1. Mikið djöfull er þetta eitthvað leiðinlegt blogg. Hvernig ætli standi á því? Það er bara allt í einu ógeðslega leiðinlegt. En glatað.
2. Ég gekk ekki með stúdentum á fimmtudaginn til að meðmæla menntun. Það var ekki vegna þess að ég væri á móti menntun, heldur vegna þess að það var ekki gefið frí í tíma fyrir gönguna. Á meðan aðrir stúdentar þrömmuðu um miðbæinn með kröfuspjöld með engum kröfum á, stundaði ég raunverulega námið mitt. Asnar.
3. Ég komst að því í gærkvöldi að októberfest hlýtur að vera ofmetnasta fyrirbærið í háskólalífinu. Þetta var yfirgengilega leiðinleg sjoppa. Djassinn á Nasa, svitinn á Kaffibarnum og kúrið í rúminu var allt saman yfirgengilega miklu betra og skemmtilegra við gærkvöldið heldur en októberfest.
4. Plokkarinn á Hressó er gasalega misgóður. Varið ykkur á því.
5. Rétt í þessu kyssti kötturinn minn mig á nefið. Hmm. Ég veit ekki hvað mér á að finnast um það.
6. Ég er komin með Loftmynd. Alúðarþakkir. Og NÓTA BENE þá á ég hana á kassettu, ég er búin að borga fyrir hana – þetta var bara rafrænt afrit. Pirating IS stealing! Stealing IS illegal!












Saturday, October 14th, 2006, 2:56 pm | 



14/10/2006 at 5:53 pm
Mér finnst asnalegt að meðmæla. Ég tek fólk ekki alvarlega nema það sé tilbúið til að kveikja í einhverju fyrir málstaðinn.
14/10/2006 at 7:12 pm
Á mínu stóð jafnrétti til náms sem mér finnst vera ákveðinn krafa. En ég er sammála Eiríki (sem ég var leiðinlegur við í pirringskasti í síðustu viku) um það að mér finnst “meðmæli” frekar hallærisleg. Ég lét það samt yfir mig ganga og ákvað að það væri betra að vera með í þetta sinn.
15/10/2006 at 1:45 pm
Auðvitað gefur maður ekkert frí þótt einhverjir nemendur vilji „meðmæla“. Alvöru byltingarsinnar geta bara skrópað.
Svo fengum við Sigurður Pálsson ekkert að vita að þetta stæði til. Enda bara vesælir stundakennarar.
15/10/2006 at 2:11 pm
Og þið lesið væntanlega ekki blöðin heldur, enda bara vesælir stundakennarar. Hitt er aftur áhugavert ef einhver hefur raunverulega gefið frí af þessu tilefni. Hvað gæti sá hinn sami verið að segja með því? Ekki mennta ykkur milli þrjú og fimm í dag? Annars var miklu skemmtilegra í tíma hjá SP heldur en í nokkurri ekki-kröfugöngu og ég er viss um að þínir nemendur hafi sömu sögu að segja.
15/10/2006 at 2:58 pm
Nei, ég les ekki blöðin af því að þau eru leiðinleg. Get ekki svarað fyrir Sigurð.