Archive for June, 2006

June 26th, 2006

Svargrein við athugasemd Eiríks Arnar Norðdahl, auk mikilvægrar tilkynningar

by Hildur

Síminn týndist á föstudag og finnandi hans var búinn að slökkva á honum fyrir klukkan sex á laugardag. Eru þessi sms mjög áhugaverð? Þetta er forvitnilegt. Ég er að fara í veizlu á föstudagskvöld og vænti þess að Sævar verði hjá mér það sem eftir er helgarinnar, en þú ert auðvitað velkominn samt sem áður með allt þitt hafurtask og alla vini þína ef því er að skipta. Hvað hefurðu í huga? Ég var annars að fá mér annan síma, hann verður kominn í gagnið í kvöld, sama númer. Ertu búinn að fá póstkortið?


Mikilvæg tilkynning til ALLRA sem ég þekki:
Vinsamlegast sendið smáskilaboð með nafninu ykkar í símanúmerið 869 1884 eftir klukkan átta í kvöld. Eins og gefur að skilja á ég engin símanúmer frekar en í öll hin skiptin sem ég hef týnt símanum mínum á pöbbarölti.

June 25th, 2006

Að hafa ekki frá neinu að segja

by Hildur

Nokkrir hlutir fara mikið í taugarnar á mér núna. Ég á ekki við hluti eins og Íraksstríð og hamslausar virkjanaframkvæmdir og hópinn stóra af páfagaukum sem ég sá í Terra Natura og voru allir hlekkjaðir við greinarnar sem þeir sátu á og börðust við það allan daginn alla daga að reyna að naga í sundur keðjur sínar og vina sinna. Um svoleiðis hluti nota ég annað orðalag en þetta með taugarnar. Eitt dæmi: stundum er ég tímabundin eða upptekin þegar ég kveiki á tölvunni. Stundum skráir tölvan mig óumbeðin inn á msn og setur mig á eitthvað annað en appear offline. Þetta þýðir að þangað til ég kem auga á þetta og fæ tækifæri til að laga það sjálf, er ég sitting duck, ég býð hættunni heim. Og svo fer fólk að tala mikið, þið vitið; fólkið sem talar mikið þrátt fyrir dræmar undirtektir. Það fer mikið mikið mikið í taugarnar á mér að hafa vaknað klukkan níu í morgun, legið hérna og velt því endalaust fyrir mér hvernig ég gæti látið daginn líða fyrst ég gat ekki sofið. Nú er klukkutími síðan ég ákvað að byrja að blogga og ég get ekki vakað lengur.

Síminn minn er týndur. Grínlaust. Má ekki senda mér sms. Bara tölvupóst í staðinn.

P.s. Nú er klukkan orðin hálf eitt og það var skyndilega að rifjast upp fyrir mér að ég var ekki búin að senda/birta/staðfesta þessa færslu. Best að drífa í því. Gleðilegan sunnudag dudes.

June 10th, 2006

Vale vale

by Hildur

Hefur einhver tekid eftir thvi hversu suddalega ég er undir healnum á Eiríki Erni? Ég er hlýdin og undirgefin. Jo jo. Hér er ég í Calpe ad blogga. Sólin skín fyrir utan internetkaffid mitt og ég hef verid hér í tuttugu mínútur. Nenni ekki meir. En Eiríkur vill blogg og thví blogga ég.

Hallur; thú faerd thví midur ekki póstkort, ég get ekki haft upp á fleiri heimilisfongum í bili. Eda keypt fleiri kort. Sumir hofdu hyggjuvit og pontudu postkort fyrirfram. Thau eru oll farin í póst.

Hér skín sól á okkur réttláta fólkid, vid Saevar erum alsael. Pabbi og mamma líka. ¿Se permite fumar aquí? -Claro que sí. Ég er algjorlega ad slá í gegn hérna. Thýdi fyrir alla fjolskylduna, allir skilja mig, ég skil engan.

Mariah Carey er blostud á internetkaffinu. There´s a heeeerooooo…. Strondin er dásamleg, Saevar er svo frjáls og vid upp til hópa ákaflega hamingjusom.

Skilabod til sunnanáttarinnar: Ég setti fodur mínum thad fyrir ad lesa Níu thjofalykla á ferdalaginu. Hann er hálfnadur og hefur komist ad eftirfarandi nidurstodu; Thad eina sem hefur virkilega vakid athygli mína vid thessa bók er ad hofundur hennar á augljoslega vid mjog alvarleg sálraen vandamál ad strída, hann er haldinn einhverskonar thráhyggju gagnvart Ólafi Jóhanni Ólafssyni. HAHAHAHAHAHAHA!

Jaeja svítharts, kem heim 19., nenni sennilega ekkert ad blogga aftur fram ad thví. Smútsj.

Used to be so easy to giiiive my heart away … but I`ve still got the bluuuuueeeees for you-ou-ou.

June 5th, 2006

Jæja börnin mín

by Hildur

Gleðilegt sumar og svona. Ég ætla að bregða mér af landi brott í eins og hálfan mánuð. Á ekki sérlega von á því að uppfæra síðuna mikið á meðan. Hafið það sem allra best.