Hmm. Hér má sjá brot úr Kastljósi gærdagsins. Þarna kemur tvennt ákaflega skýrt fram:
1. Það er ekki ólöglegt að neyta ólöglegra fíkniefna eða að vera undir áhrifum þeirra.
2. Lögregla tekur stroksýni úr fólki á vettvangi til þess að athuga hvort það hafi neytt ólöglegra fíkniefna.
Nú spyr fávís: Hvernig samræmast þessi tvö atriði?
Mig fýsir líka að vita hvernig það er réttlætt að sýna myndbandsupptöku í Ríkissjónvarpi af því þegar ráðist er inn á heimili fólks, heimaland þeirra tiltekið og fullyrt af hæstvirtum Sigmari að fólk af viðkomandi uppruna sé umfangsmikið í íslenska fíkniefnaheiminum. Er smart af Kastljósi að ýta undir fordóma gegn Litháum án þess að gefa einu sinni uppi statistík eða nokkur einustu rök sem styðja framburðinn?
Hér er lögreglan að leita í íbúðarhúsnæði þar sem Litháar búa. Vitað er til þess að Litháar eru umfangsmiklir í íslenska fíkniefnaheiminum. [...] Íbúarnir eru pollrólegir og óvenju samvinnuþýðir við leitina. En það er engin áhætta tekin (!!) og leitað er hátt og lágt. [...] Ekkert finnst að þessu sinni fyrir utan hin klassísku tæki til fíkniefnaneyslu. Kókflöskur til dæmis?








