Í öllum trukkaþursalátunum fóru þessar frábæru fréttir framhjá mér í allan dag – þar til mamma hringdi rétt í þessu. Eiríkur er í Bandaríkjunum ef mér skjöplast ekki en honum sendast hér með mínar hugheilustu hamingjuóskir yfir hafið. Knúsa þig í kjötheimum eftir hálfan mánuð eða svo og innheimti í leiðinni eintakið mitt af Móðurlausri Brooklyn. Djöfull er þetta flott.
April 22nd, 2008
Öðrum viðrinum framar stendur Sturla Jónsson
Ég get orðið hvergi farið um án þess að einhver andskotist í mér fyrir lægðina á þessari síðu. Það er orðið helvíti pirrandi og hef ég af því tilefni ákveðið að Moggablogga eilítið:
Er útilokað fyrir þetta þurs að hugsa óbrenglaða hugsun?
Hvað gengur að fólki sem treður sér framan í leiðtoga kúgaðrar og sárþjáðrar þjóðar á margra milljóna bílunum sínum til þess að væla yfir því að það sé ekki nægilega ódýrt bensín í heiminum og ekki nógu mörg gullklósett við demantslögðu vegina þeirra? Og það með fokking gervitúrban á hausnum? Mann setur hljóðan.






