She’s the queen of the Silver Dollar, and she rules this smokey kingdom
And her sceptre is a wine glass and a bar-stool is her throne
“Puddles do not ask for white light. It is cheese, breath and wind. It is cheese.”
—Alan Shore
Andskotans subbuskapur er þessi meirihluti. Mér er óglatt. Er ekki hægt að stofna sérstaka deild innan Sjálfstæðisflokksins fyrir Framsóknarmenn? Litla bændadeild?
Upphafningardagur
Í dag hef ég upphafið sjálfa mig á kostnað óhreinindanna í íbúðinni minni. Það var vel. Áðan ætlaði ég að fylgja syni mínum til dyra. Þegar í forstofuna kom þurfti ég að vaða gegnum slíkt flóð af andskotans kosningaáróðri að ég var næstum því hætt við að kjósa. Mér varð litið niður á subbulega brúnkukremað viðbjóðsglottið á Birni Inga og sagði Framsóknarflokknum stríð á hendur í huganum, en áttaði mig svo á því að eitthvað var hann fríðari en venjulega. Beygði mig niður og týndi saman áróðurssneplana og skellihló. Þá má sjá hér að neðan.
Nú jæja
Þú ert 50% hlynntur V lista
Þú ert 20% hlynntur D lista
Þú ert 10% hlynntur S lista
Þú ert 10% hlynntur F lista
Þú ert 10% hlynntur B lista
Þetta segir þessi síða mér. Ætli ég skili nokkuð auðu.
Þegar ég skrái mig inn á blogger fæ ég aðgang að tveimur síðum. Önnur er auðvitað þessi, hin er þessi. Fyrir aftan titil hvorrar síðu er færslnafjöldinn. Hann er orðinn hærri á tregawöttunum en hér. Og fyrir það ber konu að skammast sín. Andskotinn hafi þessi ofvirku ljóðskáld.
Síðastliðin helgi var svo gegnsýrð og undirlögð af ljóðlist (og áfengi) að sögur fara ekki af öðru eins. Þetta var eiginlega meira en Nýhilhátíðin í fyrra, núna var bæði Orðið tónlist og o p n u n Ljóðabókaverslunar Nýhiljar.
Ég hef verið að vinna í þessari fallegu verslun sl. þrjá og hálfan tíma. Hér er gott að vera. Verð hérna aftur á miðvikudag í næstu viku, endilega lítið við. Ó só lovlí. Ég er kannski ekkert hlutlaus en síríuslí, þessi búð er svo falleg. Ó svo falleg.
Skúli ég er ekki andvana, né heldur þessi síða. Þvert á móti. Hér hefur sjaldan verið meira fjör. Haukenn ég skal prófarkalesa BA ritgerðina þína fyrir 250 krónur á blaðsíðu. Eða bara renna yfir hana fyrir kippu af bjór. Annars ertu alveg ágætur í íslensku og sollis. Ynkvað.
Cracks. CRAX! Appear in the pavement. Mér er farið að leiðast hér. Mikið væri gaman ef ég hefði eitthvað ákaflega mikilvægt og skemmtilegt til málanna að leggja. Hvaða mála? Tjah. Kona spyr sig. Bendi áhugasömum um mútsík og femínisma á þetta og ljóðelskandi lesendum mínum vil ég benda sérstaklega á þetta sem kallast Poèmes trouvés – eða fundin ljóð. Og er skjemmtilegt. Fólki sem þykir gaman að hlæja er beint hingað en þarna má finna stórskemmtilegan dóm um hörmulegan kveðskap. Slíkt getur kitlað.
Njótið lífsins börnin góð. Ég skal reyna að blögga meira. Reyna að blögga meiru? Bitastæðariruraunsmu? Kræst.
Slaka á að vita betur
[...]
Mamma: Og hann virðist bara vera frægur.
Sævar: Er hann ekki líka ríkur?
Mamma: Nei ég held ekki.
Sævar: Á hann ekki þvottavél og svona?
Mamma steinþegir og dauðskammast sín, minnug þessa.
Sævar: Finnst honum nóg að vera frægur? Maður þarf ekkert að eiga peninga til að vera ríkur er það? Hann er kannski ekki peningaríkur en er hann skóríkur og fataríkur og dótríkur?
New MySpace message from Iamin!
Good day,and how are you there?.As i was browsing i came accross you profile and i am very interested in becoming one your friend.I would like to tell you my self.I am a man of twenty eight years,a Gambian by origin,but i am single never married and i have no children.Presently i am in Venezuela.I would like to hear from you really feel to be my friend too.My yahoo and msn are gomezlamo@yahoo.co.uk and gomezlamo@hotmail.com if may want to write to me through my mailbox or add me inother to have a chat with me.Am looking forward to hear from you soon.
Já krakkar mínir. Það er gaman að þessu. Það kom rotta í heimsókn til mín í vikunni. Án gríns. Stór og viðbjóðsleg. Í stofuna mína. Í dag græddi ég pening og mamma gaf mér bikiní. Jeeeei. Í kvöld ætla ég að heimsækja Urði og á morgun ætla ég að fara með þessum herramanni í afmæli til þessarar dömu.










