Archive for August, 2006

August 31st, 2006

Skjárinn.is

by Hildur

Þeir eru lélegri í íslensku en ég! Hvergi annarsstaðar en á SKJÁEinum finnur þú jafn mikið af fyrsta flokks sjónvarpsefni. Dagskráin er ótæmandi af innlendum og erlendum þáttum sem slegið hafa í gegn og stöðugt bætast nýjir smellir í hópinn.

August 31st, 2006

Hámark letinnar

by Hildur

er að liggja í sófa með tölvu í fangi og fletta í gegnum niðurstöður googlemyndaleitar af router-tegundinni sinni af því að maður nennir ekki að standa upp og ganga alla leið inn í svefnherbergi til að komast að því hvað routerinn heitir. Ég hef misboðið sjálfri mér.

August 31st, 2006

by Hildur

Það er frekar mikið að gera hér í Hádegi og því lítið um blogg. Klukkan er hálfsjö og ég er hér enn. Sé ekki fram á að losna neitt alveg á næstunni. Sem er ágætt, monní monní og allt það. En ég á erindi við ykkur.

Vill einhver hinna prýðilegu málfræðinga sem hingað venja komur sínar útskýra fyrir mér hvernig einhver fær uppreist æru. Þetta situr eitthvað í mér. Ætti hann ekki að fá hana uppreista? Eða er þetta nafnorðið uppreist? Hvað þá? Hefur hann þá fengið uppreist[ina] æru[nnar]?? Ég kemst ekki til botns í þessu, plííís plííís help mí, help míííí.

August 31st, 2006

by Hildur

Ég þakka skjót og góð viðbrögð við bón minni. Af mér er það annars að frétta að fyrir hádegi hef ég afrekað að þrífa niðurgangsslettur eftir feitan feitan óhreinan kall og móttaka ákaflega niðrandi kynferðisleg skítakomment frá feitri feitri óhamingjusamri (og abbó afþí að ég er so hott) kellingartussu. Næs, eh? Moggavinna eftir þessa vinnu, ég blogga örugglega mikið í dag.

August 29th, 2006

Öhmm

by Hildur

Væruð þið til í að kommenta?

August 25th, 2006

Epík-a

by Hildur

Innan hornklofanna hér á eftir finnst afskaplega úintressant og leiðinlegt væl um skóla og próf og bókmenntafræði. Í guðanna bænum skrollið niður.

[Prófi lokið. Fáránlegt með þessa bókmenntafræði, ég virðist eiga mjög erfitt með að læra þetta. Samt skil ég hana fullkomlega og get auðveldlega beitt henni heima hjá mér -og gerði það í öllum ritgerðum yfir önnina í fyrra, glansaði á öllu svoleiðis, en fékk svo bara þrjá eða eitthvað álíka í prófinu. Ég væri ekki í nokkrum vandræðum með að taka gagnapróf eða heimapróf í þessu námskeiði, en mikið djöfull ætlar það að vefjast fyrir mér að klára þetta.

Svo varð ég svo stressuð í prófinu. Ég byrjaði á því skjálfandi og með dúndrandi hjartslátt þótt ég væri búin að renna yfir spurningarnar og væri nokkuð viss um að ég gæti ýmislegt. Fyrsta spurningin var mest basic spurning sem hægt er að ímynda sér í þessu námskeiði. Ég átti að fjalla um megineinkenni þriggja höfuðgreina bókmennta. Kökusneið, right? Ég byrja á lýrík og þurfti eiginlega bara að stoppa mig af, svo kem ég að epík og frýs. Ég raunverulega gat ekki, lengi lengi lengi, rifjað upp einn einasta punkt sem gæti verið einkenni á epík. Ég meina djísus, sjitt, í alvöru, hvað er að? ALLAVEGA! Ekki nenni ég að hafa áhyggjur af bókmenntafræði fyrr en einkunnin kemur. Þá skal ég grenja or somþíng.]

Ekki mín vika sagði einhver. Einhver hefur hitt höfuðið á naglann.

Ég vaknaði milli þrjú og fjögur í nótt til að halda áfram að læra. Ég lagaði kaffi, hellti mér í bolla og kom mér makindalega fyrir í sófanum. Kemur þá ekki kattarófétið, tekur undir sig stökk, lendir á kaffibollanum sem frussast úr yfir mína góðu tölvu sem slökkti samstundis á sér. Síðan þá hefur hún leyft mér einu sinni að kveikja á sér, en þá var skjárinn dauður.

Ég ætlaði að skrúfa hana í sundur til þess að þurrka hana að innan í nótt, en viti menn, þegar ég átti eina skrúfu eftir, kom á daginn að sú var of djúpt ofan í of mjórri holu fyrir verkfærið mitt.

Þetta er bara ekki eðlileg vika. Langt því frá. En Sævari gekk sumsé vel í skólanum í gær og var ekki í nokkrum vandræðum með að kveðja afa sinn í morgun, ekkert nema mannalætin. Svo þeim áhyggjum hefur létt af mér í bili. Fer að sækja hann í skólann eftir klukkutíma. Ég kemst samt engan veginn yfir það að hann þykist vera í skóla. Það er bara ekki rökrétt.

August 24th, 2006

Mömmó

by Hildur


Það hlaut að koma að því. Litli dúddinn er farinn út í heiminn í úlpu með risastóra skólatösku á bakinu. Það tók 25 mínútur að losna frá honum, hann ríghélt í mig, hrópaði á mig og háskældi. Ég endaði með því að láta kennarann halda honum og halda kaldlynd á brott. Með tárin í augunum. Og nú sit ég hér í próflestri með meiriháttar hnút í maganum. Það eru heilir þrír klukkutímar þangað til ég má sækja hann. Ég held hreinlega að ég sendi hann heim til foreldra minna að skóladegi loknum og tali við hann næst þegar prófið er búið. Ég get ekki lagt þetta fjör á mig aftur í fyrramálið, klukkutíma fyrir próf, það er barasta útilokað. Stóri stóri strákur, mig langar að grenja.

August 23rd, 2006

It now appears

by Hildur

that John Travolta is also in the closet. HAHAHAHAHA! Þetta er næstbesti South Park þáttur í heiminum.

August 23rd, 2006

by Hildur

DJÖFULSINS ANDSKOTANS HELVÍTIS FOKKING DJÖFULL!

August 23rd, 2006

by Hildur