Og frú óþreytandi hefur skrifað honum bréf. Best ég birti það hér líka.
Komdu sæll, Heimir.
Á Vísi í dag má lesa frétt eftir þig um að Dominique Strauss-Kahn hafi verið handtekinn fyrir að reyna að nauðga hótelþernu í New York. Undir lok fréttarinnar segirðu lesendum þínum að þetta sé mikið áfall fyrir Strauss-Kahn. Það er áfall fyrir karl að hafa reynt að nauðga konu. Skemmtilega óviðeigandi. Datt þér í hug að velta fyrir þér hvort það hefði verið áfall fyrir konuna að verða fyrir árásinni?
Þú klykkir svo út með því að segja lesendum að Strauss-Kahn hafi áður lent í vandræðum vegna samskipta sinna við konur. Þetta er mesta lítilsvirðing við fórnarlömb kynferðisbrota sem ég hef séð í lengri tíma. Samúð þín í garð brotamannsins er vandræðaleg fyrir þig og ég legg til að þú setjist niður með nokkrum fórnarlömbum nauðgana, óskir eftir því að þau segi þér hvaða áhrif slíkar árásir hafa og veltir í kjölfarið fyrir þér hvort þér þyki viðeigandi að kalla nauðganir eða nauðgunartilraunir samskiptavandræði. Sem menn lenda í.
Ég vona að þú skammist þín og óska eftir því að þú biðjist opinberlega afsökunar á orðalagi þínu og hugsunarhætti.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir












Sunday, May 15th, 2011, 11:23 am | 



21/05/2011 at 5:52 pm
Ég er alveg sammála þér Hildur og þykir bara ekki neitt að því að kalla þann sem skrifar svona fréttir nauðgaravin… Heimir á bara að sjá að sér og biðjast afsökunar. Ánægð með að þú sendir honum bréf!
Sigurður Ómar skrifar: “Ég hef ekki á neinn hátt lagt dóm á hvaða skoðanir Heimir hefur – ég hef bara haft þá skoðun að það sé jafn (og hugsanlega meira) auðveldlega hægt að lesa þessa grein sem hlutlausa grein..”
- Eiga blaðamenn ekki að vera það vel skrifandi að ekki sé hægt að lesa greinar þeirra á marga mismunandi vegu?
21/05/2011 at 8:55 pm
Ég er búinn að skipta um skoðun, Heimir Már Pétursson gerði ekkert rangt. Greinin er kannski illa skrifuð og ég er ósammála orðalagi hans, en ég ætla að verja rétt hans til að skrifa allar þær illa skrifuðu fréttir sem honum lystir.
Hvernig væri að lofa þau viðbrögð sem urðu. Maðurinn var handtekinn. Þessu var ekki sópað undir teppið, sem hefði alveg pottþétt verið gert fyrir 30 árum síðan.
Það eru frábærar fréttir að svona voldugir menn komist ekki upp með svona ofbeldi.
Ég ætla að taka undir orð Kjartans Kjartanssonar og segja að Strauss Khan er meintur nauðgari, en sleppa því að tala um meinta nauðgun. Í augum þernunnar varð hún fyrir nauðgun. Í augum hans er hann saklaus (auðvitað). Í augum réttarkerfisins er hann saklaus uns sekt er sönnuð. Því er best að segja að hann sé meintur nauðgari þangað til dómur lesinn.
Síðan eru líka margir sem halda að þetta hafi verið skipulagt mannorðsmorð, kæmi ekki á óvart.
23/08/2011 at 12:14 am
Meira um samskipti kynjanna:
http://mbl.is/frettir/erlent/2011/08/22/visbendingar_um_kynferdisleg_samskipti/
23/08/2011 at 12:20 am
Fokk. Er þetta þýðing á sexual relations? Það er sossum andstyggilegt orðalag en ekki næstum jafn andstyggilegt og samskipti. Relations bendir til þess að eitthvað hafi farið þeirra á milli, samskipti gefur til kynna að þau hafi gefið hvort öðru eitthvað. Eða hvernig skiljið þið þessi hugtök? Hvernig væri rétt og gott og sanngjarnt að orða þetta?
23/08/2011 at 9:46 am
Já, ég hugsaði einmitt það sama, hvort þetta væri arfaslök þýðing á sexual relations. Og ég er sammála þér með muninn á relations og samskipti. Þó dettur mér ekkert betra í hug, þannig séð (“eitthvað kynferðislegt” eða “kynferðislegt athæfi” hljómar hjákátlegt). Ég skil samt ekki af hverju það má ekki bara kalla þetta það sem það er. Það virðast vera vísbendingar um munnmök. Af hverju segjum við það þá bara ekki?
10/04/2013 at 3:43 am
cmtsolbojolb, Dapoxetine, ExAiAjc, [url=http://www.dapoxetineonlinebuy.com/]Dapoxetine[/url], plNGGSC, http://www.dapoxetineonlinebuy.com/ Dapoxetine canada, aUkHUjr.
10/04/2013 at 3:44 am
ksweplbojolb, Vardenafil structure, ooFYcCU, [url=http://www.vardenafilguide.com/]Vardenafil html[/url], mRYEZOu, http://www.vardenafilguide.com/ Vardenafil vasculitis, qOpPOXG.
10/04/2013 at 3:48 am
wqfgelbojolb, Dapoxetine in india, nBrYrxT, [url=http://www.dapoxetine247.com/]Buy Dapoxetine[/url], LjgeuHT, http://www.dapoxetine247.com/ Buy Dapoxetine, SPbiwZo.
10/04/2013 at 4:15 am
zdraklbojolb, propecia, XHPSqbL, [url=http://propecia-info.net/]G postmessage propecia guest post[/url], pjKaedu, http://propecia-info.net/ Propecia sperm count, qlTiYhF, International reverse phone lookup, LaxzHOE, [url=http://reversephonezambo.com/]Free reverse phone lookup report[/url], WtWzmhH, http://reversephonezambo.com/ Reverse phone lookup 941-749-3800, UFJuUaw, Vigrx user reports, sEeswiH, [url=http://phdofwny.org/]Vigrx safety[/url], uhYQAKk, http://phdofwny.org/ VigRX, VroBwjr, Tramadol, BUkQwSA, [url=http://www.wcsbid.com/]Buy Tramadol[/url], nJerxUt, http://www.wcsbid.com/ Tramadol, itBdKIB, Dog anxiety valium, zRknhLw, [url=http://www.247anxietyblog.com/category/valium]valium[/url], MOBVSFb, http://www.247anxietyblog.com/category/valium Colors of valium pills, oKXzDUc, Phen375 reviews, RPLxqmC, [url=http://phen375-information.com/]Phen375 reviews[/url], uguQfJy, http://phen375-information.com/ Phen375 reviews, GXbgjmc.
Trackbacks
07/07/2011 at 12:06 pm
08/03/2013 at 2:48 pm