Góð pæling hjá Evu, allt ljómandi fínt. Nema hvað. Kristinn Theódórsson (sem lesendum þessa bloggs er hugsanlega vel kunnur) gerir í kommentakerfinu að umræðuefni að hugsanlega séu helstu áhugamál kvenna útlit og föt. Máli sínu til stuðnings nefnir hann greinasafn sem hann fann hér. Hann segir þessar greinar allar vera skrifaðar af konum um konur fyrir konur og segir þær allar fjalla um útlit og föt. Nú má vera að hann hafi fengið upp annað greinasafn en ég á þessari slóð en ég ætla að renna yfir topp tíu listann og kanna hvar ég finn femínisma og hvar ég finn áherslu á útlit og föt. Svo ætla ég að fara út og læra hugleiðslu svo ég geti æft mig í að heyra ekki í Kristni Theódórssyni þegar hann byrjar að ræða við mig í kommentakerfinu.
1. Modesty – What Does It Mean? Þarna fjallar greinarhöfundur um hugtakið modesty og biflíulegan skilning á því. Almennt sýnast mér þetta vera hugleiðingar um hvað sé guði þóknanlegt hvað varðar hegðun, atferli og framkomu, þ.m.t. eru vissulega klæðaburður, skartgripir, hárgreiðsla og förðun, en útgangspunkturinn er hófsemi og hógværð, hversu eftirsóknarverðir eiginleikar það eru og hvaða birtingarmyndir þeirra eru æskilegar.
Enginn fær stig þarna, þetta er eitthvurt Jesúdót sem ég gæti örugglega ekki lesið þótt ég vildi það.
2. Dressing Tips for Petite Girls Án nokkurs vafa pistill sem fjallar einungis um útlit og föt.
Útlit og föt 1 stig.
3. A Bra That Fits Correctly – Do You Know What To Look For? Ég fræði lesendur mína hér með um að það að ganga í réttri stærð af brjóstahaldara er rosalega mikið mál. Útlitið er faktor þar hjá sumum konum, þar gildir það sama og um önnur föt sem passa ekki á mann, það er asnalegt. Alvarlegri hlið þessa máls er að það er heilsuspillandi að ganga í vitlausri brjóstahaldarastærð. Það var þjóð(/heims-?)þrifaverk að skrifa þessa grein og minnir mig á að bráðum ætla ég að birta hérna pistil eftir sjálfa mig um sama málefni.
Ég er höll undir að gefa stig fyrir femínisma, en af ótta við að gefa höggstað á kerfinu mínu stilli ég mig um það. Þessi grein fær samt sérstakt kúdos fyrir að fjalla á greinargóðan hátt um mikið hagsmunamál kvenna. Sérstaklega júllumikilla kvenna eins og undirritaðrar. Á sama hátt gef ég ekki stig fyrir útlit og föt, þetta snýst um heilsu, lífsgæði og velferð kvenna.
4. Life Begins At Sixty Uppörvandi og jákvæð grein eftir konu sem nýtur þess að eldast og vill draga úr ótta annarra við það. Vel gert, gott mótvægi við æskudýrkun og innprentun klikkaðra hugmynda í konur um hvernig þær eiga að vera.
Femínismi 1 stig.
5. Beating Sexual Harassment Þessi titill er mjög lýsandi fyrir innihald greinarinnar, í henni er konum kennt að bera kennsl á kynferðislega áreitni þegar þær verða fyrir henni og bent á áhrifaríkar leiðir til að bregðast við. Segir það ekki margt um viðhorf sumra karla að þeir lesi út úr þessu grein sem fjallar um útlit og föt?
Femínismi 1 stig.
6. Emma Watson’s Fashion Style So Far Aftur: vissulega útlit og föt eingöngu.
Útlit og föt 1 stig.
7. Women’s Revolution of the 21st Century Gripið niður hér og þar í sögu kvennabaráttunnar á 20. öld, farið lauslega yfir afleiðingar kúgunar kvenna og endað á hugvekju og hvatningu til kvenna um að ýta úr vör byltingu, nýta farveginn til að breyta heiminum. Föt og útlit? Er þetta grín?
Femínismi 1 stig.
8. Barbie Designer Christian Dior Blah. Titillinn segir það allt, þessi grein fjallar um Barbie og Christian Dior.
Útlit og föt 1 stig.
9. Boudoir Photography – Why British Women Are Stripping Off for the Camera Þessi grein fjallar um fyrirbæri sem er líklegt til að vera þrætuepli meðal femínista, er aldeilis ábyggilega mjög umdeilt en einhverjir myndu halda staðfastlega fram að væri mjög jákvætt fyrir konur. Hún fjallar semsagt um erótíska ljósmyndun á konum sem ekki eru fyrirsætur. Hugmyndin er að vekja athygli á þeim möguleika fyrir meðalkonuna útí bæ að eignast elegant/smekklegar/sexí ljósmyndir af sjálfri sér þar sem aldri hennar, keppum, hrukkum og kílóum er fagnað fremur en að það sé eitthvað til að skammast sín fyrir. Þetta er semsagt How to look good naked pælingin og ég held að femínisminn megi alveg fá hér eitt stig og föt og útlit annað.
