Blehhhh
Fjar-ræn, alls ekki orð-ræn, haldin vef-rænum kvillum þessa dagana.
Góðir punktar í tilverunni eru:
- Illugi selur, systursonur minn, sem er ekki enn búin að læra vitræna orðræðu
- Jakob, Kobbi gormur
- Álfrún afleggjari.
- Dans vinir og annað álíka létt brjálað fólk
- Bækur, tónlist, kvikmyndir
- Og min kære familie
Slæmir punktar eru:
- Aðeins 24 tímar í sólarhringnum
- Lyfjaveiki þ.e. lyfin sem eiga að halda mér á lífi er öll í einhverjum kross-milli-bull-verkunum, þar af leiðir er hundslöpp þó hinn ,,lífshættilega lang-veiki” sem hrjáir mig sé í góðu standi
- Læknavísindinn skoða mann í pörtum. Er að reyna að fá þá til að skoða mig í heild og taka ábyrgð á öllum pörtunum í einu, arrgh!
- Orðin leið á gamla lífinu, langar til að verða brjálaður listamaður og fremja friðar-gerninga
Allar fyrirbænir, fjárframlög, þolinmæði og ný líffæri þeginn með þökkum