af samskiptavefnum fyrir að brjóta í bága við persónuverndarstefnu vefsins og bandarísk, sem og íslensk lög. Þessvegna vil því biðja þig um að loka þessu albúmi áður en þér verður hent út fyrir fullt og allt.

        • Hvaða lög var hún að brjóta? Ég er ákaflega lítið lögfróð og væri til í að vita þetta. Hef reyndar engan áhuga á bandarískum lögum.

          • Sæl Birgitta.

            Þú vilt kannski ekkert með bandarísku lögin hafa, en byrjum samt á þeim, ákveð bara að linka inn á eftirfarandi lagabálk (Restatement of the Law, Second, Torts, � 652):

            http://cyber.law.harvard.edu/privacy/Privacy_R2d_Torts_Sections.htm

            Þarna brýtur hún bæði gegn 652B og 652D

            Hvað varðar persónuverndarstefnu Facebook, þá mæli ég með að allir þeir sem nota vefinn lesi hana svo að þeir séu aðeins betur að sér um hvað má og ekki. Hér er hún: http://www.facebook.com/legal/terms?ref=pf

            Hildur gerist sek um að brjóta gegn gr. 2. Sharing Your Content and Information, gr. 3.6, gr. 3.12, gr. 5.1 o.fl.

            Hvað varðar íslensk lög þá gerist Hildur líklegast sek um að brjóta einhverjar greinar Almennra hegningarlaga, þmt. XXV. kafli. Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. o.fl.

            Kveðja.

            • Eru það nú ærumeiðingar að endurbirta það sem aðrir hafa skrifað opinberlega?

            • Takk fyrir þetta. En segðu mér, hverra æru er Hildur að meiða? Reyndar ertu núna búinn að draga í land og segir líklegast, ég sá það ekki hjá þér áðan, er möguleiki að hún sé ekki að brjóta nein íslensk lög?

              • Það að setja saman þetta albúm með opinberri orðræðu þessara manna er sjálfsagt og gott en það sem getur talist ærumeiðandi er að gera þeim upp þann ásetning að þeir hati konur.

                Það getur vel verið að þeir geri það og það veit ég ekkert um en það að þeim sé gerð upp sú skoðun (hvort sem hún er á rökum reist eða ekki) getur besta falli talist hæpið.
                En umræðam er þörf bara spurning um að finna henni flöt svo úr verði uppbyggjandi samræður

            • Hvað ertu að blanda bandarískum lögum í þetta? Við búum á Íslandi og þar af leiðandi gilda bandarísk lög ekki hér…. Alveg eins og þarna með Jón Baldvins málið, hann gerði verknaðinn í útlöndum og er þar af leiðandi ekki sekur á Íslandi
              og varðandi íslensku lögin, er Hildur líklegast sek? líklegast? geturu virkilega ekki betur?
              Allt sem þessir menn skrifuðu var á opinberum vettvangi, internetinu, eitthvað sem ALLIR geta skoðað, það getur HVER SEM ER printscreenað og gert það sem hann vill með myndina.

        • Brjóta niður einstaklinga?? Hvernig þá? … með því að birta ummæli þeirra. Hún lætur fylgja link á samhengið þannig að allir geta skoðað það.

          Hún á þakkir skildar fyrir þetta framtak sitt. Ég vildi að mér hefði dottið þetta í hug.

          Hvað er það sem truflar þig við það að birta ummæli þar sem fullorðnir karlmenn undir fullu nafni, til dæmis setja það fram á ósmekklegan hátt að 16 fórnarlamb nauðgunar gæti sjálfu sér um kennt. Eða konur sem hafa tilkynnt kynferðislegt ofbeldi til lögreglu.. séu að gera það til að græða peninga, eða að pólitískar samsæriskenningar séu líklegri en að brot hafi átt sér stað.

          Þetta ertu allt að verja með því að tilkynna þetta til FB. Eigðu skömm fyrir.

