Quattro - Mía litla og oktopússí

December 4, 2007

konan dó ekki, onei

Filed under: 2007 — njola @ 5:07 pm

Þegar gigtin fór af jafna um Njólu
fannst Njólu komið nóg
þá nennti hún ekki að lifa lengur,
lagði sig og dó

En þar sem ég er mjög tillitsöm þá sleppti ég því að deyja, enda sæi ég ekki ættingja mína eða vini hafa tíma eða nennu til að flækjast um himnaríkið með sálnatetrið mitt í skjóðu og reyna að pranga því inn á viðstadda.

(fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hvað ég er að segja þá bendi ég ykkur á leikritið Gullna hliðið eða samsvarandi ljóðabálk).

En semsagt TJURGURINN tók í lurkinn á mér.

Er semsagt með ónæmissjúkdóm sem er mis-slæmur og gengur í bylgjum. Nú hefur verið að ganga yfir öldudalur með meðfylgjandi veikindaveseni, gollurhúsbólgu (hjartabólgur, hjartsláttaróregla) og taugabólgur (bólgur í skyntaugum, verst í útlimum).

Er hægt og rólega á leið upp úr öldudalnum, set hér linka við til hægri um sjúkdóminn og skólaverkefnin sem hafa verið látin ganga flestu öðru.

Nú má búast aftur við fyrri afköstum í bloggun, ehh (þ.e ca. tvisvar í mánuði, hum..)

5 Comments »

  1. Niður með tjurginn - upp með Njólu!

    Comment by Stefán — December 4, 2007 @ 10:10 pm

  2. ….
    aldrei sá hún eftir njólu
    en oft hún hafði grun
    um að skjóðan væri margfallt margfallt
    meira virðið en hún.

    —–

    Það gengur illa að snúa þessu á þig og gott að þú hættir við, skjóður eru vandfundnar í dag.

    Comment by Hafrún — December 18, 2007 @ 1:00 pm

  3. Það er endalaust hægt að setja sama kommentið inn hjá þér kona. Góða hentu þessu út.

    Comment by Hafrún — December 18, 2007 @ 1:10 pm

  4. Er tölvulaus og er því illa stödd til að eyða eða samþykkja misgáfulegar athugasemdir ehem!

    Comment by njola — December 18, 2007 @ 5:17 pm

  5. Þetta eru gáfulegar athugasemdir, ekki rugla þeim saman við misgáfulegar.
    Og… ég gerði það ekki!
    Gleymdi mér samt á miðvikudaginn enda ekki í standi fyrir neitt annað en það nauðsynlegasta.

    Comment by Hafrún — December 21, 2007 @ 7:53 am

RSS feed for comments on this post.

Leave a comment

Next Page »

Powered by WordPress