Archive for November 18th, 2008

November 18th, 2008

hvað finnst ykkur?

by Hildur

November 18th, 2008

Hvað varstu að gera þegar þú varst tólf ára?

by Hildur

Þegar ég var 12 ára hékk ég útí sjoppu í leðurjakka, byrjaði að reykja camel filters, fór á ímyndunarfyllirí af heimabrugguðum bjór úr tveggja lítra brúsa, var offisjallí byrjuð með strák ef ég fór í sleik við hann þrjú kvöld í röð, fékk stundum að vinna í sjoppunni, fékk 750 krónur á viku í vasapening, afþakkaði hass úr kókflöskulóni sem gekk hringinn í einhverju horni á skólalóð Breiðholtsskóla en þáði snuff í nefið frá 14 ára gellunni í blokkinni (og hélt að það væri dóp), hætti að mega skipta ávísunum af því að ég leit svo dúbíus út, gekk vel í bóklegu námi en skrópaði í leikfimi og sundi og kom illa saman við kennara og… Og hvað fleira? Já, “viltu byrja með mér?” var svooo 1992.