  12. Horfði reyndar ekki á viðtalið við þig en er búin að fylgjast með þér í netfjölmiðlum og á fb. Þú ert þvílík hetja að standa í þessu því að ég get rétt ímyndað mér óhróðurinn sem þú hefur fengið út af þessu. Það er svo einkennilegt hvernig hægt er að kalla það sem er í fb albúminu lygi.
    Haltu áfram þínu góðu verkum og ekki láta bugast því þú ert þvílík fyrirmynd.

  13. Þakka þér öllu fremur, fyrir auðsýnt hugrekki og frumkvæði.
    Takk.

  14. Það fer gjarnan svona fyrir fólki sem dreifir hatursáróðri.

    Það er reyndar merkilegt, það virðist ekki skipta máli hvort fólk hatar svertingja, múslima, gyðinga, vinstrimenn, hægri menn, rauðhærða eða karlmenn, þeir boða allir “sannleikann”

    Sanntrúað öfgalið sér aldrei nokkurn tíma eitthvað rangt við boðskapinn, heldur fyllist heilagri reiði yfir meintu óréttlæti og meintri heimsku annarra sem ekki sjá ljósið.

    Bottom line, þú ert sami helvítis bjáninn og aðrir öfgamenn. Auðvitað lokar Facebook á þig, síða sem ekki vill láta kenna sig við öfga.

    • Hvað er að? Hvernig getur það talist til öfga að birta áður birt komment á einum og sama staðnum? Hvað með mennina sem skrifuðu þetta allt? Eru þeir ekki öfgafullir?

      Þú ert bara sjálfur helvítis bjáni!

    • Hatursáróðurinnn og öfgarnir eru í þeim ummælum sem Hildur birtir. Ekki í þeim gjörningi að taka þau saman á einn stað og birta.

      Það hefur farið allt of mikil athygli í nafnið á albúminu, en ekki það sem í albúminu er. Þótt kannski sum ummælin eru á gráu svæði að þá eru þarna innan um viðbjóðsleg ummæli frá fulloðrnu fólki.
      Þar er hatrusáróðurinn sem þú ert að tala um.

  15. Ja hérna, þessi Jakob Bjarnar! Ofaná allar ranghugmyndirnar um konur, sem þú eignar honum og hann þykist ekkert kannast við, kannast hann heldur ekkert við að hafa hent þér út af Facebook sem þú eignar honum líka að hafa gert.

    Dæmigert fyrir karlmann að afneita því sem þú heldur fram.

    Haltu endilega áfram að upplýsa okkur um skoðanir og athafnir karla eins og þær horfa við þér.

  16. Hve margir á snjáldurskinnu skyldu hafa lesið skilmálana?

    Ég gerði það ekki fyrr en daginn eftir að ég gerðist þar meðlimur. Eftir lesturinn var það mitt fyrsta verk að eyða öllu þar inni sem ég hafði sett þar og eyða prófílnum mínum.

    Allir þessir samskiptamiðlar fúnkera á því að selja meðlimi. Það er, ÞÚ ER PRÓDÚKTIÐ. Ég hef lítinn áhuga á að vera í „vist“ hjá þessum dólgum. Er það ekki annars orðið sem lýsir þeim best?

  17. Þú stendur þig frábærlega.
    Baráttukveðjur.

  18. Hildur, þú er flott. Ég er stolt af þér.

  19. Kannski af því að samkvæmt lögum gæti þetta talist persónuleg árás?
    Að minnsta kosti sé ég það sem þannig þegar það er sett upp síða sem styður við hatur á einstaklingum.

    • Hvaða vitleysa er þetta??!! Eru mennirnir sem skrifa þessi komment sem Hildur tók saman s.s. ekki að ráðast á konur/fórnarlömb nauðguna/fórnarlömb ofbeldis með því að tjá sig á þann hátt sem þeir gera? ÞEIR birtu þessar skoðanir sínar undir sínu nafni svo að þeir gerðu þetta persónulegt ekki Hildur.

