Jólavíma
Þessi jól voru gleði bókafíkilsins, lesvíma og súkkulaðiát. Búin með 3 af jólabókunum. Fannst Blóðberg góð en Þriðja Táknið síðra. Er svo með aðstoð Tolle að leita að kyrðinni milli hugsanna.
Skröllti svo í Borgarfjörðinn á morgun og hoppa ínn í nýja árið þar.
Sendi öllum landsmönnum til sjávar og sveita hér með hugheilar, gamlaárs og nýárs kveðjur.
Sjáumst, heyrumst eða hittumst á nýja árinu.