Archive for August, 2011

August 30th, 2011

Dísan mín

by Hildur

Hafdís Eyjólfsdóttir varð vinkona mín fyrir tveimur árum. Það gerðist á undraverðum hraða og á tíma í lífi okkar þar sem hvorug okkar átti sérstaklega von á því að eignast nýjar vinkonur. Við vorum nefnilega orðnar svo gamlar. Í dag líður mér stundum eins og ég gæti ekki lifað án hennar. Og mér finnst einstaklega gaman að eiga vinkonur sem geta hlegið með mér að bröndurum eins og þessum, sem ég handföndraði í mspainterbestivinurminn á svona sex klukkutímum. Orðin eru öll tekin úr fréttum DV. Myndirnar eru úr einkasafni.

Hafdís Eyjólfsdóttir

August 30th, 2011

Bréf til pabba

by Hildur

Mig dreymdi að þú hefðir boðið okkur í morgunmat. Svo mættum við og þú varst með gamalt brauð og smjör og ekkert annað. Ég þurfti að skreppa eitthvert og kom við í gourmet-bakaríi í Mjóddinni og var að raða allskonar gúmmelaði ofan í körfu þegar þú hringir, segist hafa reynt að ná sambandi við mig í gegnum allskonar tæki og tól á netinu en ekkert hafi gengið. Nú sértu kominn með mig í símann og þú viljir bara segja mér að ég sé sjálfselskur og eigingjarn drullusokkur, að ætla mér að mæta með nesti þegar þú ert búinn að bjóða mér í mat. Ég fór að gráta og þú öskraðir og svo skellti ég bara á til að geta haldið áfram að gráta í friði. Þannig var nú það.

73,
dóttir.
August 22nd, 2011

Af því að ég er haldin stjórnlausri pexnáttúru …

by Hildur

Eva Hauksdóttir ber saman viðbrögð sjónvarpsstjóra Skjás eins við hugmynd og tilboði Maríu Lilju Þrastardóttur við viðbrögð bókaforleggjara við J.K. Rowling þegar hún vildi gefa út Harry Potter.

Góð pæling hjá Evu, allt ljómandi fínt. Nema hvað. Kristinn Theódórsson (sem lesendum þessa bloggs er hugsanlega vel kunnur) gerir í kommentakerfinu að umræðuefni að hugsanlega séu helstu áhugamál kvenna útlit og föt. Máli sínu til stuðnings nefnir hann greinasafn sem hann fann hér. Hann segir þessar greinar allar vera skrifaðar af konum um konur fyrir konur og segir þær allar fjalla um útlit og föt. Nú má vera að hann hafi fengið upp annað greinasafn en ég á þessari slóð en ég ætla að renna yfir topp tíu listann og kanna hvar ég finn femínisma og hvar ég finn áherslu á útlit og föt. Svo ætla ég að fara út og læra hugleiðslu svo ég geti æft mig í að heyra ekki í Kristni Theódórssyni þegar hann byrjar að ræða við mig í kommentakerfinu.

1. Modesty – What Does It Mean? Þarna fjallar greinarhöfundur um hugtakið modesty og biflíulegan skilning á því. Almennt sýnast mér þetta vera hugleiðingar um hvað sé guði þóknanlegt hvað varðar hegðun, atferli og framkomu, þ.m.t. eru vissulega klæðaburður, skartgripir, hárgreiðsla og förðun, en útgangspunkturinn er hófsemi og hógværð, hversu eftirsóknarverðir eiginleikar það eru og hvaða birtingarmyndir þeirra eru æskilegar.

Enginn fær stig þarna, þetta er eitthvurt Jesúdót sem ég gæti örugglega ekki lesið þótt ég vildi það.

2. Dressing Tips for Petite Girls Án nokkurs vafa pistill sem fjallar einungis um útlit og föt.

Útlit og föt 1 stig.

3.  A Bra That Fits Correctly – Do You Know What To Look For? Ég fræði lesendur mína hér með um að það að ganga í réttri stærð af brjóstahaldara er rosalega mikið mál. Útlitið er faktor þar hjá sumum konum, þar gildir það sama og um önnur föt sem passa ekki á mann, það er asnalegt. Alvarlegri hlið þessa máls er að það er heilsuspillandi að ganga í vitlausri brjóstahaldarastærð. Það var þjóð(/heims-?)þrifaverk að skrifa þessa grein og minnir mig á að bráðum ætla ég að birta hérna pistil eftir sjálfa mig um sama málefni.

Ég er höll undir að gefa stig fyrir femínisma, en af ótta við að gefa höggstað á kerfinu mínu stilli ég mig um það. Þessi grein fær samt sérstakt kúdos fyrir að fjalla á greinargóðan hátt um mikið hagsmunamál kvenna. Sérstaklega júllumikilla kvenna eins og undirritaðrar. Á sama hátt gef ég ekki stig fyrir útlit og föt, þetta snýst um heilsu, lífsgæði og velferð kvenna.

4. Life Begins At Sixty Uppörvandi og jákvæð grein eftir konu sem nýtur þess að eldast og vill draga úr ótta annarra við það. Vel gert, gott mótvægi við æskudýrkun og innprentun klikkaðra hugmynda í konur um hvernig þær eiga að vera.

Femínismi 1 stig.

5. Beating Sexual Harassment Þessi titill er mjög lýsandi fyrir innihald greinarinnar, í henni er konum kennt að bera kennsl á kynferðislega áreitni þegar þær verða fyrir henni og bent á áhrifaríkar leiðir til að bregðast við. Segir það ekki margt um viðhorf sumra karla að þeir lesi út úr þessu grein sem fjallar um útlit og föt?

