Archive for August, 2008

August 29th, 2008

omfg það er perri í grafarvogi!!!!!!!!!!!!

by Hildur

Umræðan um að Ágúst Magnússon sé búsettur einhversstaðar fer voðalega í taugarnar á mér. Halló Hafnarfjörður, það búa barnaníðingar í öllum hverfum, nálægt öllum börnum í (stærri) þéttbýlum. Þetta er helvítis hystería og blóðþorsti. Það á að kenna börnum að vara sig án þess að gera þau taugaveikluð. Það á að kenna þeim að bera virðingu fyrir sjálfum sér og byggja þau eins vel upp og hægt er til þess að þau séu í stakk búin til að a) gera það sem í þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja kynferðisofbeldi og b) vinna sig úr vandanum á heilbrigðan hátt ef þau verða fyrir kynferðisofbeldi. Og hana fokkins nú.

August 29th, 2008

by Hildur

Ég er 855,954,845 sekúndna gömul ef marka má þetta.

August 28th, 2008

fiðrildi

by Hildur

Jæja. Ég er hér móð og rjóð í kinnum, var að koma hlaupandi af Kaffi Róma þar sem ég átti stefnumót við þennan dularfulla og sjarmerandi mann. Hann kann að slá stúlku gullhamra, þessi. Ég er ekki frá því að ég sé með fiðring í maganum – en kannski eru það bara áhrif vínglassins. Og þessa ljóðs…

Eilífð
– til Antonios Santoris

Strand lína Toscana – ó, ert þú líkt og útlínur fagurrar konu?
Glepur þú mig kona?
Eilífð ástarinnar, eins og eilífð eilífða
– í þér vil ég gleyma öllu, öllu sem ég hef skilið að baki.

Ég hef nú gefið mig listinni á vald
– hún kemur til mín í draumi, líkt og músa í draumi

Tocchi le mie anche e lascilo amarlo
Li bevo come bottiglia di vino

Ítalía
Faðmur þinn er líkt og faðmur fallegrar konu

Kornin á ströndinni eru líkt og spor lífs míns

Lyktin af vín viðnum er höfug
Hún stígur mér til höfuðs
Líkt og skáldskapur Antonios Santoris

Ég leita
ástarinnar listarinnar

Ég leita þín Ítalía

-T. Árdal.

August 28th, 2008

kjút

by Hildur

Þetta finnst mér æðisleg færsla. Hreint út sagt dásamleg. Minnti mig á þessa.

August 28th, 2008

by Hildur

Mér finnst það einhvernveginn vera talk of the town hvernig við blogguðum öðruvísi og betur fyrir 3-4 árum síðan.

Það er auðvitað alveg rétt en það er eins og við höfum allt í einu öll fattað það.

Óli Sindri vill meina að það sé moggablogginu að kenna.

Ágæt kenning. Ég veit ekki.

August 28th, 2008

kannski er ég ein um að þykja þetta agalega fyndið

by Hildur

A male patient is lying in bed in the hospital, wearing an oxygen mask over his mouth and nose, still heavily sedated from a difficult four hour, surgical procedure. A young student nurse appears to give him a partial sponge bath.

“Nurse”, he mumbles, from behind the mask “Are my testicles black?”

Embarrassed, the young nurse replies, “I don’t know sir, I’m only here to wash your upper body and feet.”

He struggles to ask again, “Nurse, are my testicles black?”

Concerned that he may elevate his vitals from worry about his testicles, she overcomes her embarrassment and sheepishly pulls back the covers. She raises his gown, holds his penis in one hand and his testicles in the other, lifting and moving them around.

Then, she takes a close look and says, “There’s nothing wrong with them, sir.”

The man pulls off his oxygen mask, smiles at her and says very slowly,

“Thank you very much. That was wonderful, but listen very, very closely…

Are – my – t e s t – r e s u l t s – b a c k ? “

August 27th, 2008

Topp fjögur

by Hildur

listi yfir orð sem er vandræðalegt að segja ef maður ber fram n í stað hn. Þetta átti að verða topp fimm listi en ég finn ekkert meira sem á skilið að vera á honum. Aðstoð lesenda óskast.

4. HNYTTINN vegna þess að það er ljótt.

3. HNJÁA sem er ekki til í orðabók en merkir að veita einhverjum hnjáspark. Dæmi um vandræðalega notkun: aðilinn var með einhverja fokkins stæla og ég nottlea bara njáaði hann fokkins beint í magann

2. HNEFI vegna mögulegs misskilnings. Deilir sæti með öllum orðum sem byrja á hnef- eða hnefa-, svo sem hnefastór, hnefaleikar og hneftafl.

1. HNÓHNIK af augljósum ástæðum. Að hnóhnika sér merkir að mjaka sér til eða að vera á sífelldu iði.

August 27th, 2008

staðreynd

by Hildur

rainbows are just to look at, not to really understand

August 26th, 2008

Tattú, ljóð og borgarmál

by Hildur

Ég lét tattúvera á mig nafn nýs borgarstjóra í von um að það verði öllum borgarfulltrúum hvatning til að skipta henni aldrei út. Það er of mikið vesen.

Annars er kannski eins gott að ég skyldi missa af gjörvallri ljóðahátíð, a.m.k. ef marka má þetta. Tandra blöskraði. Eflaust hefði mér líka blöskrað. Enda er þetta ekki list heldur stælar. Trúið mér, ég veit hvað er list og hvað ekki og einhverjar konur sem tala ekki um annað en píkuna á sér geta sannarlega ekki kallast listamenn með réttu.

August 25th, 2008

Uptaken

by Hildur

Gvuð minn góður, það er enginn tími til að hanga á Facebook í þessari vinnu.