hildur lilliendahl

Karma fyrir fugla – skylduáhorf
Ég er lítil leikhúskona. Hef ekki séð leikhús sem ég fæ eitthvað út úr í fjögur ár (eða síðast þegar ég sá verk í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur). Yfirleitt finnst mér þetta frekar vandræðaleg upplifun.

En í gær sá ég Karma fyrir fugla eftir Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Þessar konur eru stórmerkilegir listamenn og þegar ég heyrði af verkinu langaði mig virkilega í leikhús í fyrsta sinn síðan ég sá Utan gátta.

Ég á langt í land með að jafna mig eftir þessa sýningu. Ég man í fljótu bragði ekki eftir listaverki sem lýsir því jafnvel hvað það er að vera kona. Lýsir ofbeldi gegn konum og áhrifum félagsmótunar á fólk á jafnáhrifaríkan hátt.

Það er alveg ljóst að þessu leikriti ætti að fylgja stór trigger-viðvörun, það er sjálfsagt of erfitt fyrir marga, en með þeim fyrirvara finnst mér að þetta ætti að vera skylduáhorf. Hreinlega. Ég er hætt að gráta núna en ég er ennþá dolfallin.

Ef þú þekkir fólk sem fattar ekki ofbeldi gegn konum, sendu það á þetta leikrit.

Ef þú ætlar einhverntímann að sjá eitthvað leikrit, sjáðu þetta og sjáðu það núna.

Hressandi að vera kona sagði maðurinn

Matarblogg handa þingmönnum, annar kafli
Þetta er auðvitað svívirðilega óvísindalegt hjá mér, allt saman. Og tilraunin mín verður gerð á viku-basis í ljósi þess að aðra hvora viku erum við barnlaus en hina vikuna með bæði börnin. Þannig að mánaðarleg mynd af matarvenjum okkar væri verulega skekkt.

Hér er allavega fyrsti kafli.

Og til að taka saman það helsta sem fram hefur komið í athugasemdum við hann, og reyndar víðar, þá þótti mörgum ég helst til neikvæð. Við því sagði ég:

Jamm, ég játa alveg á mig óþarflega mikla neikvæðni sem fyrstu viðbrögð. Og mér finnst rétt að taka fram (kannski sérstaklega fyrst DV er búið að skrifa frétt upp úr þessari tímamótabloggfærslu minni) að neikvæðnin og viðbrögðin beindust alls ekki gegn Eygló sem ég held að sé mögulega frambærilegasti Framsóknarmaður allra tíma.

Eins kom það allnokkrum sinnum fram að fólki þykja 30.000 krónur ekkert sjokkerandi há upphæð fyrir vikuleg innkaup til rekstrar fjögurra manna heimilis. Ég er í sjálfu sér sammála því. Ég gæti örugglega eytt svona peningum sjálf. En þar sem Eygló kynnir þetta til sögunnar sem sérstakt átak, þá finnst mér málið horfa öðruvísi við. Þetta er nefnilega langt frá raunveruleika ansi margra fjölskyldna sem þó eru ekki í neinu brjáluðu átaki.

Svo hefur það líka verið rætt hvort átt sé við allan rekstur heimilisins eða bara kvöldmat. Hvort aðrar máltíðir séu inní þessu, hvort sápa og skeinipappír eru meðtalin og svo framvegis. Maðurinn hennar Eyglóar kommentaði á Facebook hjá mér og útskýrði málið aðeins nánar. Hann segir:

Mér er málið skylt, þar sem ég er einn fjögurra heimilismanna á umræddu heimili. Þessar 20.000 krónur miðast við eina máltíð á dag fyrir fjórar manneskjur. Auk þess er gert ráð fyrir afgangi í hádegismat fyrir aðra dóttur okkar í skólanum og mig, þar sem ég vinn heima.

Heildarupphæðin, 30.000 krónur, felur í sér allan mat sem keyptur er, þ.e. morgunmat, nesti, þurrvörur, krydd og þess háttar, auk hreinlætisvara, drykkjarvara og annars sem til þarf á heimilinu. Af þeirri fjárhæð tökum við líka fyrir skyndibita, laugardagsnammi og annarri neyslu.

