Reykjavík, 7. júlí 2012
Kæra lögregla.
DV greinir frá því að samkvæmt tilkynningu frá ykkur (sjá hér að neðan) hafi síðastliðin nótt á „Bestu útihátíðinni“ á Gaddastaðaflötum gengið að mestu vel. Þar hafi komið upp tuttugu og fimm fíkniefnamál, ein nauðgun, ein líkamsárás og eitt alvarlegt slys og þó nokkur ölvun hafi verið á svæðinu. Mig langar að koma því á framfæri að í mínum huga heitir þetta að ganga ömurlega. Ekki að mestu leyti vel. Þetta heitir að hátíð sé fullkomlega misheppnuð og skammarleg.
Í tilkynningunni eru tveir menn sagðir vistaðir í fangageymslum. Annar þeirra hefur verið ásakaður um nauðgun og hinn um líkamsárás. Ég fer fram á að embættið svari því til opinberlega hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um að hafa nauðgað og er vistaður í fangageymslu er kallaður „meintur gerandi“ og hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um líkamsárás og er vistaður í fangageymslu er kallaður „gerandi.“ Er það afstaða embættisins að ekki þurfi að sanna brot til þess að menn teljist sekir? Er grundvallarmunur á réttarstöðu grunaðra manna í kynferðisbrotum og í líkamsárásum? Hverju sætir sá greinarmunur sem þið gerið á þessum tveimur mönnum?
Virðingarfyllst,
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir.
„Um 4000 manns á svæðinu í nótt, nóttin að mestu gekk vel. Tveir gista fangageymslur á Selfossi.
Engin ungmenni flutt í athvarf á Hellu.
Vinnuslys varð hjá starfsmanni Paintball á svæðinu í nótt, en hann var að setja þrýstiloft á leiktæki er sprenging varð og fékk maðurinn alvarleg brunasár. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.
Ein nauðgun var kærð til lögreglunnar á svæðinu. Kærandi var fluttur á Neyðarmóttöku fórnarlamba fyrir kynferðisbrot í Reykjavík, meintur gerandi var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. Málið er í rannsókn.
Ein líkamsárás tilkynnt og er gerandi í fangageymslum. Um 25 fíkniefnamál komu upp s.l. sólarhring.
Að öðru leyti hefur hátíðin gengið vel, en þó nokkur ölvun var á svæðinu.“






