Archive for October, 2007

October 23rd, 2007

Gervimaður Evrópa

by Hildur

Tók einhver annar eftir þessu?

October 18th, 2007

Many faces of snilldur

by Hildur

Þess er skemmst að minnast þegar samnemandi minn og kunningi rakst á 30 ára gamla upptöku þar sem bresk leik- og stjórnmálakona kom fyrir í gervi mínu (eins og ég lít út í dag).

Hér er mynd úr þeirri upptöku og svo fullt af myndum af mér sjálfri 30 árum síðar til samanburðar. Ég myndi sjálfsagt ekki átta mig á því sjálf í fljótu bragði, hver þessi mynda er ekki af mér, ef ég þekkti þær ekki.

Áðan barst mér póstur frá fellow-ritstjórnarmeðlimi Tregawattanna sem bendir á líkindi forsíðumódels síðasta Barnablaðs Moggans og eins ritstjórnarmeðlims. Ætli hann eigi við mig?

October 16th, 2007

by Hildur

Ljóðhátíðarhelgin var fín. Ekki þetta gegndarlausa fyllerí eins og síðast þegar ég tók þátt, við erum öll (eða kannski bara ég) að verða eldri og sívílíseraðri. Það er ágæt þróun.

Einhverju missti ég af, þ.á m. vini mínum Ingólfi GíslasyniÞað sem stendur upp úr af lestrum er í fljótu bragði: Kristínarnar yngri, þ.e. Svava og Eiríks, Linh Dinh og Angela Rawlings. Arngrímur kom á óvart, var miklu miklu betri en bókin hans gefur til kynna, Jón Örn var líka góður… Allt í einu man ég ekki eftir neinum fleiri upplesurum. Gísli Hvanndal (og félagi hans í The Dates) var líka fínn. Hmmm. Eiki klikkaði ekki. Já. Þetta voru topparnir. Svo sat ég seinna málþing og hafði mikla ánægju af, það var helst að það hefði mátt stjórna því af meira harðræði.

Nú liggur leið mín upp í sveit, ég ætla að verja deginum með Angelu Rawlings og Conor, kærastanum hennar. Golden circle! Hell yeah. Að lokum er hér ljósmynd frá sunnudagskvöldi ljóðahátíðar. Dreggjarnar af hátíðinni enn á barnum. Frá vinstri: Eiríkur Örn Norðdahl, Hildur Lilliendahl, Angela Rawlings og Ófeigur Sigurðsson.

October 11th, 2007

Og nóbellinn og borgin mín og gúglið

by Hildur

Hef aldrei nennt að lesa neitt eftir Doris Lessing, svo ég hef ekkert að segja um þetta. Aldrei að vita nema ég fari að kíkja í bækurnar/bókina sem ég á eftir hana, svona af þessu tilefni.

Ég hef annnars verið að dunda mér við að gúgla Doris annað slagið frá því um kl. 11.30. Fyndið. Hef fylgst með niðurstöðunum fjölga úr 915.000 upp í 932.000 á fjórum klukkustundum. Pæling að fara að gera það líka við gamla góða Borgarstjóra eða sjarmaleysið Dr. Arftaka eða Binga bara? Gæti verið fjör. Hugmynd að dundi fyrir þá sem hafa ekkert að gera.

Bendi nánum kunningjum Sævars annars á að kíkja hingað. Moxy er eins árs í dag og býður til kaffis.

October 11th, 2007

Ljóðahátíð off kors…

by Hildur

* Nýhil kynnir *
froðufellandi af stolti:

3JA ALÞJÓÐLEGA LJÓÐAHÁTÍÐ NÝHILS

LJÓÐAPARTÍ #1 – föstudaginn 12. október – Þjóðleikhúskjallaranum 20:30
Kynnir: Ásmundur Ásmundsson
Skáld: Markku Paasonen | Sean Bonney | Lars Skinnebach | Kristín
Ómarsdóttir | Ingólfur Gíslason | Leif Holmstrand | Eiríkur Örn
Norðdahl | Hildur Lilliendahl | Gísli Hvanndal | Una Björk
Sigurðardóttir | Jón Örn Loðmfjörð
Mr. Silla leikur ljúfa tóna

UPPLESTUR – laugardaginn 13. október – Súfistanum, bókaverslun Máls og
menningar 15:00
Skáld: Eiríkur Örn Norðdahl | Ingólfur Gíslason | Gísli Hvanndal |
erlendir heiðursgestir

LJÓÐAPARTÍ #2 – laugardaginn 13. október – Þjóðleikhúskjallaranum 20:30
Kynnir: Ingibjörg Magnadóttir
Skáld: Angela Rawlings | Linh Dinh | Vilja-Tuulia Huotarinen |
Jóhamar | Kristín Eiríksdóttir | Örvar Smárason | Ásmundur Ásmundsson |
Arngrímur Vídalín | Kristín Svava Tómasdóttir | Björk Þorgrímsdóttir Kira
Kira og Ólöf Arnalds leika ljúfa tóna

MÁLÞING UM SAMTÍMALJÓÐLIST – sunnudaginn 14. október – Norræna húsinu
13:00-14:40 „How unpoetic it was” | „En hvað það var
óskáldlegt”
Umræðum stýrir Birna Bjarnadóttir
Skáld: Markku Paasonen | Vilja-Tuulia Huotarinen | Kristín
Eiríksdóttir | Leif Holmstrand | Arngrímur Vídalín
15:00-16:40 „Taking Aim at the Heart of the Present” | „Ör í
hjarta samtímans”
Umræðum stýrir Benedikt Hjartarson
Skáld: Sean Bonney | Angela Rawlings | Ingólfur Gíslason | Lars
Skinnebach | Linh Dinh | Eiríkur Örn Norðdahl

Nánar: www.nyhil.org
Framsendið — en umfram allt: mætið!

F.h. ljóðsins,
Nýhil

October 11th, 2007

Beygist hann snemma?

by Hildur

„Elsku litla pæjan mín“ sagði ég við lasna litla son minn þegar hann tók dragsjóv hérna fyrir mig á ganginum með spariveski móður sinnar á öxlinni rétt í þessu.

Hann svaraði styggur „Þú átt að segja elsku litli pæjulegi karlmaðurinn minn!“

October 7th, 2007

by Hildur

TöffHildur.

October 2nd, 2007

Stöff

by Hildur

Gott Flipp!
Hjá. Atla. Bolla. Þarna.

Annars er ég bara að hanga hérna og læra og eikka. Hér búa enn þrír litlir kettlingar sem sleikja hver annars rassgat. Ótrúlega krúttílegt!

Það líður að jóðlhátíð Nýhiljar (ég vísa hér í Nýhil í kvenkyni sérstaklega fyrir GK sem er femínisti mjög). Þar verður mikið gaman.

Til hamingju þið

með þrjátíu ára brúðkaupsafmælið. Þið eruð krútt.

Þessi hérna krúttbomba er í heimilisleit

Hún er algjört yndi. En ég nenni ekki að eiga hana lengur.