Archive for August, 2009

August 27th, 2009

Kæra til jafnréttisnefndar, takk

by Hildur

Nú hef ég aðeins of mikið að gera til að komast í að lesa þetta eins vel og ég þyrfti að gera. En mér sýnist tilfellið í öllu falli vera þetta:

Faðir í framhaldsskóla sækir um fæðingarstyrk. Barnið fæðist í maí og skv. reglum skal faðir hafa skilað fullum námsárangri, eða 13-18 einingum að lágmarki per önn, sl. 12 mánuði til þess að eiga rétt á fæðingarstyrk. Umræddur faðir hafði, vegna veikinda, einungis lokið 11 einingum á haustönn og leggur vitanlega fram læknisvottorð því til staðfestingar. Á vorönn lýkur hann aftur á móti 20 einingum. Heildarútkoman er því fullur námsárangur en TR kýs að líta svo á að vegna lítils árangurs á haustönn sé heimilt að synja honum.

Maðurinn kærir. Í kærunni má berlega sjá að hann hefur verið vel yfir umræddum 18 einingum allar aðrar annir, sem aftur rennir stoðum undir að það hafi verið veikindin sem þvældust fyrir honum á haustönn.

Í úrskurði kemur fram að foreldrar hafi ekki skilað inn staðfestingu á sameiginlegri forsjá eða skriflegu samþykki forsjárforeldris þar um að forsjárlaust foreldri þiggi fæðingarstyrk. Það dugar til þess að staðfesta úrskurð fæðingarorlofssjóðs. Samt sem áður er tekin afstaða til þessa með námsárangurinn. Og hvað kemur í ljós? Jújú, það er heimilt að veita MÓÐUR undanþágu frá reglum um námsárangur ef um veikindi er að ræða. Ekki föður.

Ef leitast væri eftir því væri þetta sjálfsagt rökstutt með einhverju sem tengist veikindum á meðgöngu. Never the less. Hvers vegna ætti meðganga að vera sérstakur faktor? Hvers vegna ekki bara veikindi? Hvað ef móðir veikist svo á meðgöngu að hún getur ekki stundað nám en veikindin hafa ekkert með meðgönguna að gera? Hvað gerir fæðingarorlofssjóður/úrskurðanefnd þá?

August 25th, 2009

ó jájá, sei

by Hildur
August 25th, 2009

Jájá, svoleiðis er það í dag

by Hildur
August 25th, 2009

Ljóðahátíð

by Hildur

er líka lokið. Djöfull var hún andskoti skemmtileg og vel heppnuð og allt. Hér er ég með UKON, Ulf Karl Olov Nilsson, sænskum sálgreini og ljóðskáldi. Kannski fleiri myndir síðar. Kannski ekki. En þetta var allavega ógeðslega gaman.

August 24th, 2009

Egill Fr.

by Hildur

August 20th, 2009

Ljóðahátíð – stolið frá Arngrími Vídalín

by Hildur

Hans færsla er með einhverjum linkum, þið getið gúglað þetta ef þið viljið, alveg er mér samaaaaaa.

Nú í kvöld var fimmtu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils þjófstartað með koverljóðakvöldi á Grand rokk. Á morgun verður hátíðin hinsvegar formlega sett í Norræna húsinu við hátíðlega athöfn klukkan fimm og um kvöldið klukkan níu verða sýnd myndljóð. Á föstudags- og laugardagskvöld verða upplestrar. Nánari upplýsingar um hvar og hvenær og hverjir lesa og hvaðeina fást hér. Sjálfur mun ég lesa efni af ýmsum toga úr væntanlegri bók.

Í tengslum við hátíðina verður gefið út sérstakt hátíðarhefti Tíuþúsund tregawatta í ritstjórn Hauks Más Helgasonar og Bryndísar Björgvinsdóttur. Þar í verða til að mynda ljóð og þýðingar á ljóðum eftir hátíðarskáldin. Einnig er komin út fimmta afbók Nýhils, Af steypu, í ritstjórn Kára Páls Óskarssonar og Eiríks Arnar Norðdahl. Einsog titillinn gefur til kynna er efni bókarinnar, greinar og ljóð og jafnvel ýmislegt annað, helgað konkretljóðlist. Þar í á ég sjálfur tvær þýðingar á greinum eftir Eugen Gomringer, svo ég haldi því til haga að þetta blogg fjallar fyrst og síðast um sjálfan mig.

Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á hátíðina og mæli ég sterklega bæði með hinu sérlega hátíðarhefti Tregawattanna og Af steypu fyrir alla bók-, og kannski ekki síst, ljóðhneigða menn og konur. Ég veit ekki hvað þetta kemur til með að kosta en miðað við alla þá vinnu sem lögð var í hvorttveggja væri hérumbil hvaða prís hóflegur. Venju samkvæmt verða aðrar bækur skáldanna til sölu á upplestrarkvöldunum tveim, sem verða haldin í Tryggvagötu 11 (áður kosningamiðstöð VG). Og við ljóðabangsarnir hlökkum að sjálfsögðu til að sjá ykkur öll.

August 12th, 2009

úr powerpointsýningu fyrir þroskahefta

by Hildur

August 8th, 2009

Til hamingju með daginn

by Hildur

þetta er tileinkað ónefndu fólki sem segir: allt í lagi að halda hátíð og svona en þurfa allir að vera svona hrifnir af þessu? þarf þjóðfélagið að verða gegnsýrt af hommaskap?

Lily Allen:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=03PnU27cWDs&hl=en&fs=1&]

August 7th, 2009

Ó ó

by Hildur
August 7th, 2009

ég og nick cave

by Hildur



og maddy litla ætlum að skreppa til brasilíu og hafa það gott í sólinni. ég vona að ég komi aldrei aftur hingað.