Archive for December, 2008

December 22nd, 2008

by snilldur

Ég skil ekki hvernig þetta gat farið framhjá mér. Fokk! Hver eru næstu skref í málinu? Þurfa þeir að hafa smakkað slátur? Keypt disk með Björgvin Halldórssyni og/eða mætt á tónleika? Taka lýsi? Sjitt sjitt sjitt. 

December 21st, 2008

Í jólaandanum

by snilldur

Óska konunni sem tók skapofsakast á fatlaðri og aldraðri móður sinni (í hjólastól, no less) í Bónus í Kringlunni laugardaginn 20. desember, rétt fyrir kvöldmat, innilega til hamingju. Gleðileg jól.

December 21st, 2008

Engin fölsun

by snilldur

Þessi auglýsing birtist í Markaðnum 8. janúar síðastliðinn. Þið megið verja jólunum í að reyna að giska á hver var á bakvið hana.
Annars mæli ég af allsvakalegu afli með þessu lagi
sem er nýja uppáhaldsjólalagið mitt. Djöfull er það skemmtilegt.
December 20th, 2008

„ég er ekki styrkþegi, ég er verðlaunahafi“

by snilldur

Á fimmtudaginn var tilkynnt um að fjórar nýjar ljóðabækur hefðu hlotið nýræktarstyrk úr Bókmenntasjóði. Styrkirnir, sem hver er að upphæð 200.000, eru hugsaðir til að styðja við verkefni sem hafa ótvírætt menningarlegt gildi en litla eða enga tekjuvon. Bútgáfuferðalag Nýhil(-jar) sem undirrituð tekur þátt í, í ritstjórn Kristínar Svövu, var þar á meðal. Við Kristín erum einmitt fötluðu konurnar sem eru að detta á myndinni hér fyrir ofan.
Í móttökunni á Nýló á fimmtudaginn vatt sér að mér fulltrúi menntamálaráðuneytisins. Eftir að hafa óskað mér til hamingju spurði hún hvort ég stefndi svo að því að skrifa „stærri bók, svona alvöru bók, eh… skáldsögu?“
Já, og ég stal þessari mynd af druslubókablogginu. Hún er ekki fölsuð þótt hún hafi verið annarsstaðar áður en hún kom hingað.
December 20th, 2008

Færsla handa Ragnari Eiríkssyni

by snilldur

Í fyrsta lagi hef ég ekki eytt athugasemd. Efistu um það bendi ég þér að fara hingað til að komast að því hvað gerist ef stjórnandi eyðir athugasemd úr athugasemdakerfi blogger. Öllu líklegra er að þig hafi skort tækniþekkingu til að skilja eftir athugasemd, sbr. takmarkaðan skilning þinn á stöntinu sem þessi færsla er og sbr. upphrópanir þínar um róg, fölsun og lýgi [svo].

Í öðru lagi falsaði ég ekkert. Ég tók mynd af frétt frá því í fyrra og birti hana óbreytta. Efistu um það líka geturðu farið hingað og séð hvernig dagsetningin í horninu hefur breyst til samræmis við dagsetninguna sem hefur breyst frá því að myndin af fréttinni var tekin. Ég bendi þér einnig á að ekkert sem ég sagði gaf til kynna að fréttin væri ný.

Að því sögðu mun ég taka afsökunarbeiðni þinni fagnandi, rétt eins og sauðheimskulegri athugasemd þinni hér að neðan.

December 19th, 2008

Jólakveðja frá Arnþrúði Karlsdóttur til þjóðarinnar

by snilldur

December 19th, 2008

Jólakort frá litla bróður mínum

by snilldur


Smekkleikinn í fyrirrúmi í ár.

December 18th, 2008

by snilldur

2002, 2004 og 2006 voru jólin glötuð hjá mér. 2004 og 2006 gerðust hlutir nákvæmlega viku fyrir jól sem kipptu stoðunum tímabundið undan mér og settu allt lífið úr skorðum. Nú er 2008 og þrátt fyrir að það sé mikið að gera og mikið sem mæðir á mér er ég ákaflega hamingjusöm, þetta eru góðir dagar, það gerast góðir hlutir og ég hlakka til jólanna. Vildi bara segja það.

December 15th, 2008

DP og ÞG

by snilldur

Þið eruð hálfvitar og máli mínu til stuðnings vil ég benda á þetta

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=c_Bh-G9whv4&hl=en&fs=1]

[Uppfært] Ég þarf að benda á þetta líka.

December 15th, 2008

by snilldur

Ó mæ lovíng. Dónt ví oll.

Ég myndi borga peníng fyrir það.