200. kafli í Snilldi

by Hildur

Það angrar mig að skynsamasta fólk geri sér ekki grein fyrir alvarleika þess að við séum að „ræða þessi innflytjendamál“. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvaða vandamál Pólverjar/múslimar/Portúgalir/you get my drift hafa flutt til Íslands? Eru þeir kannski að nauðga konunum okkar, selja unglingunum okkar eiturlyf og ræna störfum frá Íslendingum? Er það á ábyrgð innflytjenda að þeim séu greidd mannsæmandi laun? HVERT dömur mínar og herrar er vandamálið sem um ræðir?

Enska þýðingu á textanum á plakatinu hér að ofan má finna hér. Lesið hann og veltið í alvörunni fyrir ykkur hversu fjarlægur möguleiki þetta er. Og ég lofa í staðinn að blogga einhverntímann um eitthvað annað en femínisma og nasisma.

No Comments to “200. kafli í Snilldi”

  1. Frjálst flæði vinnuafls er hluti af vanda sem telst til þess versta í heimskapítalismanum: Laun lækka vegna þess að aðflutt vinnuafl vinnur fyrir miklu lægri laun. – Þetta er vafalaust ekki orðið að stóru vandamáli hér en mönnum bregður illilega við þá staðreynd að skyndilega getur fólk frá fjölmörgum löndum komið hingað hindrunarlaust og stundað vinnu.- Þar sem við virðumst síðan ekki tíma að kenna innflytjendum íslensku, sem er meiriháttar hneyksli og aumingjaskapur, eru komin fram merki þess að til sé að verða ný lágstétt í landinu.

    Það er erfitt að tala um þessi mál því rasistarnir kætast og leggja fram sleggjudóma sína um fólk af öðrum uppruna – en vinstri sinnaða pólitískt réttrúaða fólkið æpir rasisma um leið og haft er orð á vandanum sem er þekktur um alla Evrópu.

  2. tetta er flokid mal sem fer ekki eftir haigri eda vinstri, tvi margt vinstri sinnad folk er rasiskt, og margt haigri sinnad folk ekki, eg er t.d. hommi og hef upplifad mestu fordomana i danmorku og a medal teirra er telja sig frjalslynda. tad er verid ad berja straka sem eru adeins odruvisi um hverja helgi nidri bai i reykjavik. gamla folkinu er hent, og eftir akvedin aldur verdur folk osynilegt, lifir undir hulidshjalmi, veiku folki a islandi finnst sem tad hafi framid glaip, tannig er oftar komid fram vid tad, eg vona ad jesus faidist bradum og flytji kairleika til tessarar grimmu eyju
    boris mercury

  3. Já Boris. Það er kominn tími á syndaflóð. Fresh start. Og ég vona að ég hafi ekki tengt þessa umræðu við flokkapólitík, að öðru leyti en því að ég hef fullan hug á að segja mig úr Vinstri grænum, haldi þeir áfram samstarfi við Frjálslynda.

  4. nú er ég innvígður en kannast ekki við samstarf við Frjálslynda annað en að nafninu til að vera í stjórnarandstöðu.. Endilega haltu þig í flokknum, en þú kemur inná valid punkt með því að spyrja hverjum sé um að kenna. Málið er að við Íslendingar verðum að hætta að taka okkur svona fucking hátíðlega að halda að við séum einhverskonar gullagull óháð öðrum Evrópulöndum.

    því þau (Evrópulöndin) hafa þurft að eiga við þessi “vandamál”, en lítum engu lengra en til Svíþjóðar, vöggu félagshyggjunnar og almannatryggingakerfisins sem við svo mærum okkur af að ídólæsa og fylgja. Þar gerðu stjórnvöld einfaldlega nauðsynlegar ráðstafanir og ólu ekki á hræðsluáróðri eins og þeim sem Frjálslyndir eru að púlla núna.

    Því er ekki einungis við Frjálslynda að sakast fyrir smánarlegan áróður gegn innflytjendum, heldur einnig vanhæfni ríkisstjórnarinnar við að aðlaga þjóðfélagið að breyttum tímum.

    long time reader, first time commenter.. gott blogg

    gat ekki setið á mér lengur ;)

    kv.

  5. og aðeins meira: úr stefnuskrá VG

    Vinstrihreyfingin – grænt framboð grundvallar stefnu sína á jöfnum rétti allra án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, litarháttar og uppruna.

    síðan er forsíðumynd Fréttablaðsins 8.nóv mjög lýsandi þar sem Steingrímur er að víst að messa yfir Magnúsi “besta vini mínum” Hafsteinssyni

    nú er ég hættur að verja flokkinn

  6. “Bæði [ISG] og Steingrímur J. Sigfússon segja Guðjón Arnar Kristjánsson, formann frjálslyndra, tala fyrir stefnu flokksins, sem sé óbreytt og öfgalaus.

    Samstarf stjórnarandstöðu standi því óhaggað.”

    Þetta er hluti af frétt sem birtist á rúv.is nú í vikunni. Þýðir þetta samstarf ekki að ef ríkisstjórnin fellur í næstu kosningum muni þessir þrír flokkar mynda ríkisstjórn? Ég segi mig úr flokknum ef það er í alvöru planið að hjálpa Frjálslyndum að komast í ríkisstjórn. Það er á hreinu. Og jújújú, auðvitað er aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar um að kenna, Svíþjóð vs. Danmörk er augljósasta dæmið í því samhengi. Og vertu velkominn.

  7. Ef þú hefur áhuga á að hafa áhrif á stefnu VG í þessum málaflokki ættirðu frekar að mæta í prófkjörið 2. desember og kjósa t.d. Paul Nikolov, sem hefur það á stefnuskrá að halda málstað innflytjenda hátt á lofti.

    Annars held ég að Frjálslyndir hafi gert út af við samstöðu stjórnarandstöðuflokkanna með þessu útspili. Því miður. Eða þá sem betur fer, ef þetta var innrætið allan tímann.

Leave a Reply