Archive for August, 2010

August 22nd, 2010

Af nauðgunum og Björgvini Björgvinssyni

by Hildur

Björgvin reynir að útskýra ummæli sín í helgarblaði Moggans. Hann bendir m.a. á þetta:

Hlutfall þolenda sem voru í áfengisdái eða með verulega skerta meðvitund þegar þeim var nauðgað jókst úr tæpum 36% á árunum 1998-2000 í tæp 50% að meðaltali 2003-2007.

(sjá hér.)

Það sem vantar í þessa tuggu um að fjöldi brotaþola sem neytt hafa áfengis þegar nauðgun á sér stað hafi aukist er einfaldlega það að viðhorfið hefur breyst og fullar konur sem er nauðgað eru líklegri til að kæra núna en þær voru árið 1998. Líklegri til að segja frá því, líklegri til að vera meðvitaðar um að á þeim hafi verið brotið. Líklegri til að skilja niðurlæginguna og skömmina sem þær upplifa. Ummæli Björgvins hafa slæm áhrif á þá þróun.

Mér var nauðgað þegar ég var verulega drukkin, tæplega sextán ára, árið 1997. Og ég man hvernig ég sagði frá því. Ég sagði fólki ekki að mér hefði verið nauðgað heldur að ég hefði rankað við mér og gaurinn hefði bara verið inní mér. Og ég man hvað mér brá þegar ég heyrði útvarpsauglýsingu, sennilega frá Stígamótum, fyrir verslunarmannahelgina sama sumar þar sem kom fram að ef kona er ekki í ástandi til að segja nei heitir það líka nauðgun.

Eftir að ég heyrði þetta, og eftir að sárið fór að gróa, reyndi ég að temja mér að nota orðið nauðgun þegar ég sagði frá þessum atburði. En í mörg ár gerði ég það með hálfgert óbragð í munninum. Einfaldlega vegna þess að þetta var ekki sérstaklega útbreidd hugmyndafræði á þeim tíma. Allavega var þetta ekki hugmynd sem ég hafði alist upp við eða var sérstaklega vön.

Og í öll skiptin sem ég talaði um þetta sagði ég frá því í sömu setningunni að ég áttaði mig alveg á því að ég bæri ábyrgð á mínu ástandi og að ég vissi að ég hefði hagað mér heimskulega þegar ég drakk brennivínið sem þeir buðu mér og fór inn í tjald með ókunnugum mönnum, meira en áratug eldri en ég, og þegar ég fór í sleik, ekki bara við annan þeirra heldur báða, og svo framvegis.

Það eimir eftir af þessu viðhorfi ennþá. Í kjölfarið af viðtalinu við Björgvin í DV hef ég átt samtöl við konur sem hafa deilt reynslu kvenna sem þær þekkja af skemmtistaðanauðgunum og skemmtanalífsnauðgunum. Ósjaldan fylgir setning eins og og hún var meira að segja nánast edrú eða hún var dræver og hafði ekki smakkað brennivín eða hún var bara á fyrsta glasi. Það er vegna þess að almennt lítur fólk svo á, hvort sem það kann við að játa það fyrir sjálfu sér eða öðrum, að telja beri nauðgunarfórnarlömbum það til tekna að hafa ekki verið drukkin. Að nauðgunin sé á einhvern hátt ljótari glæpur ef konan er ekki of drukkin til að geta spornað við ofbeldinu.

Og sorrí, það er sama hvað Björgvin klórar í bakkann, ég er viss um að það er skoðun hans líka.

August 19th, 2010

HJÁLP SOS LOL OMFG IMF

by Hildur

Hvort er sæmd að hlutum eða sæmd af hlutum? Internet gefur misvísandi upplýsingar, áður en þið bendið mér á að google sé vinur minn. Takk.

August 2nd, 2010

Meint mbl.is

by Hildur

Hvernig er það, voru ekki til aðeins fleiri fyrirvarar í tungumálinu? Er það almenn regla hjá mbl að tala um meint brot þangað til þau hafa verið sönnuð eða getur verið að nauðganir skeri sig örlítið úr að því leyti?