Archive for September, 2011

September 28th, 2011

Afmælisgjöfin mín

by Hildur

Viku fyrir þrítugsafmælið mitt sagði maðurinn minn mér að í gær hefði hann hefði pantað handa mér afmælisgjöf en hún þyrfti að ferðast alla leið frá Bandaríkjunum og myndi því ekki ná í tæka tíð fyrir afmælið.

Nú eru liðnir tveir mánuðir og þrjár vikur síðan. Hvenær má ég verða reið skv. reglunum?

Tags:
September 15th, 2011

Meira af fagmennsku á fjölmiðlum

by Hildur

Og hvað birtist ef maður smellir á tengilinn á Daily Mail? Jú, einmitt þetta:

 

 

September 9th, 2011

„Blaðamennskan“ á bleikt.is

by Hildur

Þær eru nú aldeilis hressar. Snemma á árinu gerðist það nokkrum sinnum að upp komu umræður á bland.is um greinar eða önnur skrif á bleikt.is. Í Turninum urðu menn hreint ekki hressir með samstöðu notenda bland.is um að bæta ekki við teljarann á bleikt.is heldur afrita bara textann og geta heimilda. Þeir munu hafa hótað lögsóknum og eitthvað fínerí og nú er það svo að ef notandi á bland.is límir þar inn langan texta af bleikt.is er þeim texta nær umsvifalaust kippt út af vefstjórum.

Sama gerðist þegar sniðugir strákar tóku sig til og smíðuðu forrit sem reyndi að taka texta af bleikt.is og víxla í honum kynhlutverkum. Útkomunni var svo spýtt út á bleikt.tumblr.com sem hefur yfirskriftina bleikur.is. Þetta var mjög fyndin tilraun og ef þessir pistlahöfundar hefðu aðeins meiri húmor fyrir sjálfum sér hefði þeim vafalaust fundist það líka. En svo er auðvitað ekki, þær hótuðu lögsóknum og ein hélt því fram að hún væri single-handedly búin að taka niður er.is (nú bland.is), stærsta spjallvef á Íslandi, þar sem pistill eftir hana hefði verið birtur og hún kært málið (til lögreglu, geri ég ráð fyrir). Þetta var auðvitað mesti misskilningur, er.is hafði einmitt verið lokað vegna þess að bland.is hafði farið í loftið.

Þetta er petty og barnalegt finnst mér en skítt með það ef þetta væri ekki svona ofsalega mikil hræsni líka. Blaðamennirnir á vefnum eru nefnilega svo helvíti duglegir sjálfir við að stela efni af netinu, hráþýða það og birta sem sitt eigið. Dæmin um það eru mýmörg, stundum hafa þær verið böstaðar en stundum finnst ekki heimildin en það má heita augljóst að þýðingin er úr ensku. Hver myndi til dæmis frumsemja svonalagað?

Ég einungis óska hverjum og einum þess að geta upplifað slík tengsl við manneskju sem finnur vonandi gagnkvæmt fyrir því sama.

Gísli Ásgeirsson benti í gær á eitt dæmi um ritstuld pennanna á bleikt.is en fleiri dæmi má finna hér og hér, þarna beinþýðir Klara Egilson grein af Marie Claire, breytir nöfnum kvennanna í viðtalinu, er böstuð af vegiðúrlaunsátri og bætir þá við undir greinina Heimild: Marie Claire. Í staðinn fyrir að segja eitthvað á borð við, tjah, ekkert úr þessum texta kemur frá bleikt.is. Og hvergi kemur fram að þær hafi heimild til að birta þetta efni.

Annað dæmi er hér og hér. Þarna stela þær hugmynd og útfærslu, stytta textann eitthvað en þýða að öðru leyti orð fyrir orð og skrifa svo að myndirnar komi frá smashinglists.com. Ekkert annað.