Þetta er næstum alveg eins og hjá mér. Morgunmatur fyrir einn, kvöldmatur fyrir fjóra, hádegisnesti fyrir einn og þessi sami einn fær sér alltaf brauð eftir skóla. Ég mun opinbera upphæðir í matarinnkaupum okkar og inní þeim eru hreinlætisvörur. Dömubindi, tannburstar, þvottaefni og allskonar. Líka kaffi og te og neskvikk og hveiti og rúsínur og hrökkbrauð og hvaðeina sem til fellur en er ekki útlistað í kvöldmatnum.

Þar sem í minni tilraun felst einungis samanburður við tilraun Eyglóar, en ekki sérstakt átak eða sparnaður, þá hyggst ég alveg hreint aldeilis sleppa því að segja ykkur frá því ef ég kaupi mér skyndibita. Tóbakið mitt og áfengið er ekki heldur inni í þessum tölum. Það kemur ákaflega sjaldan fyrir að fjölskyldan mín borði skyndibita í kvöldmat en ef svo verður skal ég taka það fram líka. Laugardagssukk og kókflöskur verða inni í innkaupunum sem ég mun segja frá.

Anyway. Síðan í síðustu færslu hefur það á daga okkar drifið að við höfum snætt tvær kvöldmáltíðir. (Þið eigið eftir að komast að því að kolvetni eru uppistaðan í öllu okkar mataræði, jájá, blabla.) Á mánudaginn hökkuðum við í okkur langlokur með osti og eggjum og papriku og gúrkum. Kjötætan bætti við pepperóní. Við drukkum eplasafa og appelsínusafa.

Í gær, þriðjudag, bökuðum við pítsu. Á henni var ostur, ólífur, sveppir, spínat, hnetur, paprika… Og já. Held að þar með sé það upptalið. Nema kjötætan bætti við pepperóní. Og við drukkum vatn.

Enn höfum við ekki bætt neinu við eftir innkaupaferð helgarinnar sem kostaði eins og fyrr segir milli átta og níu þúsund.

Matarblogg handa þingmönnum, fyrsti kafli
Eygló Harðardóttir hefur ákveðið að ráðast í átak í eldamennsku heimilisins. Hana langar að verða hagsýn húsmóðir og ætlar því að elda mat fyrir minna en 30.000 krónur á viku fyrir fjögurra manna fjölskyldu, með sex og 12 ára gömlum börnum. Ég er sjálf með fjögurra manna fjölskyldu með 4 og 12 ára gömlum börnum. Mér finnst þessi tala hljóma fáránlega. Kannski er það vegna þess að ég veit ekki hversu miklu ég eyði í mat. Við skulum sjá til. Ég ætla allavega að reyna að blogga um þetta.

Eitt af markmiðum Eyglóar er að hafa að minnsta kosti eina grænmetismáltíð í viku. Ég veit ekki alveg hvað hún á við með því þar sem lýsingin er „ekkert kjöt eða ost“ sem gæti þar með verið fiskmáltíð, vegan máltíð eða grænmetismáltíð. Eða bara vatn. Okkar máltíðir eru dálítið flóknar þar sem á heimilinu eru þrjár grænmetisætur og 12 ára gikkur. Hann vill sjaldnast grænmetisréttina okkar svo það er mjög oft eldað eitthvað sérstaklega fyrir hann.

Í gær var einn fullorðinn matargestur hjá okkur. Við elduðum pasta sem kostaði eitthvað djók lítið. Með því var 1 piparostur, 1 1/2 paprika, hálfur hvítlauksgeiri, hálfur lítri af mjólk, einn lítri af eplasafa, tvö hvítlauksbrauð, 100 g af sveppum, einn grænmetisteningur, 1/4 úr spínatpoka, hnefafylli af furuhnetum, smávegis af fetaosti og … og þar með er það upptalið að ég held. Við vorum fimm og allir voru pakksaddir. Þetta getur ekki hafa kostað mikið meira en 1.500 kall. Og 12 ára fór með afganga með sér í nesti í skólann. Hann kom svo með það heim úr skólanum og ég át afganginn hans í hádegismat.

