Archive for November, 2008

November 27th, 2008

would it kill ya to comment?

by Hildur

November 26th, 2008

Spurning

by Hildur

Hvernig rímar þetta:

við þetta:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=riojMcRCJ3w&hl=en&fs=1]

?

Einhver?

November 26th, 2008

Úúúúbbbs!

by Hildur

Svonalagað er alltaf gott.

November 26th, 2008

by Hildur

Mikið þætti mér vænt um ef einhver snillingurinn setti á youtube auglýsinguna með Ívari Guðmunds og vini hans þar sem þeir eru olíubornir að hlaupa saman á ströndinni. Hún er menningarverðmæti sem væri synd að félli í gleymsku.

November 25th, 2008

by Hildur

Svonalagað styttir dagana hjá manni.

November 20th, 2008

Sólbaðsstofutrend í gangi

by Hildur

… eins og Halli benti réttilega á. Skemmtilegt. Annars er ég eiginlega að verða búin að yfirgefa sólbaðsstofupælinguna mína. Allavega í dag. Það er of leim að fara í ljós í dag.

Ég ætla að trítla mér uppí Alþjóðahús og kenna nokkrum útlendingum smávegis íslensku. Svo er ég að hugsa um að kíkja við í Máli og menningu á sænsk/íslensku upplestrarfjöri. Að svo búnu ætla ég í sund. Og gufu. Leyfa heitu pottunum í Laugardalnum að reyna að nudda úr mér vöðvabólguna. Sjæææt.
Í gær skrifaði ég langa og vafasama reiða feminíska bloggfærslu sem gufaði upp áður en ég náði að vista hana eða birta. Sem er kannski ágætt en ég er samt ennþá með hana í maganum, ég þarf að fá útrás fyrir reiðilesturinn minn. Það kemur kannski að því á næstu dögum, þetta er óttalegt þunnildi að verða, þessi síða.
Annars er ég loksins að lesa Stefnuljós Hermanns Stefánssonar sem ég hef átt í einhvern voðalegan óratíma. Hún er skemmtileg só far.
November 20th, 2008

by Hildur

Ég er svo sárþjáð af ljótunni þessa dagana að mig langar allt í einu rosalega til að fara í ljós. Nei, ég er alls ekki að grínast. Mig langar raunverulega að fara í ljós. Á  s ó l b a ð s s t o f u. Hugsið ykkur.

Annars er ég bara örþreytt og frekar kát. Vinn frá 8-9 á morgnana til níu á kvöldin og er með vöðvabólgu en allavega í netsambandi. Það er vel.
November 18th, 2008

hvað finnst ykkur?

by Hildur

November 18th, 2008

Hvað varstu að gera þegar þú varst tólf ára?

by Hildur

Þegar ég var 12 ára hékk ég útí sjoppu í leðurjakka, byrjaði að reykja camel filters, fór á ímyndunarfyllirí af heimabrugguðum bjór úr tveggja lítra brúsa, var offisjallí byrjuð með strák ef ég fór í sleik við hann þrjú kvöld í röð, fékk stundum að vinna í sjoppunni, fékk 750 krónur á viku í vasapening, afþakkaði hass úr kókflöskulóni sem gekk hringinn í einhverju horni á skólalóð Breiðholtsskóla en þáði snuff í nefið frá 14 ára gellunni í blokkinni (og hélt að það væri dóp), hætti að mega skipta ávísunum af því að ég leit svo dúbíus út, gekk vel í bóklegu námi en skrópaði í leikfimi og sundi og kom illa saman við kennara og… Og hvað fleira? Já, “viltu byrja með mér?” var svooo 1992.

November 17th, 2008

Bubbi Morthens í útvarpinu rétt áðan

by Hildur

Seðlabankinn er rúinn ööööllu trausti ef maður má sletta. Eða whatever.