Hér skrifar Klara Egilson um 9 leiðir til að fletta ofan af framhjáhaldi og notar í innganginum orðalagið Við sóttum fróðleik í kistu nokkra sérfræðinga og tókum saman nokkur helstu vísbendingar um að svo gæti verið ef …. Ekki einnar einustu heimildar getið, svo lesandi hlýtur að gera því skóna að Klara beri alla ábyrgð á þessu. Vill ekki svo til að sama dag birti Daily Mail greinina 12 ways to spot a cheat og segir í innganginum Here, with the help of relationship experts, we reveal the tell-tale signs.

Sama Klara skrifar svo um fimm fáránlega hluti sem karlar gera á Facebook. En viti menn, fyrir röð ótrúlegra tilviljana hafði Cosmopolitan skrifað sama ruslið á undan henni.

En sumsé. Stundum eru þær böstaðar og stundum kippa þær út efni sem hefur verið á vefnum. Til dæmis má smella á ónýt url sem áður voru virk og vísuðu á mjög svo stolið efni. Ég nefni Mýtur í kynlífi, fjórar staðreyndir, en upprunalega fréttin er hér, Af hverju hafa konur ekki frumkvæði að stefnumótum?, Vilja karlmenn í raun grannar konur? og Madonnu/hórukomplex, hvað er það eiginlega?, þeirri grein stálu þær héðan. Þessar greinar eru allar horfnar. Enn er þó ekki horfin svokölluð skyldulesning eftir Önnu Birgis með þessum ómetanlegu línum um notendur spjallsvæðisins sem þá hét er.is:

-Ræna og rupla flottum skrifum og segjast eiga þau sjálf því ef þær/þau geti aflað heimilda þá sé leyfilegt að stunda ritstuld.

-Að afrita heila grein og setja inná annan vef er ekkert annað en ritstuldur. Sitjandi í hallærislegum feluleik bak við tölvuskjá og dulnefni og ræða um greinina eins og hún sé þín eigin. Reyna svo að réttlæta þennan stuld og bera hann saman við það að niðurhala efni af netinu eða nota bækur og annað efni til að skrifa ritgerðir.

Feitletrunin er mín, ég gat ekki valið úr þessari snilld orð til að feitletra. Að ritstuldinum undanskildum er eitt sem starfsmenn bleikt.is sérhæfa sig í og það er að forðast gagnrýni, rökræður, samtal um vinnubrögð þeirra og meiningar. Þær ástunda mjög stranga ritskoðun á Facebook-síðunni sinni. Ef maður hlýðir þessum fyrirmælum, sem koma fram undir öllum færslum á vefnum:

og reynist svo hafa skoðanir sem ekki eru starfsfólki bleikt.is þóknanlegar, þá er manni umsvifalaust eytt af listanum yfir fólk sem hefur lækað bleikt.is, ummæli manns eru þurrkuð út og svo er lokað á mann. Þannig hefur, bara í dag, farið fyrir sjálfri mér, áðurnefndum Gísla Ásgeirssyni, Hildigunni Rúnarsdóttur, Kristínu Jónsdóttur og Helgu Þóreyju Jónsdóttur. Hér eru dæmi um hluti sem voru á Facebooksíðu bleikt.is áðan og eru þar ekki lengur:

[Uppfært kl. 16.46. Þessi síðasta mynd hér að neðan virðist enn hanga inni á Facebooksíðunni. Sjáum hvað setur. Hinar hafa verið teknar út.]

Dæmin eru fleiri, ég veit að Gísli Ásgeirsson lumar á nokkrum skjáskotum, kannski bæti ég þeim við hér þegar og ef hann hleypir mér í þau. Punkturinn er í öllu falli sá að starfsfólk bleikt.is stundar ritstuld en er samt eindregið mótfallið honum, aðhyllist og stundar ritskoðun og er hræsnarar. Það er ekki eina ástæðan fyrir því að ég er á móti þessum ógeðslega vef en það er sannarlega ein af þeim. Þeim er tíðrætt um að þær verði fyrir gríðarlegu áreiti öfundsjúkra kvenna sem þrá ekkert heitar en að ná sama undraverða árangri og þær hafa gert. Ég skrifa þetta sérstaklega í þeim tilgangi að benda þeim á að ástæðurnar fyrir því að ég þoli þær ekki eru allt aðrar og hafa hér með verið rækilega rökstuddar. Takk fyrir mig.