
“Hugtök eins og eignagleði eru góð og gild, en það er bara eins og annað sem vekur hjá manni gleði, hvort sem það er matur, vín eða konur, það þarf að vera hófsemd í þeim efnum til að vel fari. Um leið og græðgin fer úr böndunum þá verður hún mjög til ills, bæði fyrir viðkomandi og allt umhverfi viðkomandi.”
-Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri í viðtali í Kastljósi á RÚV, 3. september 2006. [Leturbreyting mín. Döh.]
Hugsið ykkur eftirfarandi ímyndaða scenaríó: Sama dag og Ríkissjónvarpið varpar drottningarviðtali við Herra Seðlabankastjóra og hann fær í því viðtali niðurgang yfir neysluvöruna konu (eða aðallega sjálfan sig?) á þennan einkar ósmekklega hátt sem lesa má um hér að ofan, þjónar kona Herra Seðlabankastjóra til borðs. Færir honum rjómalagaða sveppasúpu, meyra lambasteik, drykki, súkkulaðiköku og kaffi á eftir. Gengur um beina með bros á vör. Hvern langar að gubba?
Magni. Sko sorrí. Fleiri atkvæði frá Íslandi en í nokkrum alþingiskosningum fyrr eða síðar. Jújú, augljóst – í kosningum má bara kjósa einu sinni (ég þekki reyndar til manneskju sem kaus ákveðinn forseta tvisvar í sömu kosningunum, en það verður ekki rætt frekar á þessum vettvangi) nema þegar einkafyrirtæki græða pening á kosningunum og allt það. SAMT! Ég get ekki sagt ykkur hvað ég roðnaði mikið þegar í ljós kom að eftir hina geyyyypihallærislegu Magna-herferð sem reið yfir landið hafði hann uppskorið miklu fleiri atkvæði en allir hinir. Annars er ég vön að skammast mín ekki fyrir hönd annarra, enda hef ég í nógu að snúast við að skammast mín fyrir minn eigin niðurgang. Þetta var bara eitthvað svo yfirgengilega kjánalegt. Í stuttu máli sagt, Þórdís sagði það á undan mér og því get ég óhrædd sagt það sjálf: Æ dónt giv a ratts ass um rokkstar eða Magna. Því miður. Það gerir mig sjálfsagt að ákaflega lélegum Íslendingi, en svoleiðis verður það bara að vera. Ég hef bókstaflega heyrt fólk segjast vera sérlega stolt af þjóðerni sínu þar sem það deilir því með Magna. Vott ðe fokk?
Eitthvað fleira? Man ekki. Kannski seinna. Judd Nelson dótið var allavega hressandi. Mér finnst Judd Nelson vera mjög kynþokkafullur. Og hann minnir mig á einhvern sem ég kem ekki fyrir mig. Leiðinlegt.
Já og einhverntímann langar mig að ræða muninn á Chippendales og Goldfinger. Og það óþolandi heimskulega viðhorf að þarna sé um sama fyrirbærið að ræða. Og skortinn á umræðu meðal viti borinna um málefnið. En ekki núna, ég þarf að fara að sofa. Væri ljótt að sofna á Sigga Páls á morgun, ha?












Monday, September 4th, 2006, 11:42 pm | 



05/09/2006 at 1:22 am
Þetta var nú bara old school orðalag hjá DO, tæplega sextugum manni sem ábyggilega skilur ekki nema brot af þínum orðaforða enda hátt í 40 ára aldursmunur á ykkur. Ekki reyna að halda því fram að hann líti á konur sem neysluvörur. – Og varðandi Magna, ég hef engan áhuga á honum og þess vegna minnist ég aldrei á hann í mínu endurbætta, hófstillta bloggi.
Og nú geturðu verið brjáluð út í mig líka. Vesgú.
05/09/2006 at 7:56 am
Það tekur því nú tæplega að vera brjálaður út í þig ekki frekar en það tekur því að vera brjálaður út í Davíð, þið eruð álíka karlrembur. Það er mér hinsvegar ljúft og skylt að benda öðrum á ‘litlu’ hlutina sem hafa tilhneigingu til að sitja í kúgaða kyninu.
Það er deginum ljósara Ágúst, af þessum orðum Davíðs, að matur, vín og konur eiga það sameiginlegt að vera munaðarvara karlmannsins sem þeir þurfa að stilla í hóf græðgi sinni gagnvart. Finnst þér þetta í alvöru í góðu lagi? Geturðu ímyndað þér sambærileg ummæli um svertingja í ljósi kúgunarsögunnar? Geturðu ímyndað þér ef hann hefði sagt að það væri nú eitt að vera með svartan þræl (tælenska húshjálp) en maður þyrfti að fara varlega í græðginni í því eins og öðru, annars kæmi það í hausinn á manni? Ég meina komm on! KARLMENN ÞURFA AÐ SÝNA HÓFSEMD Í GRÆÐGI SINNI Í KONUR? Ekki hlutgerving? Ekki neysluvara? Geturðu ímyndað þér stjórnmálakonu láta þessi orð falla um karlmenn? Finnst þér engin vanvirðing felast í þessu? Djöfullinn, þú ert svo mikill asni, ég sem ætlaði ekkert að verða brjáluð út í þig.
05/09/2006 at 9:52 am
Ég hef áður, af einhverjum ástæðum, notið þess að fá útrás fyrir karlrembuna mína hér. Það ætla ég ekki að gera núna.
