Archive for December, 2006

December 27th, 2006

Jólaandapirringur

by snilldur

Ég sagði vini mínum áðan að ég hefði snúið aftur til vinnu í dag og liti á mig sem ofurhetju fyrir vikið. Hann sagði að ég væri vitleysingur og vinna væri ekki dyggð. Ég er alin upp við þær meiningar föður míns að vinna sé dyggð, að sofna snemma og vakna snemma sé dyggð, að hlusta á Gufuna sé dyggð, þið fattið hvað ég á við. Ruglingslegt.

Annars vil ég koma því á framfæri að mér þykja Þorvaldur Bjarni og Sigrún Eðvaldsdóttir tónlistarmenn, gjörsamlega óþolandi, þrátt fyrir að hvorugt þeirra hafi gert nokkuð á minn hlut. Og þrátt fyrir að ég sé barnaleg og hallærisleg að vera að útvarpa þessum óforsvaranlegu skoðunum mínum, tel ég mig vera í fullum rétti til að fordæma þau viðurstyggilegu kvenhatandi sóðaviðhorf sem birtast hér. Andskotinn hafi það hvað mér finnst þetta ógeðslegt.

December 23rd, 2006

by snilldur

Tölvan mín fannst. Í góðu dópgreni. Frábært orð, dópgreni. Er ekki búin að sækja hana, en ég ætti að geta gert það hvenær sem er. Ég fékk risastóra blómakörfu senda frá vini mínum í Ameríku. Svona eins og í bíó. Búin að kæra. Allt gengur vel. Það liggur við að ég hlakki til jólanna. Ho ho ho.

December 20th, 2006

Ég skal ekki segja

by snilldur

Læknir á slysadeild að meta áverka:

„Varstu með beint nef?“

December 20th, 2006

Fokið í flest skjól

by snilldur

Samtal við mann á slysadeild:

„Geturðu alveg gengið?“
-„Jájá, ég er ekki í teljandi vandræðum með það“
-„Það var nú gott, það eru allir hjólastólar í lamasessi hérna“

December 19th, 2006

by snilldur

Jólablús?

Hahahaha krakkar mínir komiði sæll og blellaður.

Í nótt gisti ég hjá systur minni. Á erfitt með að vera ein í kjölfarið af líkamsárásinni hressilegu. Vakti lengi frameftir á sófanum, erfitt með svefn og svona. Varð óbeint vitni að því þegar brotist var inn í íbúðina. Þ.e. ég heyrði umganginn, sá dyr lokast etc. Tókst að lokum að selja sjálfri mér hugmyndina um að ég hefði ímyndað mér það. Kannski með ofskynjanir af kvíða or somþíng. Vaknaði svo snemma í morgun og við (ég og heimilisfólkið) áttuðum okkur á því að það hefði raunverulega verið brotist inn. Tölvunni minni og tölvu mágs míns var stolið. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en langt var liðið á daginn að ég vissi alveg í nótt, og gerði mér fulla meðvitaða grein fyrir því, að það væri verið að brjótast inn. Mér tókst bara að tækla það á afneituninni. Mjög flott hjá mér. Magnað helvítis helvíti. Þessu ætlar ekki að ljúka. Ég er sæmilega óhress. Ekki að það grói ekki. Það koma jól, glóðaraugu eður ei, tölva eður ei.

walterego sendi góðar ráðleggingar: hytaðu þér kakó og skeltu rommlögg útí. skrýddu undir sæng og horðu á bresska gamanþætti. hlustaðu á tom waits og lestu þórberg. hytaðu þér samloku í applesýnugula gryllinu. fáðu þér bjór. heymurin er ekki breittur eftir þetta frekar enn eftir 11. seftember. eina sem er breitt er þú, og þú ert sterrkari en fir. ekkert annað. það er ágætt að ala sorg sína, en enn betra að njóta þess góða í lýfinu.

semdu svo beytt ljóð um alt saman. tækklaðu spýtthórurnar á plani sem þær hafa ekki vytsmunalega burrði til að komast á.

December 18th, 2006

by snilldur

Ég er á skemmtilegum póstlista sem færði mér þetta í dag:

It’s time for The Reduplicatives. That could be the name of a rock band — the one known for razzle-dazzle and a hoity-toity demeanor. They come in pairs, have a little chit-chat, and then hurry-scurry off to their next go-go gig.

Reduplicatives are words formed when a term is either repeated exactly (as in bonbon), or with a slight variation in the vowel (as in ping-pong), or consonant (as in higgledy-piggledy). This process of compound word formation is known as reduplication. [Ha? Klifun? Með eða án tilbrigða? Heitir þetta eitthvað í íslenskri málfræði? Eru málvísindahugtök almennt þýdd hvort sem um er að ræða fyrirbæri sem eru til í íslensku eða ekki? Er þetta til í íslensku? Nenni ég hvorki að hugsa né fletta upp í bókum? Rétt til getið. Annars er ég líka hálfsljó og einbeitingarlaus í dag.]

So let’s not shilly-shally or be wishy-washy but look at a mish-mash of
such super-duper terms, sometimes also called ricochet words, this week.

bling-bling (bling-bling) noun

Expensive, flashy jewelry or other items.

[From hip-hop slang, apparently imitative of the sounds of the clanging jewelry, or of the light reflecting from them.]

