Archive for December, 2010

December 21st, 2010

Góð hugmynd: hórmangari og eiturlyfjasmyglari hetja ársins

by Hildur

Þetta er stórkostlegt. Takk, Jakob. Þú ert að standa þig, strákur.

Ég bendi á að dómur hæstaréttar yfir Catalinu er á internetinu. Þar segir m.a.:

Þegar litið er til alls framanritaðs og einnig til vættis vitnanna L og M um hótelpantanir og hringingar konu, sem talaði íslensku með erlendum hreim, vegna tveggja væntanlegra kvenna 11. og 12. apríl sl., og þess sem áður er rakið að hringt var á þessum tíma úr síma ákærðu í tvö hótel hér á landi til að panta hótelherbergi fyrir tvær konur og síðan ítrekað spurst fyrir um þær, þykir fram komin sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, um að ákærða hafi staðið að innflutningi á samtals 353,29 g af kókaíni sem framangreindar B og C fluttu til landsins 12. apríl sl.

og svo

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 er heimilt að láta þann sem ábyrgð ber á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu annars manns greiða miskabætur til þess sem misgert var við. Ákærða hefur verið sakfelld fyrir að hafa haft viðurværi sitt af vændi framangreindra þriggja kvenna og fyrir að hafa haft milligöngu um að fjöldi manna hefði samræði eða önnur kynferðismök við þær og jafnframt auglýst vændi þeirra og óskað eftir kynmökum annarra við þær gegn greiðslu. Í almennum athugasemdum að frumvarpi því er varð að lögum nr. 61/2007, en með þeim var ákvæði 206. gr. almennra hegningarlaga m.a. breytt í það horf sem nú er, kemur fram að löggjafinn leggi áherslu á að í milligöngu um að aðrir hafi holdlegt samræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu felist misnotkun á félagslegri, andlegri eða líkamlegri neyð annarrar manneskju einkum í hagnaðarskyni. Engin efni eru til annars en að líta svo á að þessi aðstaða sé hér fyrir hendi og að í broti ákærðu hafi falist slík misnotkun gagnvart þeim þremur konum sem hér eiga hlut að máli. Er það að þessu virtu mat dómsins að ákærða hafi gerst sek um ólögmæta meingerð gegn persónu framangreindra þriggja kvenna ogað skilyrðum 26. gr. skaðabótalaga fyrir greiðslu miskabóta þeim til handa séu þannig uppfyllt.

.

December 21st, 2010

Það gerist aðeins

by Hildur
ÞAÐ GERIST AÐEINS
.
Það gerist aðeins:
þú hættir að vera lífstíðarfanginn
sem lætur sig stöðugt dreyma
hann sé að þvo bílinn sem ekkjan á enn í dag
.
Það gerist aðeins:
þú verður einmana drangur í fjarðarmynni
og átt þér ekki sögu svo stappar nærri
að vanti einstakling að ljúga einhverju til
.
Það gerist aðeins:
þú verður fljót sem breytir um farveg
þegar það getur ekki munað hvar það rann
síðasta árþúsundið
.
Það gerist aðeins:
milli heims og helju sérðu djarfa fyrir landi
sem er greinilega ort af einhverju
sem á ekki yfir það orð.
.
Vésteinn Lúðvíksson, úr Sumir láta einsog holdið eigi sér takmörk
.
December 20th, 2010

Hvenær nauðgar maður konu og hvenær nauðgar maður ekki konu?

by Hildur

Vinstrifemínistarnir í Bandaríkjunum eru að hnakkrífast um Julian Assange og kynferðisbrotaásakanirnar á hendur honum. Það er svakalegt að fylgjast með þeim umræðum og borðleggjandi að dýrkunin á mr. professional creep og sú ranghugmynd vinstrisins um víða veröld að hann sé einhverskonar nútíma spámaður, vegurinn, sannleikurinn og lífið, hefur mikil áhrif á afstöðu margra femínista til kæruefnanna.

Ég las þessa grein eftir Naomi Wolf þegar hún var birt, fyrir um hálfum mánuði síðan, og var sæmilega impressed og sammála.  Gerði læk á FB og svona. Tvítaði henni kannski. En síðan þá hafa ásakanirnar á hendur Assange skýrst nokkuð, The Guardian birti lýsingar á brotunum fyrir helgi eftir leka hjá sænsku löggunni (sem mér skilst að lögfræðingur Assange sé voðalega reiður yfir – say what now?), og í mínum huga er það alveg á hreinu að það á að framselja manninn til Svíþjóðar og rétta yfir honum þar verði hann ákærður. Nauðgun verður ekki minni nauðgun ef móðir Teresa fremur hana. Barátta Naomi Wolf er sorgleg og ég meina það í bókstaflegri merkingu þess orðs. Dapurleg, eins og í: gerir mann dapran. Hún á að vita betur.

