Það er grunsamlega algengt þessa dagana að einhver bílflauti fyrir utan stofugluggann minn seint á kvöldin. Hefur einhver kenningu?
Fréttir af barnum og internetinu
Tungl rímar við kartnögl. Samkvæmt Elíasi sem ég hitti á barnum einhverntímann í vor. Og fyrst við erum farin að spjalla um barinn: Næsti bar hefur opnað aftur með glæsilega salernisaðstöðu. Karlar nota nú kvennaklósettið vilji þeir sitja. Það þykir mér óþolandi með öllu. Jafnvel jafnmikiðóþolandi og að á Ölstofunni skuli vera tvö klósett fyrir konur og fimmtánhundruð fyrir karla. Piff.
Og Hnakkus er farinn að blogga svona annað veifið. Sem er afar vel, ég sakna hans þegar hann stoppar.
Jónssala stúdenta
Ég held að það sé best að ég plöggi hér Jónsa og útsöluna hans. Annars vegar vegna þess að ég skulda honum það eftir allan matinn og áfengið og afnotin af barninu hans og konunni frá því um helgina og hinsvegar vegna þess að öllum er hollt að líta við á umræddri útsölu, svo ekki sé talað um umrædda síðu sem er á köflum stórskemmtileg. Færslan sem hlekkjað er á er gott dæmi um slíkt.
Ég stel frá ÞórSt.Elskulegur vinur minn hefur vakið athygli mína á annarri andskotans moggabloggfærslu. Þetta er einkennilegt. Ég veit ekki alveg hvað þessi maður er að hugsa – hvernig nákvæmlega hann fúnkerar. Dúbíus. Hér er kaflinn sem um ræðir:
En aftur að Smáralind. Maður skyldi ætla að maður sæi ákveðin þverskurð af íslensku þjóðinni þarna inni á einni helgi og miðað við það þá kemur margt á óvart. Fjöldi útlendinga kom mér gríðarlega á óvart og ég skal orða þetta varlega en þetta hugsaði ég. Mikið hafa útlendingar það gott á landinu bláa ef að þeir þurfa ekki að vinna á laugardögum!! Þetta er ekki illa meint en útlendingum fjölgaði í kjölfar aukinnar eftirspurnar eftir vinnuafli….Sem greinilega er ekki nýtt á laugardögum.
Voðaleg traffík er hérna
Var Þórdís að hlekkja á mig eða hvað? Annars er hér ljóðastund eins og alltaf þegar ég er að læra. Að þessu sinni ljóð sem ég skil mjög illa þar sem það er skrifað á tungumáli sem ég kann lítið í. En kannski eina tungumálinu sem er ljóð í sjálfu sér. Og þýðing óskast.
Serás comunista pero te quiero
Si llora después leer a Pablo Neruda
tiene una vida detrás
Si ríe comienza la trayectoria de la luz.
‹‹Los recuerdos son engramas. ¿Y eso qué es?
Son como cicatrices en la cabeza. Y entonces vio
una fila de personas con escoplo de carpintero haciendo
cicatrices en la cabeza››.
Manuel Rivas Lápiz de carpintero
Arsenio Rodríguez Quintana
f. 1964
Sýnishorn í ýmsum merkingum

Á Lauga-ási vinnur með mér barnungur Spánverji. Krúttlegur og lífsglaður hnakki sem missti hlutastarfið sitt þegar Pravda brann. Hann sagði einu sinni við mig You have problem. You have the very tiny small butt and then you have VERY big titties. How is this? Is like they take all that is down there and put it here in front. Funny haha. Myndin hér að ofan er handa honum, þótt hann muni sennilega aldrei sjá þetta og ég viti þar að auki ekkert hversu vel hún á við.