-Anu Garg (garg wordsmith.org)

“I did make casual mention of some jewelry shop offering easy payment scheme options, but really, it doesn’t take bling-bling to bring me bliss.”
Fenny Aprilin Tanza; Not-so-merry Anniversary; The Star (Kuala Lumpur,
Malaysia); Nov 18, 2006.

Gaman að þessu.

December 18th, 2006

by snilldur

Hahahaha, að maður skuli fylgjast með þessu ógeðslega klámi. „Sigmundur Ernir, eins og við öll vitum, á eina dóttur, sem er lasin. Ég er kannski með tuttugu dætur þessa lands hérna inni! Sem ég þarf að halda utan um! [...] Talvan [sic] mín hefur alltaf verið opin!“

-Guðmundur Jónsson (?), Byrgisperri, í viðtali á Bylgjunni (sem ég hata) rétt í þessu.

Af hverju lætur maðurinn ekki af þessum dapurlegu varnarháttum? Og ég spyr aftur: Hvers vegna velti ég mér uppúr klámi? Oj. Ég ætla að laga kaffi.

December 18th, 2006

Mikið fjör

by snilldur

Ekki stanna lille ven! Það er langt síðan þú hefur séð þennan er það ekki?

Jæja já. Þetta var nú alveg að einhverju leyti ágætis helgi held ég. Í gær náði ég Eika í mýflugumyndarkaffibolla á Reykjavíkurflugvelli, hvar hann millilenti. Hann er geysilega myndó með nýju klippinguna (nei hann bað mig ekki um að segja þetta). Í kjölfarið fór ég að spá í eitt: Það hlýtur að vera frekar niðurdrepandi að vita til þess að eina flugleiðin úr heimabænum liggi til Reykjavíkur. Fúlt svolítið að hafa enga valkosti. Jafnvel þótt frá Reykjavík sé hægt að komast hvert sem er og allt það bla, bara þessi… tjah, forræðishyggja. Ef þú vilt komast í burtu þá skaltu andskotinn hafi það fara til Reykjavíkur.

Steinar Bragi var hress í Lesbókinni (sem ég las í nótt undir áhrifum svefnlyfja, kannski var hann ekkert svo hress.) Ljósmyndasýningin á Borgarbókasafninu er ágætlega skemmtileg, þar er í mesta lagi eitt flipp hjá fyrirsætu, ein vonlaus mynd af vonlausu viðfangi og ein mjög vel heppnuð mynd, jafnveg einlæg eins mikið og ég hata það orð. Svo er bara að sjá hver fær janúar. Það voru upplestrar á opnuninni, SBragi las úr Litla kalli, tvær skemmtilegustu síðurnar mind you. Kallaði bókina pólitískt áróðursrit gegn Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, sagði börn vera litlar heimskar ófullkomnar verur sem skilja ekki sjitt og þuldi svo upp heilu aríurnar af blótsyrðum. Þetta gerði hann fyrir framan dágóðan slatta af börnum sem þarna var samankominn.

Í kjölfarið kom upp spurningin milli mín og föður hvort við myndum taka fyrir eyrun á okkar börnum undir svona kringumstæðum. Ég myndi ekki gera það, blótsyrði drepa engan. Ótti flipp las svo allt fyrsta bindi ævisögu Hannesar, það þótti mér gaman. Það er annars mér að þakka að Ótti flipp er svona söluhár. Ég keypti tuttugu eintök.

Annars hef ég bara verið að læra. Já og á laugardaginn fór ég á barinn líka eins og sjá má af myndinni hér að neðan. Hitti tvær kolbilaðar spíttstúlkur. Smápíkur. Þær fíluðu mig ekki mjög vel. Skyldi engan undra. Ég er dulítið lemstruð á líkama og sál. Ég er tvíbrotin í andlitinu og marin og bólgin víða, en hef hugsað mér að láta skoða mig aftur og vera viss um að allt sé á áverkavottorðinu áður en ég kæri. Það verður gengið í þetta allt í vikunni.

Annars eru bara að koma jól, ég þurfti að fresta síðasta prófinu (slys+beinbrot stendur á vottorði) og ætla mér að hanga doldið með krakkanum í vikunni. Og svo auðvitað vinna. Ég viðurkenni hinsvegar hér með að ég kvíði sjúklega fyrir því að fara í vinnuna, úr hverri ég er í veikindafríi í dag, og ég stefni að því að skrópa í jólaboðum.

Mig langar ekki að vera á mannamótum (incl. vinnu) þar sem andlitið á mér er aðalumræðuefni, jafnvel þótt höh og hsm þyki glóðaraugu sexí, bera vott um styrk. Mér finnst ég bara vera Gérard Depardieu plús glóðaraugu. Svo finnst mér óþolandi með öllu að ég skuli veita óhóflegu vatni á myllu allra úthverfabúanna sem eru sífellt að berjast fyrir því að fleiri úthverfabúar átti sig á því að það sé bara ekki mönnum vogandi að fara niður í miðbæ eftir kvöldmat – allir sem þangað koma eru ristir á hol með butterflyhnífum eða þeim nauðgað af eystrasaltsríkjum. Sjarap.

December 18th, 2006

Sæt í dag II

by snilldur

En ég er semsagt á höttunum eftir vitnum. Þau mega gjarnan gefa sig fram við undirritaða.

December 18th, 2006

Sæt í dag

by snilldur