Hún var á rökstólum með Jaclyn Friedman (sem er mjög hardkor töffari) á Democracy Now fyrr í dag. Mér hefur ekki tekist að horfa á það ennþá en Jaclyn hefur tvítað sex eða sjö sinnum síðan þessu lauk, fyrir svona korteri. Meðal þess sem hún hefur sagt um málflutning Wolf er:

I’m back. That was so upsetting — could not believe she would claim repeatedly that the acts described was consensual. Angry and shaken.

Not sure where it’s going to air, but we did a part 2 & she claimed the allegations describe “a model sexual negotiation.”

Ég semsagt get ekki spilað vídjóið ennþá, hlakka mikið til að koma því í lag, hvort sem vandamálið liggur hjá mér eða DN, en það er þegar komin bloggfærsla um málið og eftir því sem ég kemst næst er alveg á tæru að Wolf heldur því fram að atburðirnir sem um ræðir geti ekki talist nauðgun vegna þess að fórnarlömbin hafi ekki sagt nei. Þetta er svo rangt að það er snarbilað. Hafið í huga að hér er ekki um að ræða hjón heldur tvær ókunnugar manneskjur. W býður Assange með sér heim, þau byrja að stunda kynlíf, hún biður um að notaður sé smokkur, hann er á móti því, hún fer ekki ofan af þeirri kröfu og hann missir áhugann og fer að sofa. Hún vaknar, fer á fætur, fer aftur í rúmið. Þá gerist þetta:

She had awoken to find him having sex with her, she said, but when she asked whether he was wearing a condom he said no. “According to her statement, she said: ‘You better not have HIV’ and he answered: ‘Of course not,’ ” but “she couldn’t be bothered to tell him one more time because she had been going on about the condom all night. She had never had unprotected sex before.”

Tekið héðan.

Hafði maðurinn kannski ekki grundvöll eða nægilega góða ástæðu til að gefa sér að W langaði ekki til þess að hann riði henni smokklaus meðan hún svaf? Jafnvel þótt hann hefði verið með smokk; það er nakin ókunnug kona við hliðina á þér þegar þú vaknar, þið hafið gert tilraun til samræðis sem hefur farið út um þúfur vegna ósættis, dettur einhverjum í hug að það sé í lagi að þú bara troðir þér inn í hana? Að upplýstir og áhrifamiklir femínistar skuli halda því fram að þetta sé ekki nauðgun gerir mig mjög dapra. Bara mjög.

December 20th, 2010

spamkommentin hérna …

by Hildur

… gera ráð fyrir að ég þurfi að jafna mig á sambandsslitum við einhvern gamlan elskhuga, vilji gjarnan skoða mikið af klámi og þjáist af hárlosi eða -missi. Hárlos er þegar það losna oft stök hár en hármissir er þegar maður verður sköllóttur. Allir sammála um það?

Annars hef ég eftirfarandi að segja:

a) Mér finnst Julian Assange heiftarlega krípí og ég held einungis takmarkað með honum. Hann er ákærður fyrir kynferðisbrot í Svíþjóð sem heita í ákærunum einhverjum allt öðrum nöfnum en nauðgun en eru í eðli sínu ekkert annað. Þegar manneskju er haldið niðri og hafðar við hana samfarir gegn vilja hennar er það í öllum tilfellum nauðgun. Og að hlusta á fólk fussa og sveia og halda því fram að það geti nú varla talist gróft kynferðisbrot að nota ekki smokk er ógeðslegt. Mér finnst þessi blinda dýrkun á honum ógeðsleg og ég skil ekki hvers vegna hann þarf bara að sæta gagnrýni frá lafhræddum hægriöflum sem eiga leyndarmál sem þeim er annt um. Lesið þessa grein.

b) Ég hlakka alveg svona lala til jólanna og hef ekki verið svona lítið stressuð fjórum dögum fyrir jól í mörg ár.

c) Í nóvember og desember prófarkalas ég handrit að bók eftir Bjarka Valtýsson. Sú mun heita Íslensk menningarpólitík og stefnt er að að koma henni út hjá Nýhil fljótlega upp úr áramótum. Hún er góð, hún skiptir máli og ég mæli með að þið lesið hana.

d) 0,34% allra hryðjuverka í Evrópu árið 2008 voru framin í nafni Islam. Lesið þessa grein. Án djóks. Hún er góð. Segjum þetta gott. Back to fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011; síðari umræða.

