Archive for May 19th, 2010

May 19th, 2010

Brandarakallinn minn og ostasalatið

by Hildur

Ég bjó til ostasalat á dögunum. Svo hafði ég ekki lyst á því. Og enginn á heimilinu hafði sérstaklega mikla lyst á því. Það var samt alveg gott, minnir mig. En við borðuðum voðalega lítið af því. Nema hvað. Ég henti því ekki. Heldur gleymdi því. Eftir þónokkurn tíma fór Palli að tala um andskotans ostasalatið. Lauma að mér athugasemdum um að ísskápurinn færi bráðlega að kasta upp og svo framvegis. Þetta var eins og að skvetta vatni á gæs. Ég góndi bara heimskulega út í loftið og þóttist ekkert skilja. En hann á alltaf einhver ráð. Næst gerðist þetta:

Mér tókst að  láta þetta sem vind um eyru þjóta í sólarhring. Svo kom þessi póstur:

Ostasalatið mitt hafði vaknað til lífsins og stofnað twitterreikning. Og það tvítaði:

Ég átti ekki beinlínis annarra kosta völ en að henda helvítis ostasalatinu og vaska upp skálina. Sem ég hef nú gert. Megi ostasalatið mitt hvíla í friði.

En í öðrum fréttum: ef einhvern vantar paprikutrésgræðling má endilega hafa samband.

Tags: