Facebookbann og Jakob
Elskurnar mínar allar
Ég get ekki verið með á Facebook – ég er í 24 tíma banni af því að Jakob Bjarnar Grétarsson óskaði eftir því að skjáskot af honum sjálfum og hans opinberu ummælum yrði fjarlægt af síðunni minni. Ég sumsé gerði ekkert rangt, honum tókst bara að fá þetta í gegn. Og það er faktískt ágætt, Facebook mun þá bara trufla mig þeim mun minna í kvöld og á morgun en ég vil samt segja ykkur að ég háskældi eins og ungabarn þegar ég reyndi að lesa upphátt fyrir Palla og Sævar það sem þið höfðuð sett á vegginn minn um viðtalið í kvöld. Takk og takk og takk. Ég get ekki sent skilaboð, ég get ekki skrifað neitt – en hérna get ég sagt takk fyrir mig.
Ég skal ekki segja – Chrome pt. II
En ég fór að ráðum Sveins Birkis, henti Chrome og setti upp aftur þegar í ljós kom að það virkaði ekki að diseibla öll extensionin. Það virkaði. Sumir héldu því fram að þeir sæju ekkert að sumu sem ég birti, ég hef því búið til samanburðarmyndir. 

Nema hvað. Vafrinn hefur krassað þrisvar síðan ég setti hann upp aftur. Hrmpf. Extensionin detta öll út þegar maður hendir vafranum, ég mæli með því að allir geri það annað slagið. Ég var örugglega með 30-40 og þurfti ekki nema kannski átta.
Nei, nú dey ég úr hlátri
Af hverju er ekki öll mannréttindabarátta svona fyndin og skemmtileg? Sidenote: væri hún áhrifaríkari ef hún væri það?
Mig vantar sárlega Chrome-aðstoð
Í vinnunni í gær syncaði ég chromeið mitt. Ég er með vinnutölvu, vinnufartölvu og mína eigin fartölvu, sem er sú eina sem er makki. Vinnufartölvuna nota ég sjaldan en sonur minn notar hana þeim mun meira og hefur sjálfsagt sett ýmiskonar drasl í Chrome sem ég myndi aldrei nota. Nema hvað. Við syncið gerðist eitt í þessari vél sem ég veit ekki hvort gerðist í PC-lappanum en gerðist allavega ekki í makkanum. Sumt letur er vangefið. Það er að segja að það lítur út fyrir að vera með lélegri upplausn. Þetta gerist bara með texta, ekki myndir eða nokkuð annað. Ég hef verið að reyna að finna út úr því hvað einkennir letrið sem breytist en það gengur ekki mjög vel. Hér eru dæmi:
Þarna er allt letur eðlilegt (ég er reyndar búin að stara svo mikið á þetta að ég er ekki lengur viss með “til mín”) nema netfang eiginmanns. Það lítur út eins og það sé í lélegri upplausn. Fleiri dæmi:
Þetta er bara ljótara og feitara og asnalegra letur en venjulega. Eða: eins og upplausnin sé vond.
Þarna eru nöfnin okkar skrítin og allt annað eðlilegt. Nöfnin okkar eiga það sameiginlegt með tilkynningunni um Þórdísi að vera í bláu letri. Fyrst hélt ég að þetta hefði eitthvað með það að gera. En netfangið hans Palla á fyrstu myndinni er svart og er samt fökkd, fyrir utan að like comment unfollow dótið á neðstu myndinni er líka blátt og það er ekki fökkd.
Áðan fékk ég póst sem var í tveimur línum. Í fyrri línunni var netfang sem var svona skrítið (og öll netföng koma svona út á skjánum hjá mér). Seinni línan var svo ekki með neinu nema venjulegum texta en hún kom samt svona furðulega út. Svo prófaði ég að senda sjálfri mér samskonar póst og þar var seinni línan í góðu lagi. Sjá (og ath. það þarf að opna þessa mynd svo munurinn sjáist):
Ég er auðvitað með allskonar viðbætur og drastl í vafranum mínum og man/veit ekkert hvað af því var í hinum tölvunum og ekki í þessari fram að þessu synci í gær. En þetta fer ógurlega í taugarnar á mér. Dettur einhverjum eitthvað í hug?











