Mér þótti kómískt að lesa fyrstu málsgreinina í þessari færslu. Sérstaklega þar sem ég fór á síðuna héðan og hef ábyggilega aldrei komið inn á hana áður. Merkileg tilviljun að rekast þá einmitt á þessa færslu. Það er nefnilega þannig að kokkurinn minn er ennþá til staðar og ég er ennþá ánægð með hann. Mig vantar hins vegar ennþá homma. Fékk skyndilega á tilfinninguna að í mér byggju mergðir sem héldu úti bloggum sem Snilldur/Rassabora vissi einfaldlega ekki af. Funny haha. Farin í skólann. BLESS!
Meira um prófkjörsmál
Hér er lítil kyngreining á tíu efstu sætunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Í boði Auðar Magndísar Leiknisdóttur. Ég las einhversstaðar að bloggarar væru almennt að stela þessu svo ég ákvað að gera slíkt hið sama.
7 karlar af þeim 11 sem buðu sig fram komust á topp 10
3 konur af þeim 7 sem buðu sig fram komust á topp 10
Karlar sóttust að meðaltali eftir sæti nr. 4,4
Konur sóttust að meðaltali eftir sæti nr. 5,5.
Karlar komust að meðaltali í sæti nr. 3,1
Konur komust að meðaltali í sæti nr. 6,7.
Frábært Ásta Möller að staða kvenna sé svona sterk innan flokksins. Só prittí.
Gúgl um nótt
Niðurstöður 1 – 10 af um það bil 36.800 fyrir “mér langar”. (0,08 sekúndur)
Bara svona að gamni.
Djöfull
Ásta segir stöðu kvenna á listanum sterka nú þegar þrjár konur eru meðal tíu efstu.
-Fréttablaðið 29. október 2006.
Ég hata fólk.
Is it me you're looking for?
Þessi miðill er æðislegur. Er það eitthvert lögmál að starfsmenn fréttamiðla á internetinu (textavarp tótallí inklúded) þurfi að senda frá sér skammarlega illa unnið kjaftæði hugsunarlaust?
Leitaði lækninga já vegna SKORTS Á ÞYNGD? Er verið að reyna að gera lesendur geðbilaða? Kann þetta pakk ekki að skammast sín?
Ljóðastund
Nokkrar verklegar æfingar
í atburðaskáldskap
1.
Fara inn í Reykjavíkur Apótek og biðja um venjulega herraklippingu. Leggja áherslu á að hún eigi bara að vera venjuleg ef bið verður á þjónustu.
2.
Fara inn á Aðalpósthúsið í Reykjavík og biðja um tveggja manna herbergi með baði. Taka fram að það þurfi hins vegar ekki að vera með síma.
Verða undrandi að skuli ekki vera bað á herbergjunum ef afgreiðslustúlkan segist ekki hafa nein herbergi.
3.
Ganga inn um aðaldyr Alþingis og biðja þingvörð mjög kurteislega að fá að tala við Lilla klifurmús.
Ef þingvörðurinn kannast ekki við neinn með því nafni á að spyrja hann hvort hann sé nýbyrjaður.
4.
Fara inn á Hótel Borg og fá sér sæti í veitingasalnum. Biðja um réttlæti þegar þjónninn kemur.
Ef þjónninn segist ekki vera með neitt þess háttar á að benda á myndina af Jóhannesi Jósefssyni og skora á þjóninn að taka eina glímu.
Þegar lögreglan kemur á að veifa Ljóð námu völd eftir Sigurð Pálsson til sönnunar því að allt sé þetta samkvæmt bókinni.
Ég biðst annars afsökunar á því að geta ekki notað indent. Þar sem eru tvöföld línubil eiga að vera indent. Líka á undan öllum tölustöfunum. En ég kann ekki kóða fyrir indent og hef ekki tíma til að leita að honum. Bite me. Ljóðið er ekki svo mjög síðra indentalaust.
UPPFÆRT: Mér var rétt í þessu bent á að mér hafi láðst að geta heimilda. Eins og fram kemur í ljóðinu sjálfu (og ábendarinn telur fráleitt að sé augljóst) er skáldið Sigurður Pálsson og bókin Ljóð námu völd. Ég biðst forláts. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir því að nokkur hafi lesið ljóðið án þess að hafa þekkt það. Þeir sem á annað borð lesa ljóð hljóta að þekkja Nokkrar verklegar æfingar í atburðaskáldskap. Og þó. Þetta er allavega komið á hreint núna.