Hér er Salvador Dalí að segja Kalla Yngsta brandara – en þessa hafði Maggý reyndar þegar séð
Hér er móðirin komin lengst inn í bókahillu og ungarnir reyna að herma eftir
Hér er sá vinstra megin að reyna að beita þyngdaraflinu til þess að ná Áhyggjudúkkum úr skápnum, meðan sá hægra megin treður niður Símon og eikurnar til þess að komast í hillu sem inniheldur Patrik Suskind, Doris Lessing, Einar Má, Böðvar Guðmundsson, Oscar Wilde, Truman Capote, Kundera, Steinbeck, Houellebecq, Bruno Schulz, Stefan Zweig (nei Ingólfur, ekki þína bók), Flann O’Brien (mæli með henni) og Shakespeare. Það er ekki alveg ljóst hverju kötturinn var að sækjast eftir en hann virðist helst vera að gjóa augunum á Þrúgur reiðinnar. Sem er fulllöng og óspennandi bók fyrir vitlausan krakka.
Þessa dagana er afar sorglegt mál í gangi á internetinu. Fyrirbæri sem kallast USA pant og er stjórnað af Birnu nokkurri í Texas, hefur gabbað nokkrar grunlausar íslenskar húsmæður sem áttu sér einskis ills von þegar þær báðu Birnu að hjálpa sér að svíkja undan skatti. Barnaland stendur í ljósum logum og hlunnförnu saklausu skattsvikakonurnar rotta sig saman um hefndaraðgerðir í trylltu og froðufellandi bræðiskasti.
Ef ég hef skilið það litla sem ég hef kynnt mér um þetta mál rétt, þá lítur það svona út: Konur panta vörur frá Bandaríkjunum, láta senda þær til Birnu sem lofar að senda til baka og láta líta út eins og gjöf og voilá: konur losna við skatta, tolla og gjöld. Nema hvað. Birna, sem er sjálfsagt frekar klók, hætti að senda konunum vörurnar. Svo barasta hætti hún að svara tölvupóstum, hætti að svara símanum og skattsvikararnir geta hvorki náð til hennar sjálfir né kært hana án þess að verða uppvísir að eigin lögbroti. Snilld. Nema hvað. Þær eru svooooo reiðar. Sem gerir þetta allt saman svo brjálæðislega hillaríuslí fyndið. Ónefnd vinkona mín tók að sér að semja bréf fyrir skattsvikarana og hvatti þær til að skrifa allar undir og senda til lögreglunnar í Texas, FBI, CIA, NASA, NAACP, NRA, LAPD, NYPD og Hvíta hússins. Bréf þetta kópírast hér að neðan með leyfi unaðslega fyndnu vinkonu minnar. Lesið heil. Reglulega.
Dear whoever this is,
I write to you from Iceland. Yes it is a very beautiful contry and it is true what everybody say, Iceland is green but Greenland is ice. Yes it is so very funny and you should visit us soon because we have a many wonderful things like the clean airs and the mountains are also clean and verry beutiful. Also we have the most beatiful womans in the whole worlds like you remember Linda P and Unnur Birna. Also we eat fish and are very strong like Jón Páll. We are also more talented than Americans because Im sure you remember Magni and he almost won on american tv which is amzing for someone from such a small countrys to win on tv almost. We are so prud of Magni and I will send you a pictures of him if you want.
Anyways I am writin because there is a very bad lady in Texas. She advertise on the internets on babyland that she helps people with fraud and tax evasion. I buy things nad send them to her in her name and then she was supposesd to pretend to give them to me so I wouldnt have to pay any taxes. But she is very bad and she is keeping her things herself and not giving me them as gifts. I have heard that ou have the death penalty there in Texas so I am very happy that she live there and I hope that you will put her in the jail and then kill her for what she has done. I buy 15 Victorias secrets sprey and one mickey mous ediaper bag and it cost almost 70 dollar and she is keeping it and not answering her phones or anything. So please put her in the jail.
Thank you.
……………………..
PS: Her husband is black and a solder. Kill him too.







