Á Facebook er eitthvað verið að ræða um það í samhengi við Nubo og Grímsstaði að Ögmundur Jónasson hafi sannað sig gríðarlega í málefnum hælisleitenda og því sé óréttlátt að saka hann um útlendingafordóma. Bent er á
það sem Ögmundi hafi tekist á stuttum ferli sínum sem innanríkisráðherra: 1) Hann eykur fjárveitingar til hælisleitenda til að bæta vist þeirra hér á landi. 2) Hann stofnar sérstaka nefnd sem á að sjá til þess að stjórnvöld brjóti ekki á mannréttindum hælisleitenda sem koma frá svæðum utan EU (í ljósi slæmrar meðferðar sem mál þeirra hafa hlotið hingað til). 3) Hann stöðvar flutning hælisleitenda til baka til Grikklands, því að komið hefur í ljós að Grikkir fara ekki vel með fólkið. Eru þetta aðgerðir rasista eða útlendingahatara? Þeir sem kalla hann þessum nöfnum, er þeim sama um innflytjendur og hælisleitendur eða á umræða um rasisma aðeins við þegar ríkur gæi á í hlut?
Ég skrifaði athugasemd við þennan status um að mér þætti Ögmundur heldur lélegur í PR væri þetta satt, þar sem allt ofangreint hefði farið framhjá mér. Og svo sagði ég að ég ætlaði að sleppa því að dást að honum fyrr en ég fyndi heimildir fyrir þessu. (Raunar, þótt þetta væri satt, þá finnst mér þetta sjálfsagt og engin sérstök ástæða til að hrósa fyrir það.) Þá kom einhver og sagði mér að ég fylgdist augljóslega ekki með, annars myndi ég vita þetta. Svo ég fór að leita. Niðurstaðan er þessi:
1. Hann jók fjárveitingar til Útlendingastofnunar til þess að ekki þyrfti að segja upp samningi við skítabælið í Reykjanesbæ. Hann sumsé jók fjárvetingar til að viðhalda óbreyttu ástandi. Ekki til að bæta vist nokkurs manns.
2. Ragna Árnadóttir stofnaði slíka nefnd, þess sér hvergi stað á internetinu svo ég viti til að Ögmundur hafi gert nokkuð slíkt. Ég þigg leiðréttingar hafi ég rangt fyrir mér en ég get ekki séð annað en að þessi nefnd hafi einmitt skilað af sér árið 2009, löngu áður en Ögmundur tók aftur við ráðuneytinu.
3. Ögmundur stöðvaði vissulega að svo stöddu sendingar hælisleitenda til Grikklands fyrir réttu ári. Þær höfðu þá viðgengist undir háværum mótmælum og allri gagnrýni svarað með vísun í Dyflinarsamkomulagið – sem gerir enga kröfu til stjórnvalda um að senda hælisleitendur yfirleitt í burtu. Hvað þá til Grikklands. Nema hvað, þegar þetta er ákveðið er það gert VEGNA ÞESS AÐ NOREGUR ÁKVAÐ AÐ GERA ÞAÐ. Og hvers vegna ákvað Noregur það? Jú, vegna tilmæla frá Mannréttindadómstól Evrópu. Mér finnst enginn eiga skilið sérstakt hrós fyrir að fara að tilmælum Mannréttindadómstóls Evrópu.









