Archive for November, 2010

November 26th, 2010

Mikilmennskubrjálæði?

by Hildur

Því er haldið fram á Facebook að Jakob Frímann Magnússon hafi sagt á ÍNN að ekkert í heiminum væri meira gúglað en “Icelandic music”. Það er helvíti gott hjá honum. Hér er mynd. Jájá.

..

Tags:
November 25th, 2010

Brandarakall II

by Hildur

og svo …

Hann er svo sætur.

..

Tags:
November 25th, 2010

Þess vegna er Óli Sindri vinur minn

by Hildur

Hann er bara svo mikið gaman. Svo er hann líka allskonar annað en hann veit það vel sjálfur.

Annars datt mér ein saga í hug rétt áður en ég ætlaði að birta þessa mynd. Einu sinni birti ég sambærilega mynd af já.is-skráningu annars manns á þessum miðli en sá maður á það sameiginlegt með þessum að hafa til lengri tíma haldið úti vinsælli bloggsíðu undir öðru nafni en sínu eigin. Hann hafði staðið í miklu stappi við símaskrána til að fá það í gegn að vera skráður útrásarvíkingur.

Pallih, einhver manneskja á internetinu sem ég kannaðist eiginlega ekkert við, kommentaði hérna um að maðurinn á já.is-skjáskotinu væri einmitt maðurinn á bakvið leynibloggið. Þetta var auðvitað langverst geymda leyndarmál á Íslandi en ég kunni samt ekki við að leyfa því að standa.

Ég eyddi því svona korteri eftir að það birtist en þetta korter dugði Jakobi Bjarnari til að lepja þetta upp og setja í eitthvert slúðursandkorn í Fréttablaðinu – sem enn hýsti hann á þeim tíma. Þar vorum við útrásarvíkingurinn nafngreind, sem og alteregóið á blogginu hans, en hvergi minnst á pallah. Rétt rúmlega ári síðar (raunar ári og hálfum mánuði) giftist ég svo þessum sama Palla og í næsta mánuði eigum við eins árs brúðkaupsafmæli.

Jájá, þá vitið þið það.

Tags:
November 25th, 2010

Einnig frá STERK – gegn mansali

by Hildur

Traustvekjandi.

..

November 25th, 2010

Hver þarf heimildir sem hefur TÖLUR

by Hildur

Það fer rosalega í taugarnar á mér þegar fólk heldur að það sé góð hugmynd að gefa upp villandi og jafnvel rangar tölur og upplýsingar til stuðnings góðum málstað. Það skemmir fyrir. Ok? Þ a ð  s k e m m i r. Fávitar.

Og já, þetta á líka við um fátækrasamtökin Bót og þetta heimskulega vídjó sem gengur út frá því að einstætt tveggja barna foreldri á framfærslu sveitarfélags fái ekki meðlag, ekki barnabætur, húsaleigubætur LANGT undir raunveruleikanum og þurfi að kaupa einn kexpakka á dag, pakka af kjúklingabringum reglulega og  þrjá pakka af hafragraut á dag eigi allir á heimilinu að geta fengið morgunmat. Ég veit ekki einu sinni hvað pakki af hafragraut er. Read my lips: Þ e t t a  s k e m m i r. Raunverulegu tölurnar eru alveg nógu slæmar, það s k e m m i r þegar baráttufólk fyrir málstað lýgur. Fávitar.

..

Tags:
November 24th, 2010

Gunnar Rúnar og allar þessar spurningar

by Hildur

Hvernig stendur á því að lögreglan er ekki brjáluð yfir þessum leka? Af hverju er enginn brjálaður yfir þessum leka nema verjandi mannsins? Hefur einhver aðgang að þessari skýrslu, annar en saksóknari, verjandi og lögreglan? Miðað við að það sé rétt hefur lekinn komið frá ríkinu. Rétt upp hönd sem finnst það ásættanlegt að ríkið leki viðkvæmustu stund lífs þíns í fjölmiðla. Hvað segir Persónuvernd? Af hverju er enginn að tala um þennan ógeðslega skandal? Er birting þessara gagna ekki ólögleg? Er enginn að tala um að kæra miðlana sem birta þetta? Þið megið byrja að svara núna, takk.

..

Tags:
November 24th, 2010

Nei, nu stopper festen.

by Hildur

Ég trúi því varla að ég sé að lesa þetta. Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur sent foreldrum í hverfinu mínu viðvörun vegna manns sem vinkaði lítilli stúlku. Hann vinkaði henni. Út um gluggann. Svo keyrði hann áfram. Keyrði í burtu. Hún varð hrædd.

