Er eiginkonan tryggð?
Poem for Palli VII (Eða: Where Hildur bought Palli)
Mynd: Helgi Eiríkur Eyjólfsson.
Fyrri ljóð:
Poem for Palli
Poem for Palli ii
Poem for Palli iii
Poem for Palli iv
Poem for Palli v
Poem for Palli vi
Hjördís Svan Aðalheiðardóttir
Mál Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur hefur flækst fyrir mér í nokkurn tíma. Það togast á í mér að mér þótti lögregluaðgerðin þar sem börnin voru flutt nauðug frá móðurinni ógeðfelld og skelfileg og síðan að mér hefur ekki fundist ég ekki hafa haft nægilegar upplýsingar í höndunum til að geta tjáð mig. Ég þorði ekki að segja upphátt: „þessi maður er ofbeldismaður,“ og tjá mig svo um annað í málinu út frá þeirri forsendu.
Vera má að það hafi verið rétt metið hjá mér að fara varlega í fullyrðingarnar en eftir að hafa horft á viðtalið við Hjördísi og systur hennar þarf ég ekki að hugsa mig um meir. Þetta er ofboðslegt ranglæti sem virðist eiginlega frekar vera kerfislægt en einhver mannleg mistök. En þarna er auðvitað hellingur af mannlegum mistökum líka og svívirðilegt að þeir sem hafa völd hafi ekki stöðvað þetta.
Þetta er skelfileg, skelfileg saga sem þarf að heyrast sem víðast. Hjördís kemur þessu svo vel frá sér að það er hreint ótrúlegt.
Viðtal við Hjördísi Svan – Fyrri hluti from Pressan on Vimeo.
Viðtal við Hjördísi Svan – Seinni hluti from Pressan on Vimeo.
Um sjálfdauðar stefnur og dauðalista
Fyrir skömmu vaknaði draugurinn frá dauðum. Glæsilegasta kona Íslands, sem ég hirði ekki um að nafngreina, tíndi á lista karlmenn sem hata konur og hefur víst birt hann, enda kveinuðu karlar eins og mýs undir fjalaketti femínismans, vældu í blöðum og báru af sér kvenhatur en sögðu ekki að listinn væri ólöglegur, leifar af anda þeirra miðalda sem leynast með þjóðinni, að viðbættu ofstæki allra isma, hvort sem þeir eru nasismi, kommúnismi eða í listum, innan stjórnmála eða trúmála uns þeir lognast útaf og verða sjálfdauðir.
Opið bréf til lögreglunnar á Hvolsvelli
Reykjavík, 7. júlí 2012
Kæra lögregla.
DV greinir frá því að samkvæmt tilkynningu frá ykkur (sjá hér að neðan) hafi síðastliðin nótt á „Bestu útihátíðinni“ á Gaddastaðaflötum gengið að mestu vel. Þar hafi komið upp tuttugu og fimm fíkniefnamál, ein nauðgun, ein líkamsárás og eitt alvarlegt slys og þó nokkur ölvun hafi verið á svæðinu. Mig langar að koma því á framfæri að í mínum huga heitir þetta að ganga ömurlega. Ekki að mestu leyti vel. Þetta heitir að hátíð sé fullkomlega misheppnuð og skammarleg.
Í tilkynningunni eru tveir menn sagðir vistaðir í fangageymslum. Annar þeirra hefur verið ásakaður um nauðgun og hinn um líkamsárás. Ég fer fram á að embættið svari því til opinberlega hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um að hafa nauðgað og er vistaður í fangageymslu er kallaður „meintur gerandi“ og hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um líkamsárás og er vistaður í fangageymslu er kallaður „gerandi.“ Er það afstaða embættisins að ekki þurfi að sanna brot til þess að menn teljist sekir? Er grundvallarmunur á réttarstöðu grunaðra manna í kynferðisbrotum og í líkamsárásum? Hverju sætir sá greinarmunur sem þið gerið á þessum tveimur mönnum?
Virðingarfyllst,
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir.
„Um 4000 manns á svæðinu í nótt, nóttin að mestu gekk vel. Tveir gista fangageymslur á Selfossi.
Engin ungmenni flutt í athvarf á Hellu.
Vinnuslys varð hjá starfsmanni Paintball á svæðinu í nótt, en hann var að setja þrýstiloft á leiktæki er sprenging varð og fékk maðurinn alvarleg brunasár. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.
Ein nauðgun var kærð til lögreglunnar á svæðinu. Kærandi var fluttur á Neyðarmóttöku fórnarlamba fyrir kynferðisbrot í Reykjavík, meintur gerandi var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. Málið er í rannsókn.
Ein líkamsárás tilkynnt og er gerandi í fangageymslum. Um 25 fíkniefnamál komu upp s.l. sólarhring.
Að öðru leyti hefur hátíðin gengið vel, en þó nokkur ölvun var á svæðinu.“








