Archive for June, 2009

June 30th, 2009

Tími til að blokka barnið?

by snilldur

June 23rd, 2009

Vinnupirr

by snilldur

Hvers vegna finnur þriðji hver ókunnugi maður sem ég tala við í símann í vinnunni hjá sér þörf fyrir að kalla mig elskuna? Hvernig ætli sömu mönnum yrði við ef ég talaði svona við þá? Segði t.d. það var ekkert ljúfurinn? Eða verði þér að góðu vinur?

June 23rd, 2009

Þetta er aðeins of fyndið, ég fæ krampa af þessu helvíti.

by snilldur

They say of the Acropolis …

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=QX5WavWy2t0&hl=en&fs=1&]

June 9th, 2009

Ég og ástin mín

by snilldur

Já, við Morrissey erum víst að fara að bregða okkur til Köben í fyrramálið. Ég nenni reyndar ekkert á tónleikana hans enda stutt síðan ég sá hann spila síðast. Hann spilar kannski bara fyrir mig eitthvað fallegt svona prívat eftir giggið.

June 9th, 2009

Framlög ríkisins til kirkjumála árið 2009

by snilldur

Þetta er vitanlega eftir endurskoðun fjárlaga með tilliti til bankahrunsins. Samþykkt fjárlög sumsé. Það verður spennandi að sjá hvað vinstristjórnin gerir við þessi framlög.

Fimm þúsund fimm hundruð tuttugu og níu komma sjö milljónir króna.

5.529,7 m.kr.

5.529.700.000.

Takk fyrir pent. Hvers vegna borgar maður eiginlega milljón kall fyrir að láta grafa sig? Veit það einhver? Hvað gerir biskup Íslands við þær eitt þúsund fimm hundruð og níu komma sjö milljónir sem hans embætti voru úthlutaðar á þessu ári? Getur einhver sagt mér það?

June 9th, 2009

Snooze framdi ljóðlist

by snilldur

Taktu mig, já, aha,
taktu mig
tak-taktu mig
tak-taktu mig
tak-taktu mig einu sinni enn

Hann: Strjúktu og kitlaðu holdið bert,
sýndu og sannaðu hver þú ert
Hún: Snertu mig varlega blítt og létt
fikraðu þig áfram jafnt og þétt
Hann: Komdu mér til eins vel og þú getur
það er engin önnur sem að kann það betur
Hún: Ég snerti mig sjálf til að brjóta klakann,
ég sé fyrir séns og mig langar til að (fliss)

Hann: Renndu höndinni niður líkamann,
þú veist að það gerir mig brjálaðan
leiktu þér að mér þar til að ég spring
og svo byrjum við aftur á öðrum hring
Hún: Hvíslaðu orðin sem ég heyra vil
þá ég launa þér tilbaka og meira til
andaðu örar við allt sem þú nemur
og horfðu í augu mín þegar þú kemur

tak-taktu mig
tak-taktu mig
tak-taktu mig einu sinni enn
taktu mig taktu mig einu sinni enn,
þú veist ég verð að fá þig einu sinni enn
ó taktu mig taktu mig einu sinni enn,
þú veist ég verð að fá þig einu sinni enn

Hann: Fullur af orku æstur og sveittur
í hita leiksins verð ég aldrei þreyttur
með bundið fyrir augun hjartað slær og slær
klóra á mér bakið þessar beittu klær
strjúktu mig hér og færðu þig neðar
þessar mjúku varir eru ómótstæðilegar
ég bylti mér um þetta er réttur staður,
klifraðu upp á mig ég er orðinn svo ahhh

Hún: Þú ert heitur og mig langar í sleikipinna
og ég finn hvernig hann strýkst við húðina stinna
ég öskra að innan ég er orðin svo æst
mig langar í hann en hvað geri ég næst
þögnin fyrir storminn umlykur mig
lostinn tekur okkur á næsta stig
rennblautir kossar sem stríða og stríða
ég er orðin svo æst og mig langar til að ahhhh

tak-taktu mig
tak-taktu mig
tak-taktu mig einu sinni enn
taktu mig taktu mig einu sinni enn,
þú veist ég verð að fá þig einu sinni enn
tak-taktu mig
tak-taktu mig
tak-taktu mig einu sinni enn
ó taktu mig taktu mig einu sinni enn,
þú veist ég verð að fá þig einu sinni enn

Einu sinni enn, haha, aaahhh
taktu, taktu mig, taktu mig hahah, oh, ah

hún tekur mig
hann tekur mig
hún tekur mig einu sinni enn

hann tekur mig
hún tekur mig
hann tekur mig einu sinni enn

hún tekur mig
hann tekur mig
hún tekur mig einu sinni enn

hann tekur mig
hún tekur mig
hann tekur mig einu sinni enn

hún tekur mig
hann tekur mig
hún tekur mig einu sinni enn

June 8th, 2009

hver er maðurinn?

by snilldur

June 5th, 2009

by snilldur

Er sjónvarpið mitt að gera grín eða er ég að fara tímavillt? Það eru íþróttir á báðum stöðvum kl. 23.20 á föstudagskvöldi. Hvar er Taggart þegar maður þarf á honum að halda?

June 5th, 2009

Sonur framdi ljóðlist

by snilldur

Lúða á laugaás
auga á laugarnesi
ugla sat á kvisti
gauragangur í göngutúr
alin upp í auglýsingu
rauður eins og rass og rófa
nasagöt í nasagöngutúr í sund
enni nenni tennisspaði
smá slys í buxurnar

-Sævar Ólafsson, 3.N.

June 1st, 2009

Þegar ég var í kláminu …

by snilldur

Rifjaði upp við gott tilefni í kvöld að ég var ellefu ára gömul þegar ég orti tilbrigði við Síldarvalsinn. Upphaflegi textinn hljóðar svo:

Syngjandi sæll og glaður,
til síldveiða nú ég held
það er gaman á Grímseyjarsundi
vð glampandi kvöldsólareld.
Þegar hækkar í lest og hleðst mitt skip
við háfana fleiri og fleiri,
svo landa ég síldinni sitt á hvað
á Dalvík og Dagverðareyri.


Mín útgáfa var öllu ógeðfelldari og satt að segja furða ég mig á því að ég hafi búið yfir hugmyndafræðinni, ekki eldri en ellefu ára (ég held að sonur minn verði ellefu ára eftir svona kortér):

Syngjandi veill og graður,
á kvennafar nú ég fer.
Það er gaman með kerlingarálkum,
í klámæði fróa ég mér.
Er hækkar mér undir og hleðst mig fang
af kerlingum fleiri og fleiri
þá hlanda ég á þær sitt á hvað
á brjóst þeirra, mjaðmir og læri.


!!