Archive for May, 2009

May 25th, 2009

Sneypt

by snilldur

Ok, ég held að ég taki bara nýjustu færsluna mína tilbaka. Maður á ekki að blogga þegar maður nennir ekki að gera það almennilega.

May 25th, 2009

Halló Elín Hirst, ertu að hlusta?

by snilldur

Mikið óskaplega var þessi fréttaauki í gær um orðbragð á netinu þunnur þrettándi. Einhliða, misvísandi og léleg fréttamennska. Undarlega valið efni, margar gjörólíkar umræður settar undir sama hatt og alveg látið vera að benda á að stundum gerast jákvæðir hlutir á spjallvefjum.

Á það heima í sömu fréttinni að Sóley Tómasdóttir sé fyrir löngu hætt að geta um frjálst höfuð strokið í opinberri umræðu og að einhver hafi séð annan *ónefndan* borgarfulltrúa fullan í miðbænum klukkan fimm um morgun að reyna við tvítuga stúlku? Sáuð þið þetta?

May 25th, 2009

Getraun: Hvort væri Ísland betri staður

by snilldur

… með eða án Óla Tynes?

May 22nd, 2009

by snilldur

Jájá, til hamingju með þetta herra Reykjanesbær. Þetta er kannski bara lýsandi fyrir ykkar almenna viðhorf til Pólverja? Eða innflytjenda? Fullkomlega eðlilegt að þið sviftið fólk móðurmálskennslunni fyrst það stendur ekki í lögum að þið þurfið að veita hana. Morons.

May 20th, 2009

by snilldur

May 14th, 2009

Og hefst nú söfnun

by snilldur

To: Háskóli Íslands, rektor og háskólaráð
Okkur, undirrituðum, þykir sjálfsagt að Háskóli Íslands rukki, eða láti utanaðkomandi aðila rukka, fyrir notkun nemenda og starfsfólks á bílastæðum í eigu skólans, ekki síst við ríkjandi aðstæður í efnahagslífi þjóðarinnar.

Það eru fá, ef nokkur, fordæmi fyrir því á heimsvísu að hvatt sé á eins afdráttarlausan hátt til notkunar einkabíls fyrir nemendur háskóla miðsvæðis í höfuðborg, eins og er gert með gjaldfrjálsum og nær óteljandi bílastæðum rétt við dyr allra bygginga skólans.

Með þeim fyrirvara að fötluðum eða öðrum þeim sem sannanlega geta ekki gengið, hjólað, tekið strætó eða lagt bílnum annars staðar, sé gert kleift að leggja ókeypis eða með drjúgri niðurgreiðslu nægilega nálægt dyrum sinna bygginga, hvetjum við yfirvöld skólans til þess að láta af þeirri stefnu sem í daglegu tali hefur verið nefnd einkabílismi og samræmist hvorki náttúruvernd né annarri hugmyndafræði nútímalegrar stofnunar á borð við Háskóla Íslands. Sú stefna er einfaldlega skaðleg fyrir umhverfið og mun dýrari fyrir samfélagið en almenningssamgöngur og við samþykkjum hana ekki.

Ljóst er að kostnaður við rekstur bílastæðanna fellur á einhvern. Hví ekki að fella hann á þau sem kjósa einkabíl sem fararmáta og leggja í þau?

Til að skrifa undir, heimsækið þetta.

May 13th, 2009

SHÍ – er þetta í lagi?

by snilldur

Í dag barst mér í annað skipti á sex dögum tölvupóstur frá stúdentaráði um gjaldskyld bílastæði við háskólann. Fyrri pósturinn var mjög undarlegur, hann var sendur á gjörvallan nemendalista skólans (rétt eins og sá seinni) og í honum stóð m.a. „Fulltrúar Stúdentaráðs hafa fengið staðfest að þetta sé einungis byrjunin – fyrr en varir verði öll bílastæði við Háskólann gjaldskyld.“ Með póstinum fylgdi slóð á rafrænan undirskriftarlista gegn gjaldskyldu í bílastæði við skólann.

