September 20th, 2007
by Hildur
Hér er samtalið sem ég var að eiga við nýja símadrenginn á pítsupleisinu mínu. Fyrir aftan það sem hann segir set ég mína túlkun í hornklofa þegar nauðsyn krefur. Hornklofinn merkir í öllum tilfellum „lööööng þögn ríkir þar til Hildur hefur áttað sig á því hvað retarðurinn er að reyna að segja“.
P: gehaho?
[Pizzahöllin, get ég aðstoðað?]
H: Ah, já, gott kvöld. Ég ætla að panta pizzu og sækja hana á Dalbraut.
P: Uh ókeeeei jááá bíddduh. Hambjohe.
Þögn.
P: HAMBJOHE?
[Hvað má bjóða þér?]
H: Ó já, fyrirgefðu. Eru ekki einhver tilboð?
P: Tilllllbooooooð þareitt ossalega gott tiboð stór einu áleggi á níndronítju og aukaálegg á hundrafimmtju. Skilduredda?
H: Já, ég skildi þetta. Ég ætla að fá svoleiðis með pepperóní og papríku.
P: Öööööööö. Ókeeeeeeeei. Kanaha?
[Hvert er nafnið?]
H: Það er Hildur.
P: Hildur?
H: Já.
P: Er það Há-i-ell-dé-u-err?
H: Já.
P: Njahkei tilbehttemah.
[Nú já, ókei, það verður tilbúið eftir hálftíma]
Ég verð að viðurkenna að ég dauðsé eftir því að hafa ekki sagt honum að það væri H-y-l-l-t-u-r. Hefði verið gaman ef hann hefði fallið fyrir því.
Uncategorized |
No Comments »
September 20th, 2007
by Hildur
Það er skyndilega komin flunkuný skærblá tunna fyrir utan húsið mitt. Tunna með engum rispum. Beint frá útlöndum. Stórglæsileg. Galtóm. Frá Reykjavíkurborg. Fyrir dagblöð og tímarit. Gott og vel, gamli góði Villi hefur áhuga á umhverfinu og blabla. Ég geri þó alvarlega athugasemd við eitt. Hvers vegna í fjandanum er rukkað fyrir notkun á tunnunni í staðinn fyrir að hafa hana ókeypis og sekta þá sem nota hana ekki?
Uncategorized |
No Comments »
September 20th, 2007
by Hildur
Vá, ég hafði ekki áttað mig á því að þetta félag væri ekki þegar til. Ég ætla allavega að mæta á stofnfundinn.
Uncategorized |
No Comments »
September 19th, 2007
by Hildur
Þetta
er sjúklega
fyndið.
hann
er vissulega
Hot.
En
samt.
Uncategorized |
No Comments »
September 7th, 2007
by Hildur

Jájá, einmitt. Allt í góðu. Sleppum bara þessu jafnréttiskjaftæði. Leyfum konum bara að vera verðlaunagripir í eigu karlmanna sem þeir geta sýnt eftir hentisemi. Fokkings fokk.
Uncategorized |
No Comments »
September 6th, 2007
by Hildur
Jeg ætti kannske að fara að undirbúa mig undir djobbið?
Uncategorized |
No Comments »