Ég elska Sveinba súperman
Nei, heyrðu nú mig
Þetta
er gott dæmi um málflutning sem getur ekki verið málstað til framdráttar. Hún sér ekki tenginguna jafnvel þótt myndin í auglýsingunni tengist efni bókarinnar sem verið er að auglýsa. Ég bara skil þetta ekki. Best að taka fram að ég fagna því að það séu til róttækir femínistar sem nenna að standa í baráttu við meðvitundarleysi og klámvæðingu og samhengið þeirra á milli en það hlýtur að vera mikilvægt að… Skyndilega vil ég vitna í sjálfa mig:
Ég hef engan hug á að gera lítið úr þeim viðbjóði sem fyrirfinnst innan klámiðnaðarins. Né heldur skal leika nokkur vafi á því að ég er róttækur erkifemínisti með öllu sem í mér býr. En halló bátar halló skip. Við þurfum að hafa einhverja hugmynd um markmið og leiðir. Hver er boðskapurinn, hver er aðferðin, hverju viljum við sporna við?
Ma, ma ma ma mar bara skilur þetta ekki.
—————-
Now playing: CocoRosie – Jesus Loves Me
via FoxyTunes
Af góðum flippum og lélegum
Ég vitna í dömubindaauglýsingu:
Þannig að þér líður sem hrein og yndisleg.
Þetta jafnast næstum á við Habitatbæklinginn. Þar leynast fjölmörg gullkorn.
Sýnishorn:
Ég er heppin að hafa geta uppfyllt drauma mína; og stór hluti þeirra byrjaði þegar ég var ungur. Í þessu ‘rúmi’ ég vildi ég pakka saman sumum draumum þessa unga drengs, eins og að klifra efst uppí hæðina hjá Róbinson Krúsó; eða að horfa á stjörnurnar út um gluggana á eldflauginni minn. Sérstakleg er uppáhalds svæðið mitt, sem ég vildi bjóða tilfinninguna að búa í skútu. Það skiptir ekki máli ef það er að keppa eða að sigla.
Alveg hreint yndislegt. Minnir óneitanlega dulítið á flipp walterego á Barnalandi frá því í sumar. (Og ef þið hafið ekki þegar lesið það sem leynist bakvið þessa krækju skulið þið gera það hið snarasta. Skyldulesning svo ekki sé meira sagt.)
Í öðrum fréttum er til að mynda að Trausti Salvar Kristjánsson er hress gaur. Hann ber ábyrgð á þessu – einhverju einkennilegasta flippi 21. aldarinnar. Vissulega voðagóðar fréttir fyrir mig en ég kem ekki auga á að þetta séu yfir höfuð fréttir fyrir aðra.
Það stendur annars margt og mikið til hjá mér í þessari viku. Aðallega innan íbúðarinnar. Ef eitthvert langar að vera handlagni gaurinn sem kemur og hjálpar mér er það allt í lagi. Ég skal panta pítsur í kvöldmatinn fyrir svöng og liðtæk.
Ég er að hlusta á fallegasta lag í heimi.
—————-
Now playing: Beth Gibbons & Rustin Man – Funny Time of Year
via FoxyTunes
Jólaplögg
Kæru vinir,
Nýhil kemur seint til byggða líkt og illa uppalinn ellegar timbraður jólasveinn. En þegar Nýhil lætur á sér kræla, þá getur jólakötturinn pakkað saman.
Til heiðurs jólunum efnir Nýhil til upplestrarkvölds í samstarfi við Súfistann, kaffihúsið á upphæðum Bókaverslunar Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 20:00 þriðjudagskvöldið 18. desember. Þar troða upp:
- Ingólfur Gíslason
- Gísli Hvanndal
- Hildur Lilliendahl
- Una Björk Sigurðardóttir
- Hljómsvetin Palindrome
Besta leiðin til að gleðja ættingja, vini og elskendur þessi jólin er nefnilega að færa þeim eina af bókum Nýhiljar að gjöf.
Til þess að gera kaupin á Nýhiljarbókinni sem auðveldust og ánægjulegust hefur félagsskapurinn ákveðið að ánafna ókeypis eintaki af hinu merka ljóðasafni ÁST ÆÐA VARPS með hverri Nýhiljarbók sem keypt er í einhverjum eftirtalinna verslana nú fyrir jólin:
* Eymundsson, Smáralind * Eymundsson, Kringlunni * Eymundsson, Austurstræti * Bókaverslun Máls og menningar, Laugavegi * Bókaverslun Iðu, Lækjargötu * Bóksölu Stúdenta, Háskólatorgi
Með hátíðarkveðjum og í -skapi,
ykkar,
Nýhil
Þessa er ábyggilega beðið með mikilli eftirvæntingu um land allt.
—————-
Now playing: Morrissey – I’ll never be anybody’s hero now
via FoxyTunes
Orð skulu standa

Kolgeðveiki internetstalkerinn minn benti mér á þetta áðan. Krípí.
—————-
Now playing: Queen – You Take My Breath Away
via FoxyTunes
Urrrrrg hvað [ritskoðað í júlí 2008]. Já. Já ég meina stelpur og strákar eru öðruvísi. Kræst. Og já, ég er að horfa á Silfrið um morgun til að pynta sjálfa mig.
Blómaval kynnir: TÓM LEIÐINDI OG VIÐBJÓÐ!
—————-
Now playing: Kvenréttindasöngur – Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg, Signý
via FoxyTunes
Aulahrollinum sem ég fæ yfir miðaldra moggabloggurum sem kalla vettvanginn sem moggablogg er Bloggið verður seint lýst með orðum.
Að öllu öðru leyti er ég afskaplega kát yfir morgunkaffinu mínu í dag.
Coffee in the morning
And wine in the evening
And everything else is boring, boring
You are a nothing
But all I can think of is you
The sun could be shining,
But all I can see is a black and blue
Bruises, bruises, bruises, bruises
—————-
Now playing: Lisa Germano – Bruises
via FoxyTunes