Þetta var mjög gott. Hvað er 1.500 sinnum sjö? Jafnvel þótt við gefum okkur að þetta hafi kostað 2.000 kall og væri í meðallagi dýrt fyrir okkur, þá erum við að tala um 14.000 krónur á viku. Þetta var svo sannarlega ekki óvenjulega ódýr máltíð. Kannski reyni ég að hafa vit á að halda utan um kvittanir. Við fórum allavega langt með matarinnkaup fyrir vikuna í gær og versluðum fyrir áttaþúsund og eitthvað krónur.

Melankólía :: melódrama
Fyrsti í flutningum er kominn að kvöldi og ef allt gengur að óskum verður þetta síðasta nóttin okkar á V2. Ég á þessari íbúð, og hjónunum sem eiga hana, óendanlega mikið að þakka.

Þegar ég var 24 ára, síðla árs 2005, bjó ég í lítilli íbúð á Langholtsvegi ásamt fimm ára gömlum Sævari. Leigusamningurinn var tímabundinn til níu mánaða. Ég var á námslánum sem voru svona 110 þúsund. Leigan var 90 þúsund. Stuttu eftir að ég flutti inn missti ég aukavinnuna mína. Ég hafði ekki efni á þessari íbúð en ég hafði ekki beinlínis valkosti heldur.

Þetta var þriðja húsið sem við bjuggum í á árinu og níunda heimili Sævars á hans stuttu ævi. Hann var órólegur – eins og gefur að skilja. Okkur vantaði festu. Samastað. Hann hafði höndlað alla þessa flutninga illa, var alltaf dálítið kvíðinn þegar hann var rifinn upp með rótum og gert að skjóta þeim annarsstaðar. Það tók hann vanalega nokkrar vikur eða mánuði að ná jafnvægi og um leið og því jafnvægi var náð reif ég ræturnar upp aftur. Ýmist af illri nauðsyn eða kjánaskap.

Sævar á Langholtsveginum

Ég skrifaði: „Ég man að mig dreymdi að ég væri lokuð inni í pínulítilli íbúð. Hún var upplýst með grænu ljósi og það voru engin húsgögn í henni og engir gluggar. Með mér í íbúðinni var einn geitungur, tæplega hnefastór. Ég hélt á flugnaspaða og flúði hann og lamdi til hans á víxl.“

Eitt kvöldið þegar ég var ein heima og djúpt sokkin í úrslitaþátt af America’s next top model hringdi dyrabjallan. Það reyndust vera foreldrar mínir. Þau hafa aldrei lagt í vana sinn óvæntar sósjal heimsóknir til mín á kvöldin og þau voru skrítin á svipinn. Búraleg og leyndardómsfull. Þau settust inn í stofu í smástund, þáðu ekki kaffi heldur bara smók á svölunum. Mamma hélt á dularfullri möppu, merktri ökuskóla. Ég man afskaplega vel hvernig ég braut heilann um hvað væri í gangi.

Þau spurðu hvort ég gæti skroppið með þeim í 20 mínútna bíltúr. Svo sögðu þau mér að þau hefðu hugsað það lengi hvernig þau gætu hlúð að Sævari. Og okkur. Hvernig þau gætu hjálpað. Og að niðurstaðan hefði verið að kaupa litla íbúð sem við gætum leigt af þeim og búið í eins lengi og við þyrftum. Svo gæti ég keypt hana af þeim í fyllingu tímans ef mig langaði til þess.

Ég man ekki eftir að hafa fengið eins góðar fréttir á ævi minni. Léttirinn var ótrúlegur. Og gleðin og þakklætið. Ég hló og grét til skiptis, kastaði mér í fangið á þeim og bað þau í geðshræringu minni um að giftast mér. Svo fórum við að skoða íbúðina og ég hafði aldrei séð neitt eins fallegt. Allt var fullkomið.

