Djöfull áttu skrítna aðdáendur sagði við mig maðurinn sem ber ábyrgð á þessum bakþönkum – sem, ásamt Evu Braun, hafa verið að hlægja mig ósegjanlega undanfarna daga. Hann vísar sennilega til fólks eins og þessa. Áhugaverðari finnst mér spurningin um hvernig geti staðið á því að huldubloggarar hafi svona mikinn áhuga á mér. Ég man ekki hvort ég viðraði einhverntímann þá kenningu hér að Eyvindur Karlsson væri maðurinn á bakvið Flautublásarann. Hann er augljósasti kosturinn: ekki sérstaklega góður penni sem hafði horn í síðu okkar beggja. Mengellu og mín þ.e. Ég rakst annars á heilsíðuviðtal við Mengellu í einhverju blaði um daginn. Skemmtilegt.
En nóg um kjánaprik. Ég kem vel undan vetri. Kát og glöð. Skotin í sætum strák og er á leiðinni til Spánar fyrr en síðar. Já – eins og Brissó. Sól strönd sjór með fjölskyldunni vikum saman. Tilhlökkunarefni að mestu leyti.
Og áðan gaf ég fyrsta kettlinginn. Tveir eftir semsagt, einn vill endilega búa hjá okkur áfram og við ætlum ekki að banna honum það.
Nældi mér á dögunum í aðstoðarmannsstöðu við málnotkunarrannsókn sem er agalega spennandi. Hangi með krakkanum úti á kvöldin í góða veðrinu, fer með honum í bíó þegar snjóar. Þjóna eins og eigi líf að leysa þess á milli. Og á góða iðjuleysisdaga þess á milli þar sem ég horfi kannski á vídjó eða les internetið eða kela við sæta strákinn eða kettlingana eða bara loka augunum og hlusta á Melanie.
Look what they’ve done to my song, Ma
Look what they’ve done to my song
Well it’s the only thing I could do half right
And it’s turning out all wrong, Ma
Look what they’ve done to my song
Look what they’ve done to my brain, Ma
Look what they’ve done to my brain
Well they picked it like a chicken bone
And I think I’m half insane, Ma
Look what they’ve done to my song
I wish I could find a good book to live in
Wish I could find a good book
Well, if I could find a real good book
I’d never have to come out and look at
What they’ve done to my song
But maybe it’ll all be all right, Ma
Maybe it’ll all be OK
Well, if the people are buying tears
I’ll be rich some day, Ma
Look what they’ve done to my song
Ils ont changé ma chanson, Ma
Ils ont changé ma chanson
C’est la seule chose que je peux faire
Et çe n’est pas bon, Ma
Ils ont changé ma chanson
Look what they’ve done to my song, Ma
Look what they’ve done to my song
Well they tied it up in a plastic bag
And turned it upside down
Look what they’ve done to my song
Look what they’ve done to my song, Ma
Look what they’ve done to my song
Well it’s the only thing I could do all right
And they turned it upside down
Look what they’ve done to my song