October 21st, 2010
by Hildur
Kannast einhver við að Google hafi búið til aðgang fyrir notendur sína á Youtube óumbeðið?
Það er hægt að skrá sig inn á Youtube í gegnum Google en ég gerði það aldrei af því að ég hef verið með aðgang að hvoru tveggja í mörg ár. En á einhverjum tímapunkti fyrir löngu síðan (as in kannski ári eða tveimur) var ég skyndilega komin með notandanafnið xcvbnmertyuio sem ég kannast ekki við að hafa óskað eftir en er beintengt við Google-reikninginn minn. Hefur einhver annar lent í þessu?
———
[Does it ring true to anyone that Google automatically generates (or has generated) usernames on Youtube?]
———
Uppfært: Fann þetta. Oh, þessi svín!
they “commandeered” Google accounts that users didn’t sign out of and automatically linked them to their YouTube accounts, without asking, without permission, and in what would have been against many user’s wishes had they been given an informed choice.
Uncategorized |
No Comments »
October 20th, 2010
by Hildur
Uncategorized |
No Comments »
October 15th, 2010
by Hildur
og Palli tók mynd. Mér finnst hún flott.

Uncategorized |
5 Comments »
October 15th, 2010
by Hildur
Jájá. Ég var að lesa bloggsíðu Sigurjóns Þórðarsonar mér til skemmtunar (ég myndi linka en … ég bara vil það ekki). Reyndi ítrekað að lesa setninguna
Opinn fundur Frjálslyndra í Húsinu laugardaginn 9. október.
en gat ekki mögulega fengið annað út úr henni en
Opinn fundur lausgirtra í Húsinu 9. október.
Þannig var nú það, krakkar mínir.
Uncategorized |
No Comments »
October 14th, 2010
by Hildur
0,04% er mjög lágt hlutfall í setningunni:
Greece gave the green light to only 0.04% of asylum requests in 2007 – many are from worn-torn Iraq.
(Héðan)
0,04% er hinsvegar tiltölulega hátt hlutfall í setningunni:
Eiginmaður minn reykir 0,04% af öllum sígarettum sem eru seldar í ríkinu.
(Samkvæmt sölutölum á vínbúð.is)
Uncategorized |
5 Comments »
October 6th, 2010
by Hildur
Ef nafnorðið jöfnuður fallbeygðist svo:
nf. jöfnuður
þf. jöfnuð
þgf. jöfnuði
ef. jöfnuðar
væruð þið kallaðir jöfnuðarmenn. Svo er ekki, vinsamlegast hættið þessu. Ég reyni að vera sofandi þegar ég vélrita ræðurnar ykkar og ég heyri því ekki að þið eruð að fallbeygja vitlaust. En Púkinn gerir hrukkótt, rautt og ógeðslegt strik undir orðið jöfnuðar og ég neyðist til að vakna til að leiðrétta þetta. Hættið þessu, vinsamlegast.
Uncategorized |
3 Comments »
October 4th, 2010
by Hildur
Uncategorized |
1 Comment »