Mynd www.birgirmar.com

Stuttu seinna skrifaði ég: „Ég hlakka svo mikið til að flytja. Til að byrja á nýjum stað í síðasta skipti í mjög langan tíma. Búa mér til heimili. Mitt og hans. Og ekki annarra. Okkar prívat yfirráðasvæði þar sem við getum huggað okkur og bakað piparkökur og raðað hlutunum okkar.“

Það varð úr. Hér hefur okkur liðið ákaflega vel í ákaflega langan tíma. Áttunda árið okkar í þessari íbúð er nýhafið og við erum orðin svo stór. Og mörg auðvitað. Palli og Hrappur Birkir bættust hérna við fyrir rúmum þremur árum og allt í einu er Sævar að verða unglingur. Eftir svona korter. Það er því löngu tímabært að við klippum á naflastrenginn við Vesturbrúnina, sem hefur reynst okkur betur en nokkuð annað heimili hefði getað gert. Þess vegna keyptum við okkur íbúð sem við fengum afhenta fyrir hálfum sólarhring.

Sævar á V2

Fyrsti í flutningum er kominn að kvöldi og ef allt gengur að óskum verður þetta síðasta nóttin okkar á V2. Ég á þessari íbúð, og hjónunum sem eiga hana, óendanlega mikið að þakka. Þau bönkuðu aftur óvænt uppá hjá mér í kvöld og við Sævar fórum með þeim í bíltúr og sýndum þeim nýja húsið. Rétt eins og þau sýndu mér nýja húsið fyrir jólin 2005. Og rétt eins og þá stendur íbúðin tóm og ég er að springa úr kæti og gleði í hjartanu. Ég er þeim svo þakklát fyrir þessi ár, þessa björg. Og mig langar til að segja: „Ég hlakka svo mikið til að flytja. Til að byrja á nýjum stað í síðasta skipti í mjög langan tíma. Búa mér til heimili. Mitt og þeirra. Og ekki annarra. Okkar prívat yfirráðasvæði þar sem við getum huggað okkur og bakað kökur og raðað hlutunum okkar.“

Góða nótt.

Mynd www.birgirmar.com

Áramót
Í dag er síðasti dagur ársins. Þetta var án vafa með viðburðaríkustu árum í mínu lífi og eins og venjulega á gamlársdag er ég ekki laus við melankólíu. Það er eitthvað við áramót sem kitlar í mér tárakirtlana.

31. desember 2009 giftum við Palli okkur. Við eigum þriggja ára brúðkaupsafmæli í dag. Mig langar, hér með og opinberlega, að þakka þessum stórmerkilega manni mínum fyrir þessi ár. Hann hefur alltaf verið fínn en í ár hefur hann verið alveg rosalegur. Mig langar að þakka honum stuðninginn og manngæskuna.

Þakka honum fyrir að vera. Ég elska hann.

Áreiti í nóttinni
Í dag líður mér dálítið illa. Það eru ýmsar ástæður fyrir því en eina þeirra má sjá á þessari mynd.

Ég hugsaði um nokkra hluti þegar ég fékk þennan póst í nótt.

Ég hugsaði um foreldra hans. Það eru margir strákar á Íslandi sem dunda sér við að áreita mig á netinu eða í gegnum tölvupóst þegar þeim leiðist. Vita foreldrar þeirra af þessu? Getur verið að fullt af fólki hafi alið upp svona stráka og viti ekki af því? Hvernig líður manni þegar maður veit að börnin manns gera svona eða geta gert svona?

Ég hugsaði um hann sjálfan. Hvernig líður honum? Hvað kom fyrir hann? Hvað er að honum sem gerir það að verkum að hann langar að senda ókunnugri konu svívirðingar um hánótt örfáum dögum fyrir jól? Kalla hana tussu og hvetja hana til að detta niður stiga. Hvað er að?

Ég hugsaði um sjálfa mig þegar ég var fimmtán árum yngri en ég er í dag. Hefði ég getað gert svona? Kannski þegar ég var á bilinu 12-14 ára. Aldrei fimmtán eða sextán. Sannarlega ekki eldri og sennilega ekki yngri heldur. Ég kláraði mannvonskukaflann á gelgjuhámarkinu. Kannski var ég alveg svona vond (ég var samt miklu klárari, ég hefði farið snyrtilegar í þetta, sleppt orðbragðinu og aldrei látið hanka mig á ég-vona-að-þú-meiðir-þig/deyir. Auk þess kunni ég stafsetningu). Ég vona samt að ég hafi ekki verið það. Það er erfitt að átta sig á því hvernig krakki maður var. Og það er líka erfitt að horfast í augu við það.

