Kata þarf kvóta ;0)
Við fórum systurnar í bítið í hvalaskoðun sem reyndist líka sjóstangaveiði og lundagláp.
Það rétt grillti í nokkrar hrefnur (eða eina sem sem hefur þá synt mjög hratt). Okkur var tjáð að þær væru farnar að forðast bátana eftir að veiðar hófust á ný. Svo tók veiðin við. Á meðan ég flækti færið við færi annarra og dró um borð útkast og aumingjalega þyrsklinga, þá mokveiddi Kata. Mæli með ferð Andreu www.hvalalif.is