Jesús
113.00 113 RUV Fos 27 OKT 2006 15.52:41
#### INNLENDAR FRÉTTIR 102
### ERLENDAR FRÉTTIR 103 27. OKT.
Vinnuslys: Betur fór en á horfðist
Mannurinn sem slasaðist við vinnu á
Selfossi á tólfta tímanum í gærkvöldi
er ekki alvarlega meiddur að sögn
vakthafandi læknis.
Allt að 500 kílóa kassi féll úr 3 metra
hæð á manninn og hlaut hann höfuðáverka
og var fluttur með á Landspítala-
háskólasjúkrahús.
Frábært.
Kínverska í kornflexpakka
Ég bið ykkur innilega að fyrirgefa að hingað hafi ekki komið ein einasta færsla í gær. Ég mun ekki leyfa þessu að endurtaka sig. Ég skrapp heim í hádeginu, ætlaði að vekja kokkinn í rúminu mínu – en alas, enginn kokkur sefur þar. Sama hvar ég leita, það bara er ekki kokkur hérna inni. Svo ég fór bara að lesa internetið í staðinn. Nú þarf ég að fara að snúa aftur til vinnu minnar, en fyrst verð ég samt að hvetja ykkur til að læra kínversku á fimm mínútum. Það er líklega nauðsynlegt að lesa kínverskuna upphátt. Kannski finnst engum öðrum þetta fyndið en hér sit ég allavega í sófanum mínum, les og les og er bókstaflega tryllt af hlátri. Góða skemmtun.
Lærið kínversku á 5 minútum
1) That’s not right ………………………..Sum Ting Wong
2) Are you harboring a fugitive?…………….Hu Yu Hai Ding
3) See me ASAP……………………………….Kum Hia Nao
4) Stupid Man …………………………………..Dum Fuk
5) Small Horse ……………………………..Tai Ni Po Ni
6) Did you go to the beach? …………………Wai Yu So Tan
7) I bumped into a coffee table ………Ai Bang Mai Fa Kin Ni
I think you need a face lift ……………….Chin Tu Fat
9) It’s very dark in here ……………………..Wai So Dim
10) I thought you were on a diet ………….Wai Yu Mun Ching
11) This is a tow away zone …………………..No Pah King
12) Our meeting is scheduled for next week……Wai Yu Kum Nao
13) Staying out of sight ……………………..Lei Ying Lo
14) He’s cleaning his automobile ………………Wa Shing Ka
15) Your body odor is offensive ……………..Yu Stin Ki Pu
16) Great ………………………………….Fa Kin Su Pa
Frábært
Skápahommar athugið
Áhugavert að skv. vinsælustu leitarvél internetsins hefur ekkert verið skrifað á íslensku um Frank O’Hara nema af Eiríki Erni Norðdahl í samhengi við sjálfa mig. Það hefur semsagt enginn talað um Frank á interneti á íslensku nema til að líkja mér við hann. Djöfull sem kona getur orðið montin af litlu, ha.
Þessi dagur hefði annars tæplega geta farið betur af stað, ég er í glimrandi fínu skapi. Að lesa bloggið þitt þessa dagana er eins og að svífa á vængjum ástarinnar sagði vinur minn um daginn, rétt eftir að hann spurði hvort ég væri trúlofuð. Ég er hvorki trúlofuð né ástfangin. En ég er vissulega skotin og kát. Ekki að ykkur komi það eitthvað við.
Hins vegar er ég að drepast úr höfuðverk. Og ég tek ekki pillur. Fæ svo sjaldan höfuðverk að mér finnst einhvern veginn eins og ég ætti bara að drulla mér til að halda kjafti og þola þennan eina dag. Svona af því að sumir eru með mígreni og svona. Ég held að höfuðverkurinn stafi af vöðvabólgu sem aftur stafar af svefnleysi. Ég er alltaf að læra á nóttunni. Djísus kræst.
Og já hei! Í kvöld hefjast formlega ritgerðarskrif í hommafaginu. Og hér er auglýsing, lesendafjöldinn hérna er orðinn slíkur að auglýsing gæti aksjúallí borið árangur:
Ef þú, lesandi góður, veist til þess að einhver í kringum þig hafi átt (nafnlaus) samkynjaskyndikynni sem komið hefur verið á t.a.m. via einkamálavefi eða bara í cruise-inu í Öskjuhlíðinni eða á annan sambærilegan máta, þá vil ég gjarnan ná tali af viðkomandi. Hægt er að tala við mig gegnum tölvupóst eða msn (báðar leiðirnar má finna efst á síðunni) og ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn. Ekki samt fara að ljúga að mér eða reyna að hrekkja mig, það væri mjög ljótt, leiðinlegt og sóðalegt. Ég yrði ákaflega sár.





