Archive for November, 2007

November 30th, 2007

Fjölskyldufíflagangur

by Hildur



November 28th, 2007

by Hildur

ÁÁÁBEEENDIIIIIING!

November 27th, 2007

by Hildur

Í dag hef ég hugsað mér að hitta ógrynni af skemmtilegu fólki. Hið annálaða yndi Katrín Mixa er efst á lista. Ok bæææææ.

November 26th, 2007

by Hildur

Jább, þetta var augnablikið þar sem Heroes breyttist endanlega í Charmed. Þarna þar sem gaurinn flaug af stað og greip ódrepandi klappstýruna og þau fóru í sleik svífandi yfir borginni.

November 26th, 2007

brosir

by Hildur

Dauðamánuðurinn virðist ætla að hætta að vera niðurdrepandi. Ég er ekki frá því að restin af honum verði hreinlega bætandi, hressandi og kætandi.

Barnið mitt er að vísu með vægan hita og er því heima í dag en það er líka raunverulega næstum alltaf betra að hafa það heima en að hafa það annarsstaðar.

Eins mikið og mig langar að hemja mig (eða ekki) verð ég eiginlega að búa til litla krækju á þetta hér af því tilefni að hin langa athugasemd (sem var fjarlægð rétt eftir að hún var skrifuð) er komin inn aftur. Og hún er dálítið fyndin. Verður að viðurkennast.

[Uppfært: Glöggur lesandi hefur bent á að athugasemd Óla Sindra hafi ekki verið fjarlægð. Hún var bara aldrei birt. Fyrr en núna þ.e.]

En ég er andlaus og þarf að læra heima. Sjáumst í Helvíti.

November 24th, 2007

Ó feisbúkk

by Hildur

November 23rd, 2007

Haukur Örn aftur!

by Hildur
Þetta er stúlkan sem tilbiður þig.
November 23rd, 2007

Haukur Örn!

by Hildur

Mér sýnist þetta engan endi ætla að taka. Og nei, ég kom hvurgi nálægt.

November 22nd, 2007

P.s.

by Hildur

Hvert fór þessi vika eiginlega?

November 22nd, 2007

Hótanir eru ekki það versta í heimi, skal ég segja þér. Það eru tannpína, stríð og vopn.

by Hildur

Ingólfur Gíslason (hvern ég hata alls ekki) hefur gefið út sína fyrstu ljóðabók, Sekúndu nær dauðanum – vá, tíminn líður! Ég hef reyndar ekki komist í að sækja mitt eintak (hef hug á að gera það á morgun) en ég vildi samt láta ykkur vita það, illa lesnu og sauðheimsku skítafýlurotturnar ykkar, að ef þessi bók selst ekki í þrjúþúsund og fimm hundruð eintökum fyrir jól, munið þið ekki sjá stafkrók frá mér á internetinu framar! Og þið þurfið ekkert að ræða það og getið bara haldið ykkur á mottunni og já, þarna, MÉR ER MOÐARFOKKANS ALVARA!!!!!!!!!!!!