Archive for November 3rd, 2006

November 3rd, 2006

Smáskilaboð

by Hildur

Eiki þú varst æði í Kastljósi. Ég er að hugsa um að útnefna þig siðferðislegan leiðtoga lífs míns vegna þinna heilbrigðu, óbrengluðu skoðana og lífssýnar. Hver veit nema ég geti farið að boða trú á þig í grunnskólum eftir nokkur hundruð ár? Mamma biður að heilsa.

November 3rd, 2006

Eh

by Hildur

Þriðja árið í röð fæ ég kjánahroll yfir þessu. Á ekki að kaupa kók? Ekki að versla í matvöruverslunum? Ekki í húsgagnaverslunum? Ekki í sjoppum? Ekki við mjólkursamsöluna? Jæja. Pant ekki fá mér lógó, heldur lifa af nóvember með nefið ofan í skólabókum og reyna að leiða hjá mér markaðsjólin.

November 3rd, 2006

Kveður hljóðs

by Hildur

Katrín hin ódæla. Og talar út úr mínu hjarta.

Tak for det!

Er annars á kafi í hommunum, bið ykkur að fyrirgefa, blogga síðar. Í gær, útgáfufjör, mikið gaman, bækur fagrar, fólk líka, yfir, út.