Femínismi 1 stig.

6. Emma Watson’s Fashion Style So Far Aftur: vissulega útlit og föt eingöngu.

Útlit og föt 1 stig.

7. Women’s Revolution of the 21st Century Gripið niður hér og þar í sögu kvennabaráttunnar á 20. öld, farið lauslega yfir afleiðingar kúgunar kvenna og endað á hugvekju og hvatningu til kvenna um að ýta úr vör byltingu, nýta farveginn til að breyta heiminum. Föt og útlit? Er þetta grín?

Femínismi 1 stig.

8. Barbie Designer Christian Dior Blah. Titillinn segir það allt, þessi grein fjallar um Barbie og Christian Dior.

Útlit og föt 1 stig.

9.  Boudoir Photography – Why British Women Are Stripping Off for the Camera Þessi grein fjallar um fyrirbæri sem er líklegt til að vera þrætuepli meðal femínista, er aldeilis ábyggilega mjög umdeilt en einhverjir myndu halda staðfastlega fram að væri mjög jákvætt fyrir konur. Hún fjallar semsagt um erótíska ljósmyndun á konum sem ekki eru fyrirsætur. Hugmyndin er að vekja athygli á þeim möguleika fyrir meðalkonuna útí bæ að eignast elegant/smekklegar/sexí ljósmyndir af sjálfri sér þar sem aldri hennar, keppum, hrukkum og kílóum er fagnað fremur en að það sé eitthvað til að skammast sín fyrir. Þetta er semsagt How to look good naked pælingin og ég held að femínisminn megi alveg fá hér eitt stig og föt og útlit annað.

Femínismi 1 stig/Útlit og föt 1 stig

10. Women’s Self-Esteem Is Targeted by Advertisers Hér er deilt á þau viðstöðulausu skilaboð til kvenna að til þess að þær geti verið ánægðar með sjálfar sig þurfi þær að vera meira svona eða hinsegin og eignast þetta eða hitt. Skilaboðin frá greinarhöfundi gætu ekki verið skýrari: We need to know, really know that we women are good enough EXACTLY the way we are.

Femínismi 1 stig.

Semsagt. Tíu greinar, þar af fær femínismi fimm stig og útlit og föt fá fjögur. Over and out, farin að læra hugleiðslu og slökun og jóga eða eitthvað.

August 3rd, 2011

Íslandsmet í að vera ömurleg manneskja

by Hildur

Þegar séra Örn Bárður var í framboði fyrir stjórnlagaþing hitti ég konu sem skalf af hneykslun og bræði. Hún sagði mér að vinkona hennar hefði verið að koma úr jarðarför í Neskirkju. Í erfinu var borð með hvítum dúk og kerti og mynd af hinum látna, eins og gengur, og við hliðina á myndinni var bunki af auglýsingum fyrir framboð Arnar.

Ég átti bágt með að taka þessa sögu alvarlega (og trúi þó ýmsu upp á Örn), einfaldlega vegna þess að ég gaf mér að svona ömurlegir gætu menn bara ekki verið. Í dag finnst mér þessi saga vel geta verið sönn. Eftir að hafa lesið minningarorðin, ræðuna sem séra Örn Bárður flutti við útför Sævars Ciecielski í gær, skil ég einmitt að menn geta auðveldlega verið svona ömurlegir. Ýmsir hafa sveiflað sér dálítið hátt á andláti Sævars en það sem Örn Bárður gerði í gær er ósmekklegasta stönt sem ég hef nokkurn tímann séð. Lesið í heild hér en hér eru ELLEFU tilvitnanir:

„Hann var kistulagður á föstudaginn var, sama dag og frumvarp að nýrri stjórnarskrá var afhent Alþingi.“

„Til þess að hér verði færri einstaklingum fórnað á altari vanrækslu, fordóma og mannvonsku þarf að setja nýjar leikreglur og skapa hér réttlátt samfélag.“

„Ég minntist á nýja stjórnarskrá. Hún geymir mörg merkileg ákvæði sem hefðu glatt Sævar. Ég leyfi mér að lesa fyrir ykkur upphafsgrein …“

„Og heyrið hljóminn í þessari grein: …“

„Greinar um rétt barna er að finna í texta frumvarpsins sem eiga að tryggja að tekið sé tillit til barna …“

„Í frumvarpinu eru einnig ákvæði um að stjórnvöld veiti upplýsingar og opni aðgang að skjölum.“

„Þjóðfélag okkar þarfnast nýrrar og framsækinnar stjórnarskrár …“

„Í frumvarpinu að nýrri stjórnarskrá segir: …“

„Ég fullyrði að texti frumvarpsins að nýrri stjórnarskrá sé stórmerkur að inntaki og markmiði. Kaflanum um dómsvald er ætlað að tryggja …“

„Ég skora á ykkur sem hér eruð saman komið að kynna ykkur frumvarpstextann og taka honum fagnandi. Ísland þarf nýjar leikreglur fyrir upprisuna sem nú er í vændum og ég skora á allt gott fólk að tala máli nýrrar stjórnarskrá og leggjast á árarnar með okkur sem rituðum textann og sigla honum í vör með taktföstum áratökum.“

„Við sem eftir lifum skulum ganga út í sumarið með von í hjarta, von um nýja framtíð í anda aðfaraorða nýrrar stjórnarskrár sem hljóðar svo: …“