Ég hugsaði um hvað það fer óendanlega í taugarnar á mér að þessi drengur skuli hafa svona miklar ranghugmyndir um tæknikunnáttu mína. Að hann skuli trúa því að ég haldi að allur tölvupóstur sé fullkomlega rekjanlegur til einstaklinga. Og það af hinum almenna notanda. Hrokinn í þessu litla gerpi er eins og maurar í blóðinu mínu. (Sorrí, Palli.)

Fyrir um mánuði síðan skrifaði einhver athugasemd við bloggfærslu eftir mig sem var ekki hægt að túlka öðruvísi en grófa hótun um kynferðisofbeldi. Lýsingarnar voru nægilega ógeðslegar til þess að honum tókst að hrinda mér úr jafnvægi. Þetta var sama dag og ég tók við hugrekkisviðurkenningu Stígamóta. Tilhugsunin um viðurkenninguna og öll hlýju orðin frá fólkinu sem ég hitti stappaði í mig stálinu en ef hann langaði til að láta mér líða illa, þá tókst það svo sannarlega.

Í kommentakerfinu voru nokkrir sem spurðu hvort ekki væri hægt að rekja hótunina. Til að svara því birti ég allar upplýsingarnar sem fylgdu viðkomandi þegar hann skildi eftir athugasemd. Þetta var netfang (sem var ekki sannreynt og sjálfsagt út í loftið) og ip-tala hjá Vodafone. Ég sagði ekkert annað. Dró engar ályktanir af þessu heldur bara límdi þetta inn. En þetta kitlaði einhvern sem eyddi heilli nótt í að fela ip-töluna sína, upphugsa ný, stórsniðug og upplogin netföng og skrifa ný og ný komment. Eins og þetta:

Þú ert svo illa gölluð í hausnum hóran þín…. Alveg hvað maður vildi óska að þú yrðir fyrir bil

Og alltaf með svona creepy as fuck blikkkalli í lokin.

Allavega.

Þetta var meðal þess sem ég hugsaði þegar ég fékk þetta bréf í nótt. Það er væntanlega frá sama litla gerpinu og skrifaði öll þessi komment. Allt í gegnum Tor. Verði honum að góðu. Þetta áreiti hefur bara áhrif á mig ef ég þegi yfir því. Það má finna í því styrk ef ég deili því með heiminum. Að segja frá því sem konur verða fyrir þegar þær segja skoðun sína er ein af leiðunum sem ég hef til að gera heiminn að betri stað. Jafnvel þótt mér líði illa í dag.

Hugleiðing handa bloggaranum Leó og öllum hinum
Ég rakst á gamla bloggfærslu eftir mann að nafni Leó R. Ólason sem fjallar um mig og mig langar til að svara hér að nokkru leyti, þrátt fyrir að þetta bleika og bláa hjálma mál sé að mestu leyti fallið í gleymsku. (Hér sjáið þið hvað gerist þegar maður getur ekki tjáð sig á Facebook.) Megnið af færslunni hans birtist hér. Hún hefst svo:

817. Ég ætlaði að vera búinn að minnast á greinina sem birtist í DV fyrir nokkru, þar sem Eimskip og Kiwanishreyfingin voru gagnrýnd fyrir að gefa öllum sex ára gömlum börnum reihjólahjálma.

Hér er strax ástæða til að grípa inn í. Það er rangt að Eimskip og Kiwanishreyfingin hafi verið gagnrýnd fyrir að gefa börnum hjálma. Aldrei nokkurntímann sagði nokkur maður að það hefði ekki átt að gerast eða væri illa gert af þessum apparötum. Að minnsta kosti ekki í mín eyru.

[...] Þá á ég við hvar rétmætri og eðlilegri gagnrýni sleppir og öfgarnar taka við. Hin stóru og alvarlegu mistök gerðarmanna virðast að þessu sinni vera fólgin í litavali á öryggisbúnaðinn. Hildur Lilliendahl ofurfemínisti segir litavalið vera tímaskekkju. „Það græðir enginn á öðru en að við komum fram við börn af virðingu, hættum að draga þau í dilka eftir æxlunarfærum og móta þau eftir hefðbundnum kynhlutverkum.“ Ekki verður betur séð ef vel er að gáð, en að Hildur sé hér að gagnrýna „hvernig að málinu var staðið“ áður en hún hefur fyrir því að kynna sér „hvernig að málinu var staðið“ ef þannig mætti komast að orði. Það er að mínu mati við hæfi að benda henni á að gamla spakmælið að „kapp sé best með forsjá“ er enn í fullu gildi.