Femínismi 1 stig/Útlit og föt 1 stig
10. Women’s Self-Esteem Is Targeted by Advertisers Hér er deilt á þau viðstöðulausu skilaboð til kvenna að til þess að þær geti verið ánægðar með sjálfar sig þurfi þær að vera meira svona eða hinsegin og eignast þetta eða hitt. Skilaboðin frá greinarhöfundi gætu ekki verið skýrari: We need to know, really know that we women are good enough EXACTLY the way we are.
Femínismi 1 stig.
Semsagt. Tíu greinar, þar af fær femínismi fimm stig og útlit og föt fá fjögur. Over and out, farin að læra hugleiðslu og slökun og jóga eða eitthvað.












Monday, August 22nd, 2011, 4:51 pm | 



10/09/2011 at 2:58 am
Ykkur til fróðleiks, þá er ég aðeins að halda því fram að það sé viðlíka eðlilegt að alhæfa frjálslega um að: “allir” karlmenn hafi áhuga á fótbolta, eins og að alhæfa um að: “allar” konur hafi áhuga á miðlun um utlitstengd málefni.
Fyrir þá athugasemd fengi ég vitaskuld “staðinn” í markaðsfræðum. Yrði ekki rekinn eins og HildurE heldur fram.
Kannski er HildurE þó að leggja til skoðanamótandi markaðssetningu, sem stríðir gegn eftirspurn. Ef svo er, þá fell ég vissulega. Ég er nefnilega að gera ráð fyrir núverandi stigi áhuga, en ekki þeim sem HildurE telur heppilegan
10/09/2011 at 9:19 am
Kristinn, þú yrðir rekinn út úr fyrsta markaðsfræðitíma með mikilli skömm.
Þú ert að delera hérna um það sem er í raun skoðanamótandi markaðssetning – snyrtivörur eru markaðssettar á þann hátt að eftirspurnin er hreinlega búin til – með skilaboðum um að það sé hverri konu nauðsynlegt að vilja breyta sér og líta öðruvísi út. Þettta hefur líka áhrif á efnistök fjölmiðla sem er ætlað að beinast fyrst og fremst hjá konum. Þetta þekki ég, hafandi sjálf unnið í þessum bransa. Það gildir reyndar ekki bara um snyrtivörur að þær séu markaðssettar á þann hátt að búin er til eftirspurn eftir einhverju sem fólk vissi ekki að það vantaði. Þetta er alþekkt fyrirbæri.
Þú yrðir reyndar líka fallinn í tímum í öllum félagsvísindum. Það að líta á fjölmiðla og halda því fram að þeir endurspegli undantekningarlaust raunveruleikann eins og hann er, er ákaflega idjótískt.
10/09/2011 at 12:04 pm
Auðvitað er skoðanamótandi markaðssetning alþekkt fyrirbæri. Hún getur hinsvegar ekki gengið til lengdar ef hún virkar ekki – því ef hún virkar ekki hefur ekki tekist að skapa áhuga. Í tilfelli útlitsdýrkunnar hefur það tekist – áhuginn er gríðarlegur og veltir milljörðum.
Hinu hef ég vitaskuld aldrei haldið fram, að “fjölmiðlar endurspegli undantekningarlaust raunveruleikann eins og hann er” – heldur aðeins að langvarandi velta í einhverjum geira og tengd auglýsingastarfsemi sé skýr vísbending um viðvarandii áhuga af einhverju tagi.
Hitt er allt búið að koma hér fram. Engin ástæða til að endurtaka.
Þessi fóbía fyrir þeirri niðurstöðu að konur séu ansi almennt áhugasamari um útlitstengd málefni en karlar er hinsvegar mjög áhugaverð.
Mér er tjáð að karlemnn hugsi meira um kynlíf en konur. Ég veit ekki hvort það er rétt eða ekki, en ég sé enga ástæðu til að neita því ef svo er. Þá er það bara þannig. En kannski ætti ég að fara í einhvern blogghernað til að bjarga heiðri karla og fullyrða að karlar hugsi í raun ekki um kynlíf, að þetta séu ekki hugsanir, heldur eitthvað annað og því ekki hægt að segja þetta um karla?
10/09/2011 at 12:21 pm
Kristinn, þú ert ekki neitt sérstaklega fær um gagnrýna nálgun á hlutina, er það?
10/09/2011 at 12:23 pm
PS, þér er sagt að karlar hugsi meira en konur um kynlíf.
Fyrst þér er sagt svo, þá náttúrulega hlýtur það að vera satt? Alveg eins og það hlýtur að vera satt að karlar eru frá mars og konur frá snickers, og að maltdrykkja gefur hraustlegt og gott útlit? Áttu kannski líka frænda í Nígeríu sem vill gefa þér pening?
Þú ert hinn raunverulegi Ólafur Ragnar (ekki Grímsson)
10/09/2011 at 2:45 pm
Ó, gleymdi ég að geta heimilda fyrir þig, Hildur. Afsakaðu það.
