Archive for October, 2008

October 30th, 2008

by snilldur

HA? 

OG HAAAAA?
líður ykkur líka eins og hálfvitum?
October 29th, 2008

hér er ýmislegt.

by snilldur


ég er að lesa ian mcewan í fyrsta skiptið. barnið og tímann. er hrifin eftir fyrstu 100 síðurnar. fann eftirfarandi á þessari síðu við gúgl, finnst það fallegt:

ég lagði herra mcewan að velli á títtnefndum palli í dag, var alveg búin að kveða upp þann dóm á blaðsíðu 52 að hann hefði bara ekki náð þessu í þetta skiptið, booker eða ekki booker, en þegar ég staðnæmdist við síðasta punktinn varð ég nú bara að kyngja því að helvítis kallinn kann alveg að flétta og droppa hintum án þess að maður átti sig neitt á neinu og svo rennur þetta allt saman í einn kjarna sem kemur manni einhvern veginn alveg við af því bara maður er manneskja, barnið og tíminn hét hún þessi bók og fjallar eitthvað um bernsku að mér finnst, að vera alltaf í vissum skilningi barn eða þrá það í það minnsta, að missa barn í margþættum skilningi, bernskan tapast í tímanum, en tíminn vinnur ekki bug á öllu, til dæmis ekki tilfinningum, getur barnið lifað tímann af, nú eða ástin…

hmmm. fleira. finnland var fínt. ég fékk kynlíf á föstudaginn, grét á laugardaginn og kvefaðist á sunnudaginn. eftir peningahrunið liggur þó við að ég sjái eftir því að hafa ekki bara spanderað peningunum í þrjár nætur á hóteli á íslandi í staðinn. sá ekki eön og nödju nema í mýflugumynd og og og flugvélakvefið lagði mig svo kylliflata á sunnudaginn (um miðjan dag fórum við að telja hnerrana mína, held við höfum komist upp í 40). en í helsinki var tíu stiga hiti og á laugardaginn skein meirasegja sól og og og. huggó. og svona fallegar búðir.


sem er auðvitað ekki hægt að versla í í borg þar sem bjór kostar níuhundruðkallllll.

ég veit ekki með þessa kreppu. mig langar að segja ýmislegt en hef á tilfinningunni að allt hafi þegar verið sagt og það betur en ég myndi gera. ég held kannski að ég skilji þetta ekki nógu vel til þess að koma almennilegum orðum að skoðunum mínum eða tilfinningum. svo er maður náttúrlega smá múlbundinn. 

en ég skil lítið annað en að bjórinn í miðbæ helsinki kostar níuhundruðkallllll og hæfileikaríki kærastinn minn fær ekki vinnu svo ég verð að vinna tvöfalt til að halda uppi heimilinu.

svo skil ég líka að þjóðremban er að gera mig geðbilaða, það er eitthvað verulega óþægilegt við ljósmyndasýninguna sem sýnir myndir af hvítu fólki með penna og skóflur og allt fólkið sem skilur ekki að þar er verið að stilla slíkum upp sem andstæðum við alvöru hryðjuverkamenn sem líta auðvitað svona út

i fart in your general direction.

hata líka þetta helvítis innantóma raus um að við eigum að standa saman og sinna börnunum okkar. TAKK ógeðin ykkar en HVAÐ HALDIÐI AÐ ÉG HAFI VERIÐ AÐ GERA ÁÐUR EN ÞIÐ TÓKUÐ VINNUNA FRÁ MANNINUM MÍNUM OG ÉG MISSTI ÞAR MEÐ FRÍTÍMANN SEM ÉG HAFÐI TIL AÐ SINNA FOKKING BÖRNUNUM OKKAR???? haldiði að ég hafi bara verið að pússa þyrluna mína og raða demantsskónum mínum inn í marmarafataherbergið? fokkings fokk.

nú er bara að hamstra matarkex og rauðvín.

nýja uppáhaldið mitt (takk maggý möller) er alison brady (sjá myndina efst í færslunni) sem, skv. einhverju presents the human form as if it were either a strange plant or a plastic toy uncovered in a middle-American backyard. At once disturbing and whimsical, Brady’s images depict bodies ill-fitted to their environments, as if they were discarded, forgotten, or malfunctioning.

nóg í bili. NEI ANNARS p.s. ég mundi allt í einu eftir þessu mánudagsævintýri eftir strák sem ég þekki ekki en er ágætur penni og ævintýrið er áhugavert.
October 28th, 2008

guð minn almáttugur, hvað hafa þeir gert við egil helgason??

by snilldur

October 23rd, 2008

þú ert bestust

by snilldur

 

p.s. viltu gefa fiski fjölskyldunnar minnar að éta um helgina?