      • Þeir eru EKKI að nafngreina einstaklinga og að fullyrða eins og hún “karlar sem hata konur” er fullyrðing.
        Er bara að segja að mér finnst þetta vera á barmi persónulegra árása og treystu mér ég veit vel hvers nauðgunarfórnarlömb þurfa að líða.
        Það er EKKI bara kvenfólki sem er nauðgað

      • Mér líkar ekki við asna sem skrifa svona comment um fórnarlömb og fólk yfir höfuð.
        Hins vegar samkvæmt lögum þá jaðraði facebook síðan við lögbrot sem gæti bakað ákæru fyrir “persónu árás”
        Ég er bara að vara við hættunni en ekki að segja að þetta hafi verið í lagi hjá þeim.

        Mér finnst þessi facebook síða styðja við hatur gagnvart einstaklingum sem er vandinn.
        Hatur er ekki lausnin við hatri.
        Að reyna að fá fólk til að hata einstakling sem hatar einhvern annan er engin lausn.

  20. Það þyrfti að setja bullvörn á þig á hér líka Hildur. Ótrulegt hvað þessir öfgahópar komast upp með.

  21. Mér finnst þessi athyglissýki hjá þér ekki af hinu góða. Það er svo barnalegt að “klippa og líma” ummæli skrifuð á netinu og búa til albúm. Það er málfreslsi á norðurlöndunum.

    Vona að Facebook loki þessum prófíl hjá þér endanlega.

    Ég mun amk. gera mitt til þess að það verði skoðað.

    Peace.

    • En hvað finnst þér um það sem mennirnir í albúminu sögðu?

      • “Mennirnir í albúminu” mega segja það sem þeim sýnist, ef um lögbrot er að ræða verða dómstólar að taka á því og ekki eisntaklingar sem haga sér eins og börn, með því að “klippa og líma”.

        Það kemur ekkert út úr þessu, amk. ekkert jákvætt. Og það á sérstaklega við “klipparan/límarann”, sem er búin að gera sig að fífli fyrir framan alþjóð, og meira að segja alla leið yfir atlantshafið, til Noregs.

        • Ósköp ertu mikill kjáni, drengur. Þessar röksemdir þínar “að er svo barnalegt að “klippa og líma” ummæli skrifuð á netinu og búa til albúm. Það er málfreslsi á norðurlöndunum.” eru fyndin mótsögn. Það má birta opinber ummæli hvar sem er með tilvitnunum.

          • Verð að taka undir þetta.

            Þetta hlýtur að vera einhver strákhvolpur sem á greinilega margt ólært.

  22. flott hjá þér Hildur! keep up the good work, þykir sárt hversu hörð og ógeðfeld umræðan er orðin hér á landi, að árið 2012 sé orðið feministi nánast blótsyrði. Það krefst hugrekkis að þora að standa fyrir hugsjónum sínum, þú er hugrökk kona!

  23. Mér þætti mjög gott og jákvætt að sjá jafnrétti, með venjulegar konur og karla í stjórnunarstöðum bæði í pólitík og fyrirtækjum. femínistar hafa hinsvegar dæmt sig sjálfar. þau hafa öll einkenni hættulegra sértrúarsamtaka með kröfu um forréttindi í samfélaginu. Ég sé fyrir mér að ef þessi samtök yrðu valdamikil færu þau að stunda aftökur á þeim sem ekki hefðu ”réttar” skoðanir. Þau hafa sjálf kallað yfir sig gremju bæði karla og kvenna, sem horfa með opnum augum, og sjá hversu hættulegt þetta er og hvert þetta leiðir. Það væri nær að fólk ynni saman að bættu samfélagi frekar en vera með eilífa óeiningu.
    Ég geri fastlega ráð fyrir því Hildur að þú klippir framan og aftan af þessu, og setjir það fram sem þú telur henta þínum hóp.

    • Hvaða einkenni öfgahópa hafa feministar? Hvað er það nákvæmlega sem er svona hættulegt við þá? Nú spyr sá sem ekki veit. Ég hef heyrt þetta svo oft áður en aldrei nein rök, bara staðhæfingar um að þetta sé svo hættulegt og að “þær kölluðu þetta yfir sig sjálfar” og þessháttar.