December 3rd, 2010

Hildur hvílir augun í samkvæmi …

by Hildur

Gin og tónik er kannski bara svona svæfandi drykkur.

..

December 2nd, 2010

Endurvakið rant um Tómas Guðmundsson og samkalla hans

by Hildur

Ég ætla að endurbirta hérna bloggfærslu frá því haustið 2008, af því tilefni að nú hefur helvítis styttan af kallinum verið afhjúpuð. Færslan fjallaði reyndar fyrst og fremst um gegndarlausan hroka Egils Helgasonar í garð Reykvíkinga sem ekki voru á sama máli og hann, en mögulega má lesa á milli línanna eitthvað um það hvers vegna stytta af Tómasi Guðmundssyni er mér á móti skapi.

Ég varpa fram spurningu. Hvað felst í því að yrkja fallega um konur?

Konan sem Tómas Guðmundsson dreymdi um var fjarskalega ung, saklaus björt og hrein. Er það svoleiðis sem konur eiga að vera?

Stúlkurnar sem sprönguðu um Austurstræti voru hvítklæddar og hæfilega viðmótsþýðar.

Eru þetta konurnar sem átt er við? Eða er Egill Helgason að vísa til stúlkunnar í ljóðinu Seytján ára sem vissi ekki að hún væri unnusta ljóðmælanda, og virtist ekki eiga heimtingu á þeim upplýsingum?

Eða eigum við ræða eitthvað um hana Eygló?

Og æskan ljómar enn um mig ! -
En, Eygló, hvernig fór um þig?
Þín elli óðum hefst !
Því þú ert gift og þú ert breytt,
og þú átt framar ekki neitt,
sem aðeins eitt sinn gefst.

Ljóð Tómasar skreyta þegar útveggi Ráðhúss Reykjavíkur auk þess sem brjóstmynd af honum prýðir Borgarbókasafnið. Sumum þykir meira en nóg um, aðrir vilja meira. Gott og vel. Að halda því fram að það sé ekkert karllægt við það að bunki af köllum vilji láta reisa þriðja stóra, dýra, drumbslega og áberandi minnismerkið í borginni um þennan samkall sinn, er einkennilegt.

Sé einhver ósammála Agli Helgasyni um ágæti þeirrar hugmyndar að reisa þessa styttu hefur sá hinn sami gert sig sekan um að skilja ekki bókmenntir. Enn og aftur hefur Egill tyllt sér í dómarasætið, sveiflað hamrinum og skorið úr um réttmæti skoðana okkar á listum. Við töpum. Hann veit og hann dæmir þá úr leik sem ekki vita það sem hann veit.

Eru hrokanum engin takmörk sett? Ég skil Tómas. Afar vel. Ég las hann spjaldanna á milli á gelgjunni og hann á meira að segja nokkur ljóð sem mér þykja ennþá falleg. Ég er ósammála honum um margt og hef óbeit á honum fyrir sumt en ég skil hans bókmenntir afar vel, enda þarf ekki mikið meira en lágmarks lesskilning til þess að botna í honum.

Enn einkennilegra er að halda því fram að Tómas Guðmundsson hafi séð Reykjavíkurborg á undan öllum öðrum. Hvað felst í því að sjá borg? Að sjá það sem maður vill sjá? Eða veit Egill Helgason ekki hvers konar ástand ríkti í þessari borg eins og annars staðar þegar Tómas  blómakjóla og fiðrildi í hverju horni?

sjá sá, sáum, séð
1 skynja með augunum [einungis það sem er þægilegt].

December 1st, 2010

ÓKEYPIS, FRÍTT, GJÖF, ÞARF EKKI AÐ BORGA, ÉG SEGI ÞAÐ SATT

by Hildur

Hann frelsaði mannkyn en sá aldrei snjó

Gleðilegan desember, börnin góð. Ég held ég hafi sagt/gert þetta áður en það er þá bara betra. Þetta má verða að aðventuhefð fyrir mér, a.m.k. að óbreyttu. Auglýsing, án þess að ég eða nokkur mér tengdur eigi hagsmuna að gæta:

Hér fæst uppáhaldsjólaplatan mín ókeypis. Hún er með hljómsveitinni Teinum, heitir Svarthvít jól og er óskaplega falleg. Í Teinum eru meðal annarra bræðurnir Hermann og Jón Hallur Stefánssynir.