8. Láttu berja þig. Ekki berja. Látið löggurnar berja ykkur. Það er mikilvægt. Baráttan er táknræn, að uppistöðunni. Þið breytið engu með því að rota eina eða tvær löggur, þótt slíkt sé auðvelt, eða brjóta rúðu eða kveikja í ruslatunnu. En ekki standa álengdar, farið þétt upp að þessum fulltrúum ríkisstjórnarinnar, takið með ykkur pott og sleifar eða blístrur og búið til hávaða, blásið framan í þá, umkringið þá, ýtið ykkur upp að þeim. Ef þeir segja ykkur að hörfa, ekki hlýða. Blásið upp gula plastönd til að klifra með upp á þak Alþingis, hleypið upp mótmælunum eða verið með á nótunum þegar þetta verður gert fyrir ykkur. “Lögregla beitir kylfum á Austurvelli” er gott. “Lögreglan beitir táragasi gegn mótmælendum”. Við þörfnumst þessara frétta.
-Steinar Bragi, sjá hér.
Annars greinir dagblaðið Nei. frá eftirfarandi, sem er afar mikilvægt:
Engin mótmæli föstudags- og laugardagskvöld
Þessi þörfu skilaboð ganga nú meðal mótmælenda, að frumkvæði anarkista og með fullum stuðningi dagblaðsins Nei., meðal annarra:
„Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi. Látið ganga sem víðast.“