Umræddur munur á áhuga kynjanna á kynlífi kemur fram í:
Laumann, E., Gagnon, J.H., Michael, R.T., and Michaels, S. The Social Organization of Sexuality: Sexual Practices in the United States. 1994. Chicago: University of Chicago Press (Also reported in the companion volume, Michael et al, Sex in America: A Definitive Survey, 1994).
54% of men think about sex everyday or several times a day, 43% a few times per month or a few times per week, and 4% less than once a month (Laumann, Gagnon, Michael, Michaels, 1994).
19% of women think about sex everyday or several times a day, 67% a few times per month or a few times per week, and 14% less than once a month (Laumann, Gagnon, Michael, Michaels, 1994).
Kannanir virðast sýna þetta. Þess vegna m.a. er ég alveg tilbúinn að gefa því séns að það sé satt. Ég veit ekki til þess að kannanir sýni þessa hluti sem þú ert að tala um, þeas. þetta með Snickers og fleira, svo ég er ekkert voðalega líklegur til að halda þeim hlutum fram, sjáðu til.
10/09/2011 at 4:09 pm
Það er út af fyrir sig sjónarmið að taka mark á háskólanum í Chicago, en vandamálið er að þér finnst Ellý Ármanns og Tobba Marínós jafntrúverðugar heimildir þannig að enn og aftur, þú veður villu og svíma.
Og þú misskilur hrapallega ef þú heldur að mér sé ekki í sjálfu sér sama hverju þú tekur alvarlega og hverju ekki. Það að þú skulir rökræða við konur um áhugamál okkar og þykjast vita betur er það sem er heimskulegt. Svo vil ég reyndar bæta við að ég held að mjög margir hugsandi, krítískir karlmenn myndu gagnrýna ummæli um að karlar væru upp til hópa áhugasamir um fótbolta. Það að þér persónulega væri alveg sama skiptir engan annan máli en þig sjálfan. Þín afstaða er ekki leiðarljós hugsandi fólks.
Svo ertu nú ekki samkvæmur sjálfum þér. Það sem þú sagðir hér fyrr var að “orð [ellýjar] væru sæmilega sönn” en svo hérna nýlega segirðu:
“Þessi fóbía fyrir þeirri niðurstöðu að konur séu ansi almennt áhugasamari um útlitstengd málefni en karlar er hinsvegar mjög áhugaverð”‘
-Aftur, kjaftæði og ekkert í tengslum við það sem þú ert búinn að vera að bulla. Ásteytingarsteinninn hér er ekki hvort konur séu mögulega áhugasamari um útlitstengd málefni en karlar, samkvæmt einhverjum prósentumun, heldur hvort það sé í alvöru hægt að æla út úr sér svona vitleysu eins og Ellý og Tobba gerðu og þú hamaðist við að taka undir og rökræða, um áhugamál kvenna.
“Ykkur til fróðleiks, þá er ég aðeins að halda því fram að það sé viðlíka eðlilegt að alhæfa frjálslega um að: “allir” karlmenn hafi áhuga á fótbolta, eins og að alhæfa um að: “allar” konur hafi áhuga á miðlun um utlitstengd málefni.”
-Rangt! Lestu fyrri orð þín og það fer kannski að rifjast upp fyrir þér hvaða kjaftæði þú ert búinn að vera að halda fram.
Svo segirðu líka:
“Þessi fóbía fyrir þeirri niðurstöðu að konur séu ansi almennt áhugasamari um útlitstengd málefni en karlar er hinsvegar mjög áhugaverð.”
KJAFTÆÐI!!! Þetta er ekki metingur um hvort kynið er mögulega áhugasamara um einhverja útlitstengda þætti, eins og snyrtivörur, samkvæmt einhverjum mögulegum, ímynduðum prósentureikningum. Þetta er spurning um það hvort það sé hægt að tala um kynlíf, útlit, snyrtivörur og líkamsrækt sem ALLT sem konur hafa áhuga á.
En ég ætla þér nú ekki að vera líklegur til að skilja hvað þú ert að rugla.
10/09/2011 at 5:05 pm
Jæja, nú ertu alveg búinn að missa þráðinn, Hildur.
Þú ert farin að tala um að mér þyki Ellý Ármanns og Tobba Marínós jafntrúverðugar heimildir Chicago háskóli. Það hef ég vitaskuld ekki á nokkurn hátt sagt, heldur þvert á móti alltaf verið að vísa í aðra hluti en orð þeirra sjálfra þeim til staðfestingar (sem frjálslegar ýkjur).
Augljóslega nennirðu ekki að leggja þig fram og það er svo sem skiljanlegt eftir allt þetta tuð okkar.
Gott í bili.
mbk,
10/09/2011 at 5:09 pm
Já, vertu ævinlega blessaður, megirðu eiga bjarta framtíð með krítískri hugsun, sem þú öðlast kannski einn daginn.
10/09/2011 at 5:11 pm
Ég elska þig.
Trackbacks
23/10/2012 at 10:35 pm