Tæknileg mistök, he, he
Ákvað að taka jólahreingerninguna með trompi og bóna stofuna. Afleiðingin er að ég er með hálfbónað gólf og flest húsgögnin voru flutt búferlaflutningum í önnur herbergi. Það sem manni dettur stundum í hug!.
Vinkona sem kom í heimsókn í gær sagði mér að heimili mitt hlyti að vera hinn frægi buskur sem hlutir hyrfu út í. Vildi gjarna að eitthvað af þessu dóti sem er komið út um allt við tiltektina fari til síns heima hvort sem það er buskurinn, út í bláinn eða where the sun doesn’t shine. Hef það grun um að það fjölgi sér á nóttunni.
Dagsverkið hefur einkennst af ofnæmiskasti (annað hvort bónið eða rykið sem ég fór að hreyfa við). Myndlistagjörningi fyrir SHA og svefnpásum. Nú er það bað, borða og vinna í kvöld.
Á morgun er það friðargangan og svo um kvöldið að græja öllu á sinn stað á meðan ég hlusta á Þórláksmessu-tónleikana hans Bubba. Kannski flytur buskurinn þá eitthvað annað.