Archive for March, 2009

March 30th, 2009

by Hildur

Rétt upp hönd sem er á twitter, mig vantar fólk til að elta.

March 30th, 2009

Þrjú leyndarmál

by Hildur

Þrjú leyndarmál af PostSecret.


March 30th, 2009

Ég afturkalla nokkrar klukkustundir

by Hildur

Einsog Þórdís hefur ítrekað bent okkur á undanfarna daga og vikur tíðkaðist það eitt sinn að menn bæðu aðra menn afsökunar í dagblöðum eftir að hafa svívirt þá í ölæði. Þá skrifuðu menn einfaldlega lítinn bút þar sem þeir afturkölluðu téðar svívirðingar og/eða barsmíðar, dæmdu eigin gjörð dauða og ómerka og gátu framvegis borið höfuðið hátt. Kannski eru það títtnefnd gömul gildi. Allavega finnst mér þetta falleg hefð og ég hef hér með ákveðið að biðja alla sem ég hitti síðastliðinn föstudag afsökunar á öllu sem ég kann að hafa gert eða ekki gert frá því að ég fór úr vinnunni og þangað til ég sofnaði. Ég dæmi þetta kvöld dautt og ómerkt.

Myndirnar koma frá Þórdísi.


March 29th, 2009

ég spyr, þið svarið

by Hildur

hver eru eiginlega þessi gömlu gildi sem er alltaf verið að tala um að við eigum að hverfa aftur til? ég sé bara fyrir mér 6. áratuginn í bandaríkjunum og heimavinnandi konur í kjólum með svuntur þegar ég heyri talað um gömul gildi.

March 27th, 2009

slakaðu á, píka

by Hildur

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=mvDnfCZhiCY&hl=en&fs=1&rel=0&color1=0x402061&color2=0x9461ca]

March 26th, 2009

Krúttí

by Hildur

Stóri strákurinn minn og Ragnheiður vinkona hans gera stundum sniðuga hluti saman. Þau stofnuðu rokkhljómsveit þegar þau voru sjö ára og stofnuðu dagblað þegar þau voru átta ára. Nú eru þau að verða níu og dagblaðið er komið með sína eigin heimasíðu. Þar geta menn skráð sig í gestabókina ef þeir vilja verða áskrifendur að blaðinu sem, að sögn Sævars og Ragnheiðar, kemur oft um helgar.

March 25th, 2009

by Hildur

Eru sjálfstæðismenn nú farnir að barma sér yfir því að það séu ekki nógu viðeigandi mál á dagskrá Alþingis? Þeir hljóta að vera búnir að steingleyma fyrsta fundi eftir mánaðarlangt jólafrí nú í janúar þegar sumir þeirra fundu hjá sér brýna þörf fyrir að ræða t.d. sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum (sjá hér). Iss.

Mig langar í bjór.

March 25th, 2009

Sorg á bæ

by Hildur

Ég vaknaði við slæmar fréttir í morgun. Morgnarnir ganga annars alltaf svoleiðis fyrir sig heima hjá mér að sambýlismaður fer á fætur eftir að ég kýli hann í magann. Hann gefur barninu að borða og keyrir það í skólann. Ég sef. Svo kemur sambýlismaður heim, færir mér kaffi í rúmið og les hátt uppúr Fréttablaðinu með dönskum hreim í von um að fá mig til að rusla mér framúr. Það gengur iðulega illa og ber í fyrsta lagi árangur um 30 mínútum áður en ég á að vera mætt niður í Ráðhús.

Í morgun las hann hins vegar svo skelfilegar fréttir fyrir mig uppúr blaðinu að ég spratt á fætur eins og fjöður og hljóp inn í eldhús á narjunum til að brjóta leirtau. Getur einhver sagt mér hver þessi gríðarlegi kostnaður við spurningakeppni fjölmiðlanna er og af hverju hann stafar? Árlegur þrjúhundruðþúsundkall í stjórnandann er ekki fórnarkostnaður sem er ástæða til að horfa í. Djöfulsins helvítis.

March 24th, 2009

Kahn og Kynlíf

by Hildur

Rétt upp hönd sem fékk svona kynfræðslu í íslenska skólakerfinu.

„Öll tilvera heilbrigðrar og þroskaðrar konu, sem ekki hefur lent á glapstigum, er helguð kynlífinu. Það er kynhvötin, sem gerir fötin að þýðingarmesta viðfangsefni kvenlegrar hugsunar [...] Kynhvötin gerir val á höfuðfati eða liðun á hári að svo yfirgripsmiklu viðfangsefni, að hún getur hugsað um það dögum saman og jagast um það við hárgreiðslustúlkuna tímunum saman.“

„Eins og í líkamsbyggingu er konan einnig líkari barninu hvað snertir skapgerð og andlegt atgervi heldur en karlmaðurinn. [...] Eins og barnið er konan fremur þiggjandi en veitandi í andlegum efnum, hún lætur frekar stjórnast af tilfinningum en skynsemi, frekar af hugsýn og eðlisávísun en kaldri rökhyggju. [...] Samkvæmt eðli sínu stendur hún milli mannsins og barnsins …“

-Fritz Kahn.
Bókin heitir Kynlíf, ef þið eigið aukaeintak vil ég gjarnan eignast það. Myndi jafnvel borga fyrir það.

March 24th, 2009

by Hildur

Það er niðurdrepandi að sitja í tíma og hlusta á nemanda fullyrða að götuofbeldi í Danmörku sé nær eingöngu stundað af ákveðnum þjóðernishópum. Ha. Og ég nenni ekki einu sinni að segja neitt við þessu.