Posted by Picasa
October 22nd, 2008

Hvað skal gera þegar þurrkari gefur upp öndina

by snilldur

Fyrsta skref er að bölva. Svo er 66° norður úlpan (rök, herfilega lyktandi og ógeðsleg (soldið eins og eigandi hennar)) flutt heim til tengdaforeldra og troðið í þvott og þurrkara þar. Því næst skal kvabbað í sambýlismanni sínum í tíu daga. Þegar ljóst er orðið að það mun ekki skila árangri (in all fairness þá er það vegna þess að hann er svo duglegur við annað) skal lokið skrúfað af þurrkaranum. Svo skal gónt greindarlega ofan í hann góða stund. Gott er að strjúka hökuna hugsi á svip og dusta rykið innan úr græjunni. Að lokum skal potað í víra og lokið skrúfað aftur á. Síðan er gott að gúgla og komast að því hvert vandamálið er og lesa sér duglega til um hvernig er alls alls ekki mælt með að maður skipti sjálfur um það sem þarf að skipta um nema maður telji sig afar hæfan til verksins. Þá er hæglega hægt að trítla hróðugur til sambýlismanns, deila með honum viskunni og biðja hann vinsamlegast um að finna einhvern í verkið hið fyrsta.

October 22nd, 2008

Hagfræði útrásarinnar

by snilldur

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar…og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÍSLENZKA ÚTRÁSIN
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

October 21st, 2008

í gamla daga

by snilldur

Fyrir tveimur árum var ég skotin í kokki og uppfull af ýmiskonar vellu af því tilefni.

Þá skrifaði ég eitthvað um það hér að ég gæti ekki hlustað á Jeff Buckley lengur. Grace hefði ógeðslegra melankólíu-nostalgíu-tilfinningavellugildi fyrir mig heldur en nokkur önnur plata.

En í stelpupartíinu sem myndirnar eru úr hér að neðan spiluðum við Grace. Eins og sjá má á mörgum myndum úr því partíi. Síðan þá hefur varla liðið sá dagur að ég hafi ekki skyndilega fengið eitthvað af þeirri plötu á heilann. Ég gæti verið að þróa með mér overdose II af henni.

Í kvöld mundi ég allt í einu að sama gildir um sum ljóð. Yfir sumum ljóðum verð ég hreinlega fjórtán ára aftur og tilfinningavelgjan verður svo mikil að ég gleymi næstum því alvöru velgjunni sem liggur eins og mara á fjölskyldu minni þessa dagana. Sjá: Yngismey Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.


Það er eitthvað, sem hefur að mér sótt,
líkt og ilmur frá skógargreinum…
Ég vakti í nótt -ég veit það er ljótt,
og vil ekki segja það neinum.

Ég veit ekki, hver þessi aðsókn er.
Það er eitthvað, sem logar í brjósti mér,
eitthvað, sem kemur, eitthvað, sem fer,
eitthvað, sem hlær og grætur.
Það fer út í yzta fingurgóm.
Það fer inn í hjartarætur.
Og dökkvuð ljóma mín draumablóm
í dýrð hinnar hljóðu nætur.

Almáttugur.

October 20th, 2008

by snilldur

Update: Sævar sofnaði um leið og hann kom heim úr skólanum. Ég man bara til þess að það hafi gerst einu sinni áður. Það var hérna. Hann er semsagt veikur líka.

October 20th, 2008

ich bin krank

by snilldur

Heimilið mitt er veikt. Ég er heima með magapest (sem er ekki æskilegt þegar baðherbergi manns er fokhelt), svaf ekkert í nótt, hef ekki vott af matarlyst og er raunverulegur haugur.

Stefán Ingi, litli strákurinn okkar, var hjá okkur um helgina. Hann varð tveggja í gær. Nýbyrjaður á leikskóla, pikkar upp allar pestir og var einmitt veikur á laugardaginn. Við héldum kaffiboð fyrir hann í gær, spurning hvort gestirnir fara ekki að leggjast einn af öðrum á næstu dögum. Æ æ.

Talaði við Óla áðan, hann er í vinnunni og sagðist vera alveg eins og ég. Hann hefði farið heim fyrir löngu ef samstarfsmaður hans (sem er nóta bene iðnaðarmaðurinn sem var hér alla helgina) væri ekki þegar farinn veikur heim. Viðbúið að þetta verði fín vika hjá okkur á V2.

Í síðasta mánuði fékk ég einhverja undarlega pest og var heima í einn dag. Þá var íbúðin mín svo hrein að þrátt fyrir krankleika leið mér hryllilega vel að vera lasin í náttfötum í sófa heilan dag.

Nú er öldin önnur. Á heimilinu er ekki einn einasti hlutur sem er ekki þakinn með steypuryki og engin leið að gera neitt í því af því að steypuvinnunni er sjálfsagt langt í frá lokið. Nú vil ég helst vera allsstaðar annarsstaðar en hér. Hef hugsað í allan dag að ég vildi að ég væri í vinnunni. Pælið í því.

October 20th, 2008

maðurinn minn slapp út á stétt

by snilldur

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=mC8JVz5eDl4&hl=en&fs=1]