Archive for July 3rd, 2007

July 3rd, 2007

Since when were you so generous and inarticulate

by Hildur

Æi djísus. Ég logga mig loksins inn á þennan blogger (riþmi, ljóðræna, væmni, takið eftir) eftir að hafa verið á landinu í tíu daga og einhvernveginn eru öll umræðuefni gömul og dauð. Ég kveikti á tölvunni minni í gær í fyrsta skipti síðan ég kom heim.

Tíminn eftir heimkomu hefur einkennst af bjórdrykkju, ánægjulegum og sorglegum samskiptum og sól, þá sjaldan að ég hef ekki verið í vinnunni, en flesta daga er ég á tólf tíma vöktum innan dyra. Og nú er ég loksins komin á internetið með Bonní Prins og Bobb Dillan og Elvis Kostelló og PJ Harví og Stínu Nordenstam og og og og öllum hinum sem ég hef næstum saknað og það eina sem promptaði mig til að blogga var Gerður í Fréttablaðinu fyrir löngu löngu (sjá aðeins neðar) og Haukur í Víðsjá fyrir löngu löngu. High five til ykkar beggja beibís.