Ég veit ekki … Ég veit í alvöru ekki hvað ég á að segja. Ha. Krakkar. Ég veit ekki hvort ég á að fá óstöðvandi hláturskast eða bara leggjast í gólfið og grenja. Þvílíka djöfulsins andskotans firringin.

Af gefnu tilefni viljum við biðja ykkur um að brýna fyrir börnum ykkar að fara ekki uppí bíla eða ræða við ókunnuga aðila. En tvö slík tilvik hafa komið upp í okkar hverfi í haust, nú síðast fyrr í dag.

ÞAÐ KOM EKKI UPP NEITT TILVIK. BARNI VAR VINKAÐ. ÞAÐ TELST VARLA SEM ATBURÐUR. ERU ALLIR ÍSLENDINGAR MEÐ HÖFUÐIÐ Á BÓLAKAFI Í RASKATINU Á SÉR?

Eru það glæpasamtökin Blátt áfram sem bera ábyrgð á þessu? Eða er það kannski bara fullkomlega eðlilegt að börn óttist karlmenn fyrir það eitt að vera karlmenn? Ættum við kannski að hætta að leyfa körlum að fara út nema með sérstöku samþykki frá sveitarfélaginu?
..

November 23rd, 2010

Mikið er fallegt veður. No homo.

by Hildur

Ég gleðst óskaplega yfir því þegar mannréttindabarátta er fyndin og skemmtileg. Ég heyrði sagt frá því á dögunum að nokkrir vaskir femínistar í Reykjavík hefðu velt upp hugmyndinni um að reisa styttu af konu og koma henni fyrir niðri í bæ án þess að hafa fyrir því leyfi. Fylgjast svo með borgaryfirvöldum vandræðast með að reyna að fjarlægja hana. Og ég pissaði smá í buxurnar af hlátri, jájá.

Þetta vídjó er stórgott dæmi um hressandi mannréttindabaráttu sem keyrir á brandara. Það er leiðbeinandi fyrir karla sem óttast það mest að aðrir haldi að þeir séu samkynhneigðir. Á youtube fylgir vídjóinu svohljóðandi texti:

Are you terrified that people may think you’re gay? No worries, hip hop has coined a phrase to get you out of the stickiest situations. Just throw in a “no homo” and you can say pretty much anything you want!

November 22nd, 2010

Tek áhættuna á því að hljóma eins og Moggabloggari …

by Hildur

… eða einhver tuðandi-smáborgaralegur-heimavinnandi þrossi í kommentakerfum fréttasíðna landsins, en ég bara verð að segja þetta:

Ég fyllist þvermóðsku þegar ég verð vör við auglýsingar í stórum stíl fyrir fólk sem ég hafði hugsað mér að kjósa, og það með ánægju. Það er útséð með að slíkt mun hafa áhrif á uppröðun mína á kjörseðlinum mínum á laugardaginn, þetta er bara hætt að vera sniðugt.

Mér leiðist auglýsingamennska og ég get ekki með góðu móti fengið mig til að setja mjög ofarlega á lista fólk sem ég hef verið hvött til að kjósa eða beðin um að kjósa með a.m.k. fjórum tölvubréfum, flyerum og plakötum. Þá er ég ekki einu sinni byrjuð að taka tillit til Facebook.

Þar hafið þið það. Nú getið þið farið í mál við mig eða startað rifrildi í opinni google grúppu. Gangi ykkur vel.

November 22nd, 2010

Konur og karl og ljóð

by Hildur

Jess! Hér má hlusta á Anton Helga Jónsson lesa úr Ljóðum af ættarmóti. Ég settist á Súfistann með þessa bók í haust og fletti henni í klukkutíma eða tvo og get óttalaust mælt með henni. Aukinheldur er ég alveg til í að eignast hana ef einhvern langar að gefa mér hana í jólagjöf. Ég hef gert ágætismistök í lífinu segir Anton í efsta ljóðinu þarna. Gott stöff.

Ég vissi ekki að Anton væri með heimasíðu en Jónína nokkur Óskarsdóttir, sem bloggar á Eyjunni, er dugleg að birta ljóð og þefaði þetta uppi. Ég fæ lánað frá Jónínu ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum (sem dó 1933 og er því að benda hér á hluti sem voru ekki beinlínis neinn opinber eða formlegur sannleikur á sínum tíma):

-sen og -son

Ef konurnar hjúskapar komast í stöðu,
þær kynlega breytast og skipta um föður,
þær breytast svo þvert og svo beint móti vonum,
að bónda síns föður þær verða að sonum.

Þær sérrétti kasta og sjálfstæði fleygja,
þær sjálfum sér týna og ætt sinni deyja.
Ef virðinga dingluðu krossar á konum,
þá kannski menn yrðu að dætrum úr sonum!