[Ég gerði smávægilegar leturbreytingar því ritillinn var ósáttur við html-ið hjá Leó. Það sem er inni í gæsalöppum hjá honum var allt skáletrað og ég splæsti íslenskum gæsalöppum á hann.]

Mig langar að útskýra eitt fyrir þér, Leó. Það er ekki svo að ég frétti af bleikum hjálmum og hringi í DV til að segja þeim hvað mér finnist þetta vera ömurlegt. Það er þannig að DV hringir í mig og óskar eftir kommenti. Ég sendi þeim í tölvupósti ítarlega útskýringu á mínum skoðunum. Eitthvað af því sem ég segi er birt í fréttinni og annað ekki.

Í allri þessari frétt er ein stutt bein tilvitnun í mig sem þú notar öllu þessu máli þínu til stuðnings. Nemlig; „Það græðir enginn á öðru en að við komum fram við börn af virðingu, hættum að draga þau í dilka eftir æxlunarfærum og móta þau eftir hefðbundnum kynhlutverkum.“

Þessi örfáu (og frekar kurteislegu) orð segja þér að ég sé öfgafull, ég telji þessa gjöf vera stór og alvarleg mistök, ég gagnrýni hvernig að málinu var staðið (þetta seturðu skáletrað og í gæsalappir þrátt fyrir að hafa nákvæmlega ekkert fyrir þér í þessu) og fyrr en varir ertu farinn að tala um kynjakvóta. Að gamni ætla ég að sýna þér allt sem ég sagði við DV um þetta mál:

Það læðist nú að manni sá grunur að Eimskip hafi vitað mæta vel að þetta myndi vekja viðbrögð og rata í fréttir, að þetta sé hreint og klárt auglýsingatrix – og verði þeim að góðu, mér þykir almennt ógeðfellt að beina markaðssetningu að börnum þótt hjálmar séu vissulega nauðsynlegir. Okkur hættir til að vanmeta áhrif félagsmótunar á börn. Strákar eiga að vera sterkir og mega slást, stelpur eiga að vera góðar og samviskusamar og duglegar. Og allir tapa; þetta leiðir til þess að strákar geta síður lesið og eru líklegri til að rekast á í samfélaginu, stelpur verða frekar undirgefnar, þora síður að sækjast eftir launahækkun eða rísa upp gegn ofbeldi. Þetta er tímaskekkja. Það græðir enginn á öðru en að við komum fram við börn af virðingu, hættum að draga þau í dilka eftir æxlunarfærum og móta þau eftir hefðbundnum kynhlutverkum. Innrætum þeim umfram allt að þau eigi að vera þau sjálf, gera það sem þau langar til að gera og eru góð í, óháð kyngervi.

Þetta eru nú allar öfgarnar, minn kæri. Punkturinn er einfaldlega að okkur hættir til að vanmeta neikvæðu eða heftandi áhrifin sem við höfum á börn með því að gera sjálfkrafa ráð fyrir því að vegna kyns síns eigi þau að vera svona eða hinsegin. Fyrir þessa hræðilega öfgafullu yfirlýsingu mína var ég úthrópuð af rosalegum krafti á kommentakerfi DV. Þrjúþúsund og sjöhundruð manns deildu þessari frétt og athugasemdirnar voru mörghundruð.

Meðal þess sem ég fékk að heyra fyrir þessa skoðun mína var að ég væri vangefin, það ætti að henda mér, ég vældi og grenjaði alveg út í eitt, ég væri vanþakklát og athyglissjúk, ég ætti ekki líf, ég væri tuðandi, ég væri öfgamanneskja, ég hataði karla, ég væri hægri sinnuð og ég væri kommúnisti, ég ætti að geyma fingurna inni í rassinum á mér, ég ætti að halda kjafti og „þeyja“ og SLAPPA AF, ég væri skaðvaldur, ég væri atvinnulaus, ég væri kynsvelt, ég væri á leiðinni inn á fæðingardeildir með hreinsunareld (!) og að fólk langaði að æla á mig.