Ég skil hvað þú meinar (þrátt fyrir að þetta fari full mikið í taugarnar á þér) en meginspurningin er: Er komið fram við þig sem neysluvöru af karlmönnum?
Er það ekki frekar öfugt?
05/09/2006 at 10:17 am
Þetta er fullflókin spurning svona snemma dags Haukur Örn. Þannig er mál með vexti að ég sem kona finn reglulega fyrir hlutgervingu. Engin spurning. Svo gróft dæmi sé tekið kemur það reglulega fyrir (eins og þú hefur vísast orðið viti að) að bláókunnugir karlmenn líti á það sem sjálfsagðan hlut að ég brosi þegar þeim dettur í hug að klípa í rassinn/brjóstið/lærið á mér. Það er nákvæmlega vegna þessa sem mér verður óglatt og upplifi niðurlægingu þegar ég heyri svona ummæli, þetta er eitthvað sem tengist lífi mínu og stöðu minni sem kona svo ofboðslega beint að kannski getur þú aldrei litið öðruvísi á en að þetta séu of harkaleg viðbrögð. Hlutgeri ég karlmenn? Tæplega. Sannarlega ekki meðvitað. Það þarf töluvert mikið meira (og í raun bara eitthvað allt annað) en eitthvað staðlað útlit til þess að ég laðist að karlmanni. Og að horfa á ókunnuga karlmenn allsbera að gera einhverjar kúnstir gerir ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir mig. Ekki einu sinni þótt það væru Clooney og Nelson. Neysluvara? Ég kem ekki auga á þetta.
05/09/2006 at 10:24 am
Nei, konur eru engin munaðaravara. Karlinn missti sig í fornt orðalag, þetta virkaði nánast eins og tilvitnun. – Varðandi Chippendales, jújú, auðvitað eru þeir enginn Gullfingur og því síður einhver hórukassi, ekki er smekklegt að líkja þeim við mansal og kynferðislega kúgun kvenna. EN. Hefði svona fágaður kvenkyns nektardansflokkur komið hingað til lands í sömu erindagjörðum og hefði hann verið kynntur með nákvæmlega með sama hætti – Þá hefði allt orðið brjálað. Meðal annars hefði Hildur tryllst á bloggsíðunni sinni.
05/09/2006 at 2:09 pm
Missti hann sig í orðalag? Hann er að sjálfsögðu að missa út úr sér hluti sem lýsa hans eigin viðhorfi til kvenna fullkomlega. Og það víst ekki í fyrsta skipti, mér skilst að hann hafi komið nokkrum sinnum út úr skápnum sem karlremba eftir að hann hætti í pólitík og þurfti þar með ekki á velvilja þjóðarinnar (femínista) að halda lengur.
Og trúðu mér, kynningin á Chippendales fannst mér óheyrilega sóðaleg og dapurleg jafnvel þótt það hafi ekki komið fram hér. Hitt er annað mál að það er ekki hægt að ræða karlstripp og kvenstripp á sömu forsendunum, málið snýst ekki um það að fólk fari úr fötunum. Eða á a.m.k. ekki að snúast um það. Spörning um samhengi.
05/09/2006 at 3:45 pm
Ég skil þig betur en þú heldur en ég er latur og þreyttu og nenni ekki að pæla og útskýra.
Im Frieden
05/09/2006 at 5:01 pm
Samt er það alltaf rætt á þeirri forsendu að aðalmálið sé að fólk sé að fara úr fötunum. Af andstæðingum, jafnt sem stuðningsmönnum. Að tala um hlutgervingu einhvers sem er konkret-hlutur, líkt og mannslíkami er, er undarleg pæling sem mér virðist fólk oft skella frekar hugsunarlaust fram.
Vinkona mín sagði fyrir skemmstu að það besta við Magna væri að maður gæti loksins aftur haldið með Íslandi, sem hefur eiginlega ekki verið hægt síðan að Jón Páll drap sig.
Hvað varðar Davíð þá er ég að einhverju leyti sammála þér – og þá frekar með það að hann jafni saman víni og konum.
Það er einföld staðreynd að litið er á kynlíf sem neysluvöru – og ég hef aldrei hitt þá manneskju sem á einhverjum tímapunkti hefur ekki einfaldlega bara viljað fá sér að ríða. Og ég vil heldur ekki meina að það sé ekki líka bara eðlilegt. Ég vil í öllu falli ekki að það sé tabú.
Annars skilst mér það séu allir hættir að ríða. Það ku úr móð í 101, og dreifist víst eins og pest um landið.
05/09/2006 at 5:02 pm
Er ljótt að segja að Jón Páll hafi drepið sig? Það er kannski ekki alveg sanngjarnt, þó það sé flugufótur fyrir því.
05/09/2006 at 5:03 pm
Er ljótt að segja að Jón Páll hafi drepið sig? Það er kannski ekki alveg sanngjarnt, þó það sé flugufótur fyrir því.
07/09/2006 at 3:04 am
Og hey, hvað er málið með að vera í fötum? Út af hverju erum við ekki bara öll nakin? Þá þyrftum við ekki að vera að rífast um það hvernig og við hvaða tilefni við myndum afklæða okkur
07/09/2006 at 10:04 am
Lokapunktur inn í þessa málefnalegu og þörfu umræðu:
http://gos.sbc.edu/s/solanas.html
07/09/2006 at 2:43 pm
Hehe. Kjáni.