Quattro - Mía litla og oktopússí

May 27, 2007

Burt með Ikea amöbur!

Filed under: 2007 — njola @ 12:01 am
Kæri Hlymur!
Mér er mikill vandi á höndum því hér í stofunni er risastór amaba í líki rúms frá IKEA. Hvorki lesendum Morgunblaðsins né flokksmönnum í Vinstri-Grænum hefur hugnast að yfirtaka amöbuna. Því hefst hér með OPERATION BED.
Plan A: Dýrleif miðaldra skattborgari sendir Hlym nauðsynleg leynigögn.
27. maí: Hlymur kemur upplýsingum og mynd af amöbunni inn á Barnaland en þar ku vera hægt að fá gott verð jafnvel fyrir gamlar ömmur.
28. og 29. maí: Slæst fólk fólk hvaðan æva á landinu um amöbuna. Dýrleif selur amöbuna hæstbjóðenda rúmmið (ég meina amöbuna) fyrir gull og græna skóga. Njóla fær gullið til að baða sig í eins og Jóakim von Önd og verður gullfalleg. Grænu skógunum verður komið fyrir hér og hvar á landinu í skjóli nætur til þess að styðja grænu byltinguna.
Plan B. Ef svo ólíklega skyldi vera að Plan A misfærist þá hefst OPERATION GET RID OF THE BED. Fimmtudaginn 31. maí er auglýsing send í Fréttablaðið og aftur í smáuglýsingar. Hefst þá mikil orrahrið við símsvörun og gylliboð. Spurning hvort ég verði að leigja mér símsvararararara?
Plan C. Ef allt þrýtur og fólk hræðist amöbuna. Þá er það OPERATION GET RID OF THE BLOODY BED BY ANY MEANS. Skvoo, tveir kostir þar 1) fara í BYKO og leigja sér kurlara (he, he) eða 2) Leigja sér sendiferðabíl og senda amöbuna í Sorpu (spurnig um að hafa hlutina einfalda).
Félagi Hlymur við treystum á hernaðaráætlunin standist… lifi græna byltinginn og fjarlægðar IKEA amöbur.


May 20, 2007

deja vu

Filed under: 2007 — njola @ 10:15 pm

May 13, 2007

keimspeki bloggsins

Filed under: 2007 — njola @ 8:06 pm
Next Page »

Powered by WordPress