Ég svaraði þessum pósti, gerði athugasemd við undarlega ófaglegan póst og óskaði eftir því að sendandi gæfi upp heimildamann fyrir þessum ummælum. Við því var brugðist skjótt en sá póstur fór vitanlega bara til mín. Ekki annarra nemenda skólans. Í kjölfarið spurði ég formann ráðsins hvort hún gæti ekki séð til þess að viðkomandi heimildamaður staðfesti þessi ummæli við nemendur. Hún svaraði því til að í næstu viku yrði sendur út ítrekunarpóstur og lofaði því að þá yrði þess gætt að heimilda yrði getið og heimildamaðurinn *jafnvel* fenginn til að staðfesta ummælin.

Þá var í svari formanns farið í löngu máli í ástæður þess að lagst væri gegn gjaldskyldunni. Í svari mínu við þeim pósti sagðist ég vel skilja þær ástæður þótt ég kysi að vera ósammála þeim, það var alls ekki það sem ég ætlaði mér að ræða.

Í dag barst svo ítrekunarpósturinn og í stað þess að heimilda væri getið var barasta umrædd setning tekin út. Hvergi kom semsagt fram í ítrekunarpóstinum að stúdentaráð hefði fengið það staðfest að þetta væri „bara byrjunin“. Hins vegar var langur kafli um allar umhverfisáherslurnar sem stúdentaráð leggur í starfi sínu. Það er, með öðrum orðum, í góðu lagi að hvetja til notkunar einkabíls fyrir alla með annarri hendinni svo lengi sem maður reynir af veikum mætti að redda hinum frítt í strætó með hinni hendinni.

Hvað um það. Ég læt pólitík ráðsins liggja á milli hluta, það lá nú svosem ljóst fyrir að hún væri ekki í samræmi við mína pólitík. Hitt finnst mér öllu verra ef stúdentaráð getur notað póstlista nemenda í pólitískum tilgangi, til þess að dreifa ummælum sem ekki finnst heimildamaður fyrir og til þess að safna undirskriftum í pólitísku máli.

Hvað með þá nemendur sem eru fylgjandi gjaldskyldum bílastæðum við Háskóla Íslands? Hver er málsvari þeirra? Hver á að stofna undirskriftarlista með gjaldskyldunni? Ég skal gera það. Fæ ég þá loforð um að ég fái viðlíka dreifingu á auglýsingu á listanum mínum og stúdentaráð fær?

Mín vegna mætti kosta 700 kall á dag að leggja einkabíl í stæði í eigu skólans. Að því gefnu að þeir sem gætu sannanlega, t.d. vegna fötlunar, hvorki tekið strætó, gengið né hjólað fengju einhvern öðruvísi samning. Og þá á ég ekki við þá sem eiga börn og þurfa þess vegna að stoppa einhversstaðar á leiðinni. Hvað finnst ykkur?

May 7th, 2009

Hahaha

by snilldur

Ég vek sérstaka athygli á lið fimm.

May 6th, 2009

Áminning

by snilldur

Ég er að fara í próf eftir helgi og kemst ekki í það að pönkast á einstökum manneskjum fyrir Tregawöttin alveg strax en minni hér með á eftirfarandi og bið ykkur vinsamlegast og auðmjúklega um að hnippa í þau sem þið teljið að gætu verið tilkippileg:

Hildur Lilliendahl ritstýrir næsta Tregawattahefti. Stefnt er að því að það komi út í júní og þemað er KONUR. Þemað er vel teygjanlegt og óskað er eftir sendingum í heftið á netfangið hlv@hi.is. Efni um konur eða eftir konur, um kvenleika, efni samsett af kvenleika, um femínisma eða af femínisma. Greinar, þýðingar og frumsamið efni, fíflagangur og allthvaðeina óskast í tölvupósti. Á sama stað er óskað eftir ritdómum af hvaða lengd og í hvaða stíl sem er – og þurfa ekki að tengjast þemanu.