Lukkunnar pamfíll!
Ég á sjö-mílna-skó sem ég fékk í afmælisgjöf og er á leið Fjárlúsareyja. En það er víst söguskýringin á heiti Færeyja, hm?
Hef verið heppin þessa dagana, fengið námsstyrk, dansað fimm-rytma dans í góðra vina hópi og almennt hlutir gengið vel.
Svo ég hlýt að vera lukkunnar pam-fíll? En hvers konar furðuverur eru það? Vil ég í raun og veru, vera pam-fíll? Eru pamfílar kannski þegar allt kemur til alls geðillar bísamrottur eða laumu hernaðarsinnar? Þá er betra að vera lukkufíll!
Bók vikunnar án efa er:I feel bad about my neck, and other thoughts about being a woman eftir Noru Ephron (When Harry met Sally). Svona til þess að brjóta höfundarlög þa ætla ég vera með nokkrar tilvitnanir í bókina.
Never marry a man you wouldn’t want to be divorced from.
I love apartments because I lose everything. Apartments are horizontal, so it is much easier to find the things I lose……..
I’ve just surfaced for spending several days in state of rapture-with a book.
The way I saw it, if Bill had behaved, Al would have been elected, and thousands and thousands of people people would be alive today who are instead dead. (hluti af söguskoðuninni Whose Fault Was It?)
Hinar tvær sem ég gleypti eru ekki minnisverðar. Önnur bandarrísk Yrsa og hin öllu skárri kanadísk hm, smá í ætt við Noru Roberts.
Að lokum ef einhver veit eða getur komið með athyglisverða skýringu á tilvist pam-fíla þá bið ég viðkomandi að svar þessum pósti og upplýsa okkur.
Það hljómar eins og pamfíll sé sá sem elskar alla, þar sem gríska orðið pan merkir allir og fíla er að elska. M-ið skýrist svo af varamæltu samhljóði fyrir aftan (f).
Lukkunar pamfíll er þó væntanlega frekar sá sem lukkan elskar mjög mikið.
Comment by Paur Paursson — June 16, 2008 @ 6:00 pm
Ekki er það verra, en getur þú frætt mig á því hvaða krækjur eru okkar krækjur á Sverris síðu?
Comment by njola — June 16, 2008 @ 6:32 pm