  24. Mér þykkir sorglegt að þjóðfélagið hafi snúið sér að skíta hvort annað út.
    Þetta er farið að minna mig á alþingi íslendinga. Eilíft röfl, nöldur og árasir útaf eingu um ekkert. Hvernig væri a’ð hætta að finna þennan eilífða sökudólg og byrja einbeitta sér að uppbyggingu? Eða vill fólk virkilega vera eilíft föst í sömu sporunum?

    Þessi kynjabarátta finnst mér ganga einum og langt og ekki skila neinu. Mér finnst hún frekar ýtta undir þetta hatur frekar en að laga það! Allavega með þessunm aðferðum sem eru notaðar.
    Þetta þjóðfélag þarf ekki á þessu að halda!
    Við þurfum samstöðu til að berjast við allt það óréttlæti sem við þurfum að ganga í gegnum. Þessi reiði ætti að beinast að þeim sem eru að ganga frá þessu þjóðfélagi dauðum!
    Það er mun alvarlega að sjá fólk missa allt sitt frekar en orð sem einhver hefur sagt!
    Öll skrifuð orð geta verið miskilin og mistúlkuð!
    Fólk ætti kannski að reyna hafa meira samband fyrir utan facebook!

  25. ÁFRAM HILDUR!

    Þú ert algjör hetja og ég bara get ekki orða bundist yfir því hvernig fólk hraunar yfir þig hérna á kaninku, dv og annarsstaðar – ég er svo þakklát fyrir að þekkja ekkert af þessu liði eða vera skyld því. Held næstum að þetta sé bara ein heimsk manneskja sem skrifar undir mismunandi prófílum…

    Ég vona að þú látir þetta ekki of mikið á þig fá (en miðað við hvað ég er reið þá get ég ekki ímyndað mér hvernig þú hefur það) og haldir áfram að vera snillingur!

    Þú ert algjör fyrirmynd!

  26. Vala. Ég ætla ekki að hafa þetta langt vegna þess að ég veit það hefur enga þýðingu að rökræða. Ég ætla bara að minnast á eitt einkenni, það er einmitt að það er ekki hægt að rökræða vegna þess að trúin er svo sterk að engin rök komast að og fólk heyrir ekki eða skilur rökin gegn þessu. Allir öfgar eru hættulegir eins og dæmin í heiminum sanna, og geta aldrei leitt til góðs, og alls ekki sátta milli fólks. Hvað er þá fengið ef allir eru ósáttir?

  27. Ástarþakkir!

  28. Vel gert!

  29. Flott hjá þér Hildur !!!

  30. Smá grín í lokin, það þolum við öll.

    http://www.youtube.com/watch?v=6j9fsgE1y3k&feature=related

  31. hefur hvarflað að þér að sum kommentin þarna séu “facerape” , veit um alla vega 1 tilvik

  32. FARÐU TIL SÁLFRÆÐINGS hildur mín

  33. Ég er sjúklega ánægð með þig Hildur.
    Takk svo mikið fyrir að birta albúmið..
    Vei!
    Þú ert frábært.

  34. Hæ fæv!

  35. Ef þessi gjörningur að taka þessi ljótu ummæli saman geta orðið til þess að opna augu fólk við því sem viðgengst að þá er það gott mál.

    Hvað ætli maður hafi oft séð svona athugasemdir í gegnum tíðina.. við fréttir af ofbeldi, kynferðisglæpum .. þar sem talað er undir rós og gefið í skyn að fórnarlambið hefði getað komist hjá þessu EF.. hún hefði klætt sig öðruvísi.. ekki verið þarna osfrv.

    Það var kominn tími til þess að benda fólki á hvað verið er að láta frá sér.

    Ég er bara undrandi að þetta hafi ekki verið gert fyrr.

    Áfram Hildur.. flettu ofan af þessu aumkunarverðu mönnum sem setja blett á okkur alla.

Leave a Reply