Hér er hugmynd. Hún er ekki bara ætluð þér, Leó, heldur ykkur öllum: Ég skal tala við þig, ef þig langar, um það sem ég segi. Það sem ég hef raunverulega sagt. Ekki um það sem þú heldur um mig eða það sem þér finnst um mig eða hvaða tilfinningar ég hef kallað fram hjá þér í gegnum tíðina.

Nema hvað.

Og ég spyr: Skiptir ekki meiru máli hvort þeir gera gagn fremur en í hvaða lit þeir eru?

Svarið er einfalt: jú, það skiptir meira máli. DV hringdi hinsvegar ekki í mig til að spyrja mig hvort mér þætti mikilvægt að börn notuðu reiðhjólahjálma. Við slíkri spurningu hefðu fengist önnur svör.

Mér kemur í hug annað sem oftlega bregður fyrir í málflutningi femínista, en það er krafan um kynjakvóta. Má þá ekki nota þeirra eigin rök og orðfæri þegar því er haldið á lofti að ekki eigi að flokka fólk eftir æxlunarfærum þess, og spyrja hvort ekki skipti meira máli hvað er milli eyrnanna á fólki en læranna á því.

Þarna geri ég ráð fyrir að þú sért ekki að tala um mig en mig langar samt að svara þessu. Það skiptir einmitt miklu meira máli hvað er milli eyrna á fólki en læra. Hinsvegar hefur töfrasprotinn milli læranna á körlum greitt þeim leið að valda- og áhrifastöðum um allan heim öldum saman. Hugmyndin á bakvið kynjakvóta er að beita handafli í stuttan tíma til að rétta af hlut kynjanna til að skapa réttlátara samfélag. Ekki síst svo nýjar kynslóðir alist upp við fyrirmyndir af báðum kynjum í fjölbreyttara umhverfi.

Eru sumir fullkomlega samkvæmir sjálfum sér?

Já, þeir eru það nefnilega.

Þess utan er særandi, sálarlega niðurdrepandi, andlega tærandi og það orsakar vanlíðan og tilfinningarót af versta tagi þegar uppskeran er neikvæðni og vanþakklæti þeim til handa sem eru að gera vel og af góðum hug. En ráð til þeirra sem vila komast hjá slíku eru líklega af skornum skammti. Helst kannski að gera alls ekki neina slæma hluti og heldur enga góða hluti, segja aldrei neitt, skrifa aldrei neitt, blanda sem allra minnst geði við annað fólk og vera sem mest ósýnilegur.

Ef þú heldur að Eimskip og Kiwanishreyfingin hafi orðið fyrir slíku áreiti og ofbeldi af minni hálfu að það geti talist særandi, sálarlega niðurdrepandi, andlega tærandi og það orsaki vanlíðan og tilfinningarót af versta tagi, ég endurtek; af versta tagi, ættir þú að prófa að vera ég í mánuð eða svo. Því það er sannarlega einungis af góðum hug sem ég geri það sem ég geri. Það er einungis gert vegna þess að ég trúi því að ég geti gert heiminn að betri stað. Árásirnar sem ég uppsker fyrir það eru ógeðslegar og viðstöðulausar og sumar hverjar kolólöglegar. En aldrei, aldrei, aldrei myndi ég nota svona dramatískar lýsingar um áhrifin af þeim. Þær eru lýjandi, þreytandi og stundum særandi en hólísmók hvað það væri mikil vanvirðing við fólk sem raunverulega þjáist að kalla þær særandi, sálarlega niðurdrepandi, andlega tærandi og að þær orsaki vanlíðan og tilfinningarót af versta tagi.

Segðu já við kynmökum hvort sem þig langar það eða ekki
Skilaboð til Séðsogheyrts og Guðrúnar Bergmann frá Hildi Lilliendahl: Þetta er ekki gott ráð. Þetta er ógeðslegt ráð.

Mér dettur enginn titill í hug fyrir þetta
Þetta gerði einhver töffari á 9gag. Oftast þoli ég allt